Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Varaþingmaður yfirgefur VG vegna útlendingafrumvarpsins: „Þessi skref eru afskaplega þung“

Daníel E. Arnarson hefur yfirgefið VG.
Daníel E. Arnarson hefur yfir­gefið VG.

Daníel E. Arnarsson ritar færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann tilkynnir úrsögn sína úr VG.

„Í gærkvöldi var útlendinga­frumvarp dómsmála­ráðherra samþykkt. Frumvarp sem fjöldi mann­réttinda- og hjálpar­samtaka hafa barist gegn enda skerðir það réttindi eins viðkvæmasta og jaðar­settasta hóp okkar samfélags; fólk sem leitar að alþjóðlegri vernd.“

Daníel segir að „það er ekki að ástæðu­lausu að frum­varpið mætti jafn­sterkri andstöðu líkt og raun ber vitni. Þegar ég bauð mig fram í prófkjöri VG 2021 þá var eitt af mínum áherslu­málum meiri mannúð þegar kemur að þessum hópi. Ég fékk fjölda fólks til að ganga til liðs við hreyfinguna, fólk sem var mér sammála í þessum efnum og ég fékk mikinn stuðning frá þessum einstaklingum. Fyrir það verð ég ávallt þakklátur.“

Hann bætir þessu við:

„Það eru engin stjórnmál án ábyrgðar, og ég finn til ábyrgðar á þessari stundu. Ég var alla tíð á móti þessu frumvarpi og gerði mitt allra besta til þess að stöðva það. Það tókst ekki. Því verð ég að bera ákveðna ábyrgð og nokkrum mínútum eftir að þingfólk Vinstri grænna kaus með þessu frumvarpi þá skráði ég mig úr hreyfingunni. Ekki einungis vonbrigðanna vegna.“

Daníel segir að endingu að „ég hef unnið með VG í 17 ár, lengur en hálfa ævi. Ég horfi ekki bara á VG sem stjórnmála­hreyfingu heldur er fólkið í VG fjöl­skyldan mín, fólk sem ól mig upp. Þess vegna eru þessi skref afskaplega þung. Mér þykir enn afar vænt um fólkið í VG en því miður þá get ég ekki staðið á bakvið hreyfingu sem samþykkir skerðingu á réttindum til eins viðkvæmasta hóp samfélagsins.

Að lokum. Ég átta mig á að ég er lýðræðis­lega kjörinn vara­þingmaður hreyfingarinnar. Ef ég verð kallaður inn á þing þá mun ég ekki taka sæti heldur vísa áfram á næstu manneskju á lista VG í Reykja­víkur­kjördæmi suður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim