Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Edda Falak: „Ég svaraði þessum Arnþóri í hálfkæringi“

Edda Falak, Arnþór Jónsson og Kári Stefánsson
Edda Falak, Arnþór Jónsson og Kári Stef­áns­son

„Ég svaraði þessum Arnþóri í hálf­kæringi enda er ég bundin trúnaði við þolanda. – ég hef engan áhuga á að taka þátt í einhverri pólitík innan SÁÁ.“

Þessa færslu skrifaði Edda Falak, stjórn­andi hlað­varpsins Eigin konur, á Twitter í gærkvöld. Með færslunni deildi hún frétt Stundarinnar þar sem Kári Stef­ánsson sagðist hundrað prósent viss um að það væri ekki hann sem Edda vísaði í á samfélags­miðli, hvar hún nefndi þjóð­þekktan mann sem hafi keypt vændi af konu.

Edda ræddi við Stundina í gær og sagðist ekki ætla að greina frá því hver maðurinn væri. Upphaf málsins má rekja til færslu sem Edda skrifaði inn í Facebook-hópinn Baráttu­hópur gegn ofbeldis­menningu; opinn hóp sem telur um 6.500 meðlimi.

Fárviðri innan SÁÁ

Frosti Logason, fjölmiðla­maður og einn stjórnar­maður SÁÁ, sendi í gær tölvupóst á aðra stjórnar­meðlimi þar sem hann sagði Eddu Falak hafa neitað því að Kári væri maðurinn sem um ræddi. Áður hafði Arnþór Jónsson, fyrr­verandi formaður SÁÁ, sent töluvupóst á núverandi stjórnar­meðlimi þar sem hann gerði því skóna að verið væri að saka Kára Stef­ánsson um að hafa keypt vændi.

„Meðfylgjandi er skjáskot frá í gær 2. febrúar. Konur sem telja