1
Minning

Þóra í Bakkakoti er látin

2
Heimur

„Kherson-níumenningarnir“ dæmdir í allt að 20 ára fangelsisvist

3
Fólk

Páll var átta ára farinn að spá í hlutabréfum

4
Fólk

Ari lifir með kæfisvefn

5
Heimur

Hermaður sem ætlaði að vitna um UFO-áætlanir lést skömmu fyrir áheyrn þingsins

6
Heimur

Þingkona Demókrata lést í flugslysi

7
Heimur

Fyrrverandi útfararstjóri dæmdur fyrir að fela hundruð líka

8
Heimur

Breskur áhrifavaldur lést eftir að bíl var ekið á hann

9
Heimur

Trump fluttur á brott eftir að skotárás hófst á hátíðarkvöldverði í Washington

10
Fólk

„Píeta samtökin hafa unnið mjög gott starf“

Til baka

Bjössi í World Class segist eiga bílastæðin

Björn Leifsson og meðeigendur hans að líkamsræktarstöðvum World Class krefjast þess að Reykjavíkurborg borgi þeim fyrir að nýta bílastæðin við Laugardalsvöll fyrir skólaþorp.

World Class
Björn Leifsson er eigandi World ClassHagnast gríðarlega á rekstri líkamsræktarkeðjunnar og telur sig hafa öðlast eignarrétt á bílastæðum við Laugardalsvöll.
Mynd: Víkingur

Eigendur World Class í Laugum hafa notið þess að hafa aðgang að ókeypis bílastæðum í eigu Reykjavíkurborgar í tvo áratugi. Nú segjast þau eiga bílastæðin vegna þess og vilja fá borgað fyrir að borgin noti þau í annað.

Lögmenn á vegum Björns Leifssonar, bróður hans og eiginkonu, sem eiga líkamsræktarkeðjuna World Class, hafa sent andmæli við tillögu Reykjavíkurborgar í drögum að aðalskipulagi um breytta nýtingu á bifreiðastæðum í Laugardal, við Laugardalsvöll. Bílastæðin sem um ræðir eru í meira en 200 metra fjarlægð frá World Class í Laugum.

Samkvæmt tillögu borgarinnar verður lítil breyting þó svo að hluti bílastæða við Laugardalsvöll, sem liggur lengst frá World Class í Laugum, verði lagður undir skólaþorp, eins og segir í tillögu að aðalskipulagi: „Svæðið er í dag að mestu leyti bílastæði sem þjónar þjóðarleikvanginum og verður því lítið rask á núverandi landnýtingu.“

Þessu eru eigendur World Class ósammála og telja að bílastæðin þjóni þeim og þeirra viðskiptavinum.

Björn vill koma í veg fyrir að bílastæðin við Laugardalsvöll verði notuð fyrir skólaþorp, þar sem gestir World Class í Laugum þurfi að nota þau og það geti valdið tekjutapi ef svo verði ekki áfram. Í kröfum lögfræðinga hans koma fram andmæli við að bílastæðin við Laugardalsvöllinn „sem m.a. hefur verið notað undir bifreiðastæði gesta líkamsræktarstöðvar World Class, verði framvegis nýtt fyrir grunnskóla“. Telur hann að World Class hafi öðlast „óbeinan eignarrétt“ með því að hafa fengið að nota stæðin í tvo áratugi „ótímabundið og endurgjaldslaust“.

Þá skiptir engu að enn verða á fjórða hundrað stæða beint fyrir utan Laugardalsvöll og til viðbótar stæði sem liggja næst stöð World Class í Laugum.

Skólaþorp þar sem er bílastæði

Í bréfi frá lögfræðingi Björns og World Class kemur fram að þau séu með samningsbundinn rétt til stæðanna.

Fyrir rúmum aldarfjórðungi - Þann 22. júlí árið 1999 - undirritaði borgin viljayfirlýsingu um stæðin og þar var því heitið að stæðin yrðu framvegis nýtt fyrir gesti innisundlaugar og heilsuræktarstöð World Class og voru undirritaðir samningar bindandi um stæðin milli umbjóðanda Björns og borgarinnar þann 24. apríl árið 2002 og 26. nóvember 2002 sama ár.

Kemur fram í bréfinu að í 4. grein samninganna var Birni veitt „ótímabundin og endurgjaldslaus afnot“ af ómerktum almennum bifreiðastæðum við Laugardalslaug og Laugardalsvöll, fyrir gesti stöðvarinnar, en rekstur heilsuræktarstöðvar World Class hófst í Laugardalnum skömmu síðar, árið 2004 og allt frá þeim tíma hafa viðskiptavinir World Class haft óheft og endurgjaldslaus afnot af stæðunum.

Einnig segir að áðurnefnd stæði hafa verið nýtt í framkvæmd með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í samningunum, í yfir tvo áratugi.

Að mati Björns og hans lögfræðinga mun fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi fela í sér verulegaa skerðingu á eignaréttindum hans, þó bílastæðin séu við íþróttaleikvang í opinberri eigu. „Í 72. gr. stjórnarskrár segir að engan megi skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji, til þess þurfi lagafyrirmæli og fullt verð komi fyrir. Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi felur í sér verulega skerðingu á eignaréttindum umbjóðanda okkar. Þá er fyrirsjáanlegt að breytingin mun valda umbjóðanda okkar fjártjóni. Gestum mun fækka með fækkun bifreiðastæða og tekjur dragast saman,“ segir í lögfræðibréfinu frá Laugum ehf.

