Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Tveir fyrirburar látnir á al-Shifa sjúkrahúsinu – Fleiri munu deyja í dag ef engin hjálp fæst

Tveir fyr­ir­burar dóu á al-Shifa sjúkra­hús­inu á Gaza í gær, eftir að lífs­nauð­syn­leg tæki hættu að virka vegna raf­magns­leysis.

Samkvæmt frétt Al Jazeera eru enn 37 nýburar í hættu á að missa líf sitt eftir að elds­neytið sem knýr raf­magnið á hita­kass­ana á sjúkra­hús­inu, rann út. Þetta var haft eftir for­stjóra al-Shifa sjúkra­húss­ins, Mohammed Abu Salmiya, í gær.

„Því miður höfum við misst tvö börn af 39 vegna raf­magns­skorts,“ sagði Abu Salmiya og hélt áfram. „Við erum að tala um fyr­ir­bura sem þurfa á lífs­nauð­syn­legri umönnun að halda.“

Útskýrði hann að börnin tvö hafi lát­ist eftir að elds­neyti sem notað er til að knýja raf­magnið fyrir hita­kassa og súr­efni, hafi runnið út. Raf­magnið var nauð­syn­legt til að halda hita á börn­unum og stans­laust streymi súr­efnis til þeirra. Umsát­urs­á­stand er á sjúkra­hús­inu en ísra­elski her­inn hefur gert harðar árásir á það. „Þau dóu vegna lágs hita­stigs og skorts á súr­efni. Við erum nú að nota frum­stæðar aðferðir við að halda þeim á lífi,“ sagði for­stjór­inn í gær. „Við erum með raf­magn til morg­uns. Þegar algjört raf­magns­leysi verður, munu fyr­ir­burarnir deyja, rétt eins og hin.“

Mohammed Obeid, skurð­læknir á sjúkra­hús­inu stað­festi einnig að nýburarnir hafi lát­ist og sagði að full­orð­inn sjúk­lingur hafi einnig lát­ist vegna þess að það slökkn­aði á önd­un­ar­vél hans vegna raf­magns­skorts.

„Við viljum að ein­hver veiti okkur trygg­ingu fyrir því að þeir geti rýmt sjúk­ling­ana, því við erum með um 600 sjúk­linga hér,“ sagði hann í raddupp­töku sem birt­ist hjá sam­tak­anna Læknar án landamæra.

Ísra­elski her­inn hefur sagst að hann muni í dag aðstoða við að koma nýburunum á örugg­ara sjúkra­hús. „Starfs­fólk al-Shifa sjúkra­húss­ins hefur óskað eftir því að á morgun (í dag), að við hjálpum börnum á fæð­inga­deild­inni að kom­ast á örugg­ari sjúkra­hús. Við munum veita þá aðstoð sem þarf,“ sagði tals­maður ísra­elska hers­ins, Daniel Hagari, í sjón­varps­ávarpi.

Frétta­maður Al Jazeera, sem starfar í hinu hernumda Austur-Jer­úsalem í Palest­ínu, Alan Fisher, segir að hið vænt­an­lega plan Hagari, að flytja börnin á annað sjúkra­hús, virð­ist óraun­hæft. „Það vekur upp fjöldi spurn­inga. Í fyrsta lagi, hvernig mun það virka? Hvernig geta þeir flutt börnin á öruggan hátt, á svæði þar sem barist er á? Í öðru lagi, hvaða sjúkra­hús myndu börnin fara á? Við heyrum að þvert yfir Gaza-strönd­ina séu sjúkra­hús að verða uppi­skroppa með nauð­synjar til að með­höndla börn, þar á meðal fyr­ir­bura.“

Bætti Fisher við að Ísraelar væru hugs­an­lega að bregð­ast við af áhyggjum vegna gagn­rýni sem þeir hefðu fengið vegna ástands­ins á al-Shifa sjúkra­hús­inu og dauða barn­anna tveggja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

„Við erum að skapa framandi verur“

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest