1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

8
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

9
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

10
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Til baka

Verjandi fór „yfir mörk viðeigandi tjáningar“ í héraði

„Ósæmilegt og til þess fallið að misbjóða virðingu dómsins“

Héraðasdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur
Mynd: Víkingur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gagnrýnt harðlega bæði ákæruvaldið og skipaðan verjanda í fíkniefnamáli vegna vinnubragða við meðferð málsins. Þetta kemur fram í dómi þar sem meðal annars er fjallað um verulegar breytingar sem gerðar voru á ákæru eftir að hún hafði verið gefin út.

Í dómnum segir að ákæruvaldið hafi gert „verulegar breytingar“ á ákærunni sem hafi verið „langt umfram það sem eðlilegt getur talist í málum af þessum toga“. Þá segir að þau vinnubrögð sem leiddu til frávísunarkröfu ákærða hafi verið „verulega ámælisverð“.

Dómurinn tekur þó fram að sá sækjandi sem flutti málið fyrir dómi hafi ekki borið ábyrgð á þeim annmörkum, þar sem hann hafi tekið við málinu eftir útgáfu ákærunnar.

Jafnframt óskaði sækjandi eftir því að dómurinn tæki til skoðunar hvort tilefni væri til að sekta skipaðan verjanda ákærða vegna ummæla sem hann lét falla í greinargerð til dómsins. Þar sagði meðal annars að ekki væri um innsláttarvillu að ræða heldur mistök sem væru „í fullkomnu samræmi við þekkt vinnubrögð sækjandans, sem þykja almennt afar óvönduð“.

Dómurinn taldi að með þessum ummælum hefði verjandinn farið „yfir mörk viðeigandi tjáningar“ og að orðalagið hefði verið „ósæmilegt og til þess fallið að misbjóða virðingu dómsins“. Hins vegar var talið að taka yrði mið af þeim annmörkum sem voru á ákærunni og þeim leiðréttingum sem síðar voru gerðar. Var því ekki talið nægilegt tilefni til sektar, heldur látið nægja að ávíta verjandann.

Þá gagnrýnir dómurinn einnig bæði ákæruvaldið og verjandann fyrir að hafa lagt fram gögn sem tengdust ekki sakarefni málsins heldur meintu vanhæfi fyrrverandi ákæranda og sækjanda í málinu. Segir í dóminum að gögnin hafi hvorki átt erindi inn í málið né tengst ákærða með nokkrum hætti.

„Eru þessi vinnubrögð skipaðs verjanda ákærða og ákæruvaldsins átalin, enda ámælisvert af þeirra hálfu að blanda inn í málið óviðkomandi atriðum sem ekkert komu málinu eða ákærða við,“ segir í niðurstöðu dómsins.

Sakborningurinn, sem játaði sök, var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur til að sæta fangelsi í tvo mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára. Hann var einnig sviptur ökurétti í 27 mánuði og honum gert að sæta upptöku á fíkniefnum sem haldlögð höfðu verið við rannsókn málsins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð
Heimur

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum
Innlent

Lögreglan með viðvörun til foreldra eftir kaup ungmenna á fölsuðum skilríkjum

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

Loka auglýsingu