Bílastæði Laugardalsvöll World Class
Breytingin á bílastæðunumÁ teikningu Reykjavíkurborgar kemur fram að bílastæðin við Laugardalsvöll sem eru í nokkurri fjarlægð frá World Class verði notuð í skólaþorp.
Mynd: Reykjavíkurborg

Segja hættulegt að minnka aðgengi að bílastæðinu

Segir í tillögum Reykjavíkurborgar að eingöngu verði opin ein innkeyrsla á bifreiðastæðið, að norðanverðu, en innkeyrslu á bifreiðastæðið að sunnanverðu verði lokað.

Mótmæla lögmenn World Class einnig þessum fyrirætlunum og tiltekið er að um sé að ræða svæði er þúsundir gesta sækja, til að mynda þegar stærri viðburðir eru á Laugardalsvelli og ef margir yfirgefa svæðið á sama tíma geti skapast örtröð ef einungis er hægt að keyra út af því á einum stað og slíkt rýrir í senn upplifun gesta af því að sækja viõburði og getur beinlínis verið hættulegt, til dæmis ef sjúkrabílar eða viðbragðsaðilar þurfi að komast til og frá svæðinu.

Björn og meðeigendur hans leggjast því eindregið gegn því að lokuð verði innkeyrslu sunnanmegin að svæðinu.

Hagnast um 900 milljónir króna

Laugar ehf, sem reka World Class stöðvarnar, hafa notið þess að geta boðið gestum sínum aðgang að almenningssundlaugum samhliða notkun á líkamsræktarstöðvunum, sem eru í einkaeigu. Það á meðal annars við Laugardalslaug, Lágafellslaug í Mosfellsbæ, og Seltjarnarneslaug.

Á síðasta birta rekstrarári, árið 2023, högnuðust Laugar um 665 milljónir króna eftir skatt. Það segir ekki alla söguna, því Laugar leigja húsnæði af félagi í sama eignarhaldi, sem hagnaðist um 235 milljónir króna til viðbóta. Það er ekki allt og sumt, því annað félag, í eigu Hafdísar Jónsdóttur og Björns Leifssonar, hagnaðist um 15 milljónir króna í fyrra með leigutekjum frá World Class.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Styrkja Mannlíf

Má bjóða þér að styrkja starfsemi Mannlífs með mánaðarlegu framlagi?


Komment

Maður fannst látinn við Háafoss
Innlent

Maður fannst látinn við Háafoss

Aðeins 12 dagar í nýja plötu frá Daða Frey
Menning

Aðeins 12 dagar í nýja plötu frá Daða Frey

„Píeta samtökin hafa unnið mjög gott starf“
Fólk

„Píeta samtökin hafa unnið mjög gott starf“

Þingkona Demókrata lést í flugslysi
Heimur

Þingkona Demókrata lést í flugslysi

Ungur Íslendingur lést í fallhlífaslysi í Danmörku
Innlent

Ungur Íslendingur lést í fallhlífaslysi í Danmörku

Ekki einn þingmaður hefur svarað bréfi Hjálmtýs um Gaza
Innlent

Ekki einn þingmaður hefur svarað bréfi Hjálmtýs um Gaza

Ari lifir með kæfisvefn
Viðtal
Fólk

Ari lifir með kæfisvefn

Breskur áhrifavaldur lést eftir að bíl var ekið á hann
Heimur

Breskur áhrifavaldur lést eftir að bíl var ekið á hann

Trump fluttur á brott eftir að skotárás hófst á hátíðarkvöldverði í Washington
Heimur

Trump fluttur á brott eftir að skotárás hófst á hátíðarkvöldverði í Washington

Andlega veikur maður fluttur á bráðadeild eftir rúðubrot
Innlent

Andlega veikur maður fluttur á bráðadeild eftir rúðubrot

Þóra í Bakkakoti er látin
Minning

Þóra í Bakkakoti er látin

Páll var átta ára farinn að spá í hlutabréfum
Viðtal
Fólk

Páll var átta ára farinn að spá í hlutabréfum

Hermaður sem ætlaði að vitna um UFO-áætlanir lést skömmu fyrir áheyrn þingsins
Heimur

Hermaður sem ætlaði að vitna um UFO-áætlanir lést skömmu fyrir áheyrn þingsins

Innlent

Maður fannst látinn við Háafoss
Innlent

Maður fannst látinn við Háafoss

Segir leik Snorra í High School Musical fyrirboða
Myndband
Innlent

Segir leik Snorra í High School Musical fyrirboða

Ungur Íslendingur lést í fallhlífaslysi í Danmörku
Innlent

Ungur Íslendingur lést í fallhlífaslysi í Danmörku

Ekki einn þingmaður hefur svarað bréfi Hjálmtýs um Gaza
Innlent

Ekki einn þingmaður hefur svarað bréfi Hjálmtýs um Gaza

Andlega veikur maður fluttur á bráðadeild eftir rúðubrot
Innlent

Andlega veikur maður fluttur á bráðadeild eftir rúðubrot

Tveir ökumenn, grunaðir um ölvunarakstur, ollu umferðaslysi
Innlent

Tveir ökumenn, grunaðir um ölvunarakstur, ollu umferðaslysi

Loka auglýsingu