Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Séra Skírnir um Agnesi: „Hef ég í ræðu og riti bent á að hún sé nú ekki rétt kjörin biskup lengur“

Agnes biskup og Séra Skírnir Garðarsson.
Agnes biskup og Séra Skírnir Garð­ars­son.

Séra Skírnir Garðarsson telur að Agnes M. Sigurðar­dóttir sé umboðs­laus í starfi sínu sem biskup.

Segir:

„Agnes biskup virðist sitja umboðs­laus á biskups­stóli; virðist ætla að sitja áfram eins lengi og henni sýnist sjálfri,“ segir séra Skírnir og bætir við:

Hneyksl­is­mál og deilur hafa ein­kennt síð­ustu árin hjá Þjóð­kirkj­unni. Myndin er sam­sett.

„Frá júní 2022 er hún hins vegar búin að vera umboðs­laus; skipunar­tíminn er runninn út; hef ég í ræðu og riti bent á að hún sé nú ekki rétt kjörin biskup lengur. Af þessu leiðir að allt sem hún segir og gerir í nafni biskups er markleysa ein. Umboð hennar til að vera biskup rann í raun út árið 2017, en var framlengt sjálf­krafa, í óþökk margra presta.“

Heldur áfram:

„Frá árinu 2022 er Agnes hins vegar augljós­lega umboðs­laus og ætti ekki að vera á launaskrá.

Pétur Markan og Agnes biskup hafa enn ekki séð ástæðu til að svara fyr­ir­spurnum Mannlífs um mál­efni Þjóð­kirkj­unnar.

Þjóð­kirkjan hefur um allangt skeið verið á villigötum hvað varðar stjórn­sýslu og fjármála­stjórn. Hentistefnu­ákvarðanir og lögleysa hefur viðgengist. Þarna er séra Kristján Björnsson vígslu­biskup líka flæktur í, hann hefur fyrir hönd Agnesar tekið þátt í allskonar rugli, varðandi prestana séra Kristinn Jens Sigurþórsson, séra Ólaf Jóhannsson og fleiri.“

Séra Kristján Björns­son vígslu­biskup Skál­holti. Mynd Páll M. Skúlason.

Skírnir segir að það megi „segja séra Kristjáni til málsbóta að hann var að reyna að fram­fylgja geðþótta­ákvörðunum Agnesar; það breytir þó ekki því að séra Kristján er staðinn að fölskum og misvísandi framburði fyrir héraðs­dómi, fyrir að hafa framfylgt ólögmætum ákvörðunum um niður­lagningu embætta og fleira.

Séra Kristján ætti ekki að verða aðal­biskup, ef Agnes myndi stíga til hliðar.“

Séra Skírnir telur að rannsaka þurfi „embættis­feril séra Kristjáns áður, ef til þessa kæmi.“

Segir að endingu:

Séra Gísli Gunn­ars­son vígslu­biskup.

„Eina markvissa leiðin til lausnar er að séra Gísli Gunnarsson vígslu­biskup á Hólum gegni embætti biskups þar til kosið hefur verið til embættanna að nýju, eða þeim fækkað.

Agnes – og líka séra Kristján, ættu að stíga til hliðar nú, til að skapa ró í kirkjunni og meðal þjóðarinnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim