Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Ungfrú Moskva ákærð fyrir dreifingu klámefnis

Pútín herðir tökin á klámi

Fegurðardrottningin og klámstjarnan
Feg­urð­ar­drottn­ingin og klám­stjarnan Olga getur verið dæmd í allt að sex ára fang­elsi Mynd: Instagram

Olga Mur, fer­tug kona sem var krýnd Ungfrú Moskva á síð­asta ári, hefur verið ákærð fyrir fram­leiðslu og dreif­ingu klám­efnis.

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti hefur lengi gagn­rýnt klám­iðn­að­inn harka­lega, þrátt fyrir að her­menn hans hafi sjálfir orðið háðir klám­síðum og að stjórn­völd hafi meðal ann­ars aug­lýst eftir fleiri her­mönnum á vef­síð­unni Pornhub.

Nú hefur lög­fræð­ingnum fyrr­ver­andi, sem síðar hóf feril sem klám­stjarna, verið stefnt fyrir dómi vegna meintrar ólög­legrar klám­fram­leiðslu. Hennar rétta nafn er Olga Zubkova.

Hún á að mæta fyrir hér­aðs­dóm­stól­inn í Meshchansky-hverfi Moskvu í dag, 28. októ­ber og hefur verið bannað að yfir­gefa Rússland. Verði hún fundin sek gæti hún átt yfir höfði sér allt að sex ára fang­elsi.

Ekki hefur verið upp­lýst hvaða gögn ákæru­valdið hefur undir höndum gegn henni.

Olga starf­aði sem lög­fræð­ingur í átta ár áður en hún skipti skyndi­lega um starfs­vett­vang og opn­aði snyrti­stofu. Síðar vann hún til verð­launa í tveimur feg­urð­ar­sam­keppnum, í Moskvu og Dúbaí.

Hún hefur verið gift tvisvar en er nú ein­hleyp og á tíu ára dóttur. Hún stýrir þáttum um sam­bönd og náin trún­að­ar­mál undir heitum á borð við Love Theory og Whispering with Olga Mur.

Rússnesk raunveruleikastjarna slapp við fangelsi eftir nektargöngu

Málið kemur upp á sama tíma og rúss­nesk raun­veru­leika­stjarna hefur sloppið við fang­els­is­vist eftir að hafa gengið nakin um götur Moskvu.

Anastasia Bragina, 22 ára áhrifa­valdur, var harð­lega gagn­rýnd af konu sem sögð er vera ást­kona Pútíns. Hún var kölluð „sið­spilltur rusl­blogg­ari“.

Bragina hélt því hins vegar fram að upp­á­tækið hefði verið í sam­ræmi við „til­gang sálar hennar“. Hún sagð­ist vilja „losna undan öllum tak­mörk­unum“ en var þess í stað hand­tekin.

Hin umdeilda stjarna, sem er þekkt fyrir djarft og ögrandi efni á net­inu, var dæmd í þriggja ára skil­orðs­bundið fang­elsi við dóm­stól í Moskvu í sept­em­ber.

OnlyFans-stjarna sektuð um 45 þúsund pund

Önnur rúss­nesk OnlyFans-stjarna slapp nýlega við fang­els­is­vist vegna fram­leiðslu og dreif­ingar kyn­ferð­is­lega grófs mynd­bandsefnis.

Sofya Vers­hin­ina, 21 árs, var þess í stað gert að greiða 45.000 punda sekt, jafn­virði um átta millj­óna íslenskra króna, og henni bannað að nota inter­netið í þrjú ár.

Dómurinn hefur valdið miklu áfalli fyrir tekjur hennar af kyn­ferð­is­legu efni á net­inu.

Vers­hin­ina er ein fjöl­margra fyr­ir­sætna sem hafa verið ákærðar af rúss­neskum yfir­völdum eftir að Pútín hóf að herða aðgerðir gegn ört vax­andi klám­iðn­aði lands­ins.

Sak­sókn­arar segja hana hafa þénað 300.000 pund, jafn­virði rúm­lega 50 millj­óna íslenskra króna, með sölu á klám­mynd­böndum. Hún hafi einnig selt náið efni í gegnum sam­skipta­for­ritið Telegram á meðan hún bjó í lúxus­í­búð á efstu hæð skýja­kljúfs í Moskvu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Blaðamaðurinn Julia Raeside segir þekkta menn starfa áfram í skemmtanabransanum þrátt fyrir ásakanir um kynferðisbrot.

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife