Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Brynjar með völvuspá fyrir 2023: „Einhver aðstoðarmaður ráðherra mun skandalísera á árinu“

Mynd / Skjáskot af Facebook.
Mynd / Skjáskot af Facebook.

Brynjar Níelsson steig fram á Facebook í dag með völvuspá sem hann sagðist hafa fengið í hendurnar frá eldri konu. Í „spánni“ dregur hann vinstri­menn sundur og saman í háði.

Brynjar Níelsson, fyrr­verandi þingmaður Sjálfstæðis­flokksins og núverandi aðstoða­maður Jóns Gunnars­sonar dómsmála­ráðherra, skrifaði færslu á Facebook fyrir stundu þar sem hann segist sækja námskeið hjá Karli Th. Birgis­syni um „listina að halda kjafti“ eins og hann orðar það. Þá kemur hann fram með völvuspá þar sem hann lætur vinstri­menn fá það óþvegið og má segja að allt það sem Brynjar hefur verið gagn­rýndur fyrir í gegnum tíðina, skíni vel í gegnum alla spánna en sitt sýnist sjálfsagt hverjum. Hér er færslan í heild sinni:

„Gleðileg jól, kæru fésbókar­vinir. Ég hef haft tiltölu­lega hljótt um mig á fésbókinni undan­farið. Ástæðan er sú að ég sæki námskeið hjá Karli Th. Birgis­syni um listina að kunna að þegja eða halda kjafti eins og hann orðar það. Þetta er námskeið sem er ætlað öðrum en vinstri mönnum og er fjár­magnað af Samfylkingunni og Pírötum með peningum úr ríkis­sjóði. Þá hafa vinstri flokkarnir boðið upp á námskeið hvernig misfara á með skattfé en láta það líta út sem manngæsku. En þar sem ég er að læra listina að þegja ætla ég á næstunni að birta texta eftir aðra og byrja á völvuspá fyrir næsta ár sem gömul kona úr vesturbæ sendi mér og bað mig um að koma á framfæri. Hún er svona orðrétt:

“Mikið mun gerast í heimi fjölmiðla á nýju ári. Stundin og Kjarninn munu sameinast til að efla rannsóknar­blaða­mennsku, ekki síst til að upplýsa um kennitölu­flakk í íslensku samfélagi. Blaðamenn munu verðlauna hvern annan á árinu sem aldrei fyrr fyrir að upplýsa um spillingu og brot án þess að nokkuð upplýsist frekar en áður. Nokkur ólga mun verða innan fjölmiðla­heimsins sem mun brjótast út í miklum mótmælum yfir aðför stjórn­valda gegn þeim, einkum vegna þess að ætlast er til að það gildi sömu lög og reglur um þá og aðra og svo yfir því að dregið verður úr fjár­streymni til þeirra úr vasa skatt­greiðenda. Það endar með stórum útifundi á Austur­velli þar sem listamenn á launaskrá ríkisins koma fram og Kristinn Hrafnsson verður með uppistand ásamt Stefáni Ingvari Vigfússyni. Þá mun framkvæmda­stjóri Transparency International flytja erindi á fundinum um muninn á góðri spillingu og vondri spillingu.

Í heimi stjórn­mála munu ráðherrar keppast við að greiða bætur úr ríkis­sjóði. Mér sýnist dómsmála­ráðherra ætla að greiða afkomendum Agnesar og Friðriks í beinan legg tölverða fjárhæð enda það mál hvílt mjög á lands­mönnum, ekki síst Húnvetningum, en dómsmála­ráðherra var einu sinni sauðfjár­bóndi á Barkar­stöðum í Húnvatnssýslu og á þar sterkar rætur. Þá mun barnamála­ráðherra leggja til að ungbörnum sem látin voru sofa úti í barna­vagni hjá dagmömmum, oft grátandi, verði greiddar bætur. Einnig börnum sem voru á árum áður í beisli bundin við girðinguna í garðinum, og munu það vera nánast allir landsmenn sem komnir eru yfir sextugt.

Það verða tals­verðar breytingar á þinginu. Einhver Pírati mun flytja til Írans, jafnvel fleiri en einn, ásamt mörgum feministum, sem telja staða kvenna sé betri þar en hér á landi, bæði hvað varðar borgarleg réttindi og klæðaburð. Þá mun Pírati, sem hefur verið áberandi á alþjóð­legum vettvangi, en enginn hlustar á, halda námskeið um pólitíska ábyrgð og hvernig sú ábyrgð tengist siða­reglum eða ekki. Einhver hringl­andi verður á ráðherra­liðinu og mér sýnist að þeir verði látnir taka pokann sinn sem eitthvert gagn hafa gert. Einhver aðstoðar­maður ráðherra mun skandalísera á árinu og verður látinn fara. Sé ekki alveg hver það er en hann er karlkyns og hefur ekki útlitið með sér.

Ástandið í Reykja­víkurborg mun batna mikið þegar líður á árið. Það mun hætta að snjóa í sumar þegar þjónustu­hand­bækurnar verða loksins uppfærðar eftir þrotlausa vinnu margra starfs­hópa. Jafnframt mun draga úr loftslags­kvíða meirihlutans í borginni og orðið hamfara­hlýnun mun heyrast sjaldnar. Ég sé að borgin ætlar að taka á fjárhags­vandanum með því að syngja á fundum borgar­stjórnar og halda geðsjúkum heima hjá sér. Þess á milli ætlar meirihlutinn í borginni að skála í kampavíni saman á Kjarvals­stofu til að fagna því hversu æðisleg þau eru.

Mikil­vægustu ríkis­fyrirtækin, ÁTVR og RÚV, munu eiga erfitt uppdráttar á nýju ári. Á endanum nennir enginn að hlusta á sama fólkið í Vikunni hjá Gísla Marteini upphefja sjálfan sig og tala illa um aðra og enda­lausar fréttir frá frétta­stofunni um hamfara­hlýnun, kynsegin fólk og mann­vonsku sem fylgir hval­veiðum. Þá mun RÚV afleggja allar siða­reglur um starfs­menn sína sem og aðrar reglur enda almanna­útvarp í almanna­eigu. Enn erfiðara verður árið fyrir ÁTVR. Landsmenn eru komnir á þann stað að vilja kaupa áfengi annars staðar en í verslunum ÁTVR eins og þeir vildu á sínum tíma kaupa mjólkur­vörur í öðrum búðum en mjólkur­búðum. Mér sýnist samt ÁTVR lifa árið af og jafnvel lengur ef fram­sóknarmenn í öllum flokkum verða svona margir áfram.”

Svona mörg voru orð völvunnar. Hún hefur reynst sannspá í gegnum tíðina. Hefur til að mynda spáð jarð­hræringum og eldgosum á Íslandi, sem hefur heldur betur reynst rétt. Ekki á hvers manns færi að sjá það fyrir. Ég sleppti að vísu úr spánni því sem gæti verið móðgandi fyrir einhverja. Það er nefnilega kennt á námskeiðinu um listina að þegja að ritstýra og þagga niður allt óþægilegt. Það er kennt í kaflanum um haturs­orðræðu en það hugtak var fundið upp á gamla Þjóð­viljanum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Meðal þeirra sem þar hafa búið eru Cher, Elton John, Lindsay Lohan og Courteney Cox.
Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri