Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Culkin tók tárvotur við stjörnu á Hollywood Walk of Fame: „Gleðileg jól skítseiðin ykkar“

Gervi mæðginin
Gervi mæðginin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Macaulay Culkin fékk stjörnu á Hollywood Walk of Fame á dög­unum og gaf til­finn­inga­þrungna þakk­ar­ræðu af til­efn­inu.

Culkin sagði í gríni að það væri gaman að nú geta synir hans horft á hunda pissa á nafn hans.

Ein stærsta barna­stjarna allra tíma, Macaulay Culkin var heiðr­aður á dög­unum með stjörnu á Hollywood Walk of Fame. Mætti hann með unn­ustu sinni, Brendu Song og tveimur sonum þeirra. Culkin hélt til­finn­inga­þrungna þakk­ar­ræðu við til­efnið.

Macaulay, Brenda og Dakota

Culkin varð mjög ungur að aldri, ofur­stjarna í Hollywood eftir að hann lék í kvik­myndum á borð við Home Alone 1 og 2, My Girl, Uncle Buck og The Good Son. En frægðin fór illa í okkar mann enda álagið gríð­ar­legt og svo þurfti hann að fara í mál við for­eldra sína sem fóru illa með pen­ing­ana hans. Enn í dag talar Culkin ekki við föður sinn. Þegar frægð­ar­sólin var farin að dofna leidd­ist Culkin út í eit­ur­lyf og náði botn­inum í kringum árið 2004. Síðan þá hefur hann smá saman byggt sig upp og hefur verið vin­sæll á sam­fé­lags­miðl­unum fyrir nokkuð sér­stakan húmor en svo átti hann góða end­ur­komu í Hollywood í þátt­unum American Horror Story.

Paris Jackson, dóttir Michael og guð­dóttir Culkin, mætti á athöfn­ina.

Ræðan sem Culkin hélt er hann þáði stjörn­una, var eins og áður segir, til­finn­inga­þrungin en þar þakk­aði hann fólk­inu í lífi sínu fyrir alla þá ást sem þau höfðu sýnt honum og fyrir að gef­ast ekki upp á sér. Lauk hann ræð­unni á skemmti­legri til­vísun í Home Alone: „Merry Christmas you filthy animals“ sem á íslensku gæti útlagst sem gleði­leg jól skítseiðin ykkar.

Leik­konan Catherine O´Hara, sem lék móður Culkin í Home Alone mynd­unum, hélt einnig til­finn­inga­þrungna ræðu til heið­urs leik­ar­ans. „Þessi gull­fal­legi og ynd­is­legi 10 ára drengur var kall­aður ofur­stjarna, pen­ingamask­ína og einn heit­asti aðal­leik­ar­inn í Hollywood, um allan heim. Hvernig lifir ein­hver slíkt af? Ég held að maður þurfi að hafa ákveðin eig­in­leika, gjöf, sem hinn kæri John Hughes [leik­stjóri Home Alone mynd­anna], tók greini­lega eftir í fari þínu Macauley, en það er kímni­gáfa þín. Það er merki um vits­muni í barni og lyk­il­at­riði svo hægt sé að lifa af á hvaða aldri sem er. Og mér sýn­ist þér hafa notað þinn krútt­lega en samt pínu brenglaða húmor sem þó er hægt að tengja algjör­lega við, í öllu sem þú hefur valið að taka þér fyrir hendur síðan þú varst í Home Alone. Macaulay Culkin, til ham­ingju með stjörn­una á Hollywood Walk of Fame, þú átt hana algjör­lega skilið. Og takk fyrir að bjóða mér, gervi mömmu þinni sem skyldi þig ekki eftir einan heima einu sinni, heldur tvisvar sinnum, að sam­gleðj­ast með þér af þessu til­efni. Ég er svo stolt af þér. Guð blessi þig.“

Culkin mætti með unn­ustu sinni, leikkon­unni Brenda Song og tveimur sonum þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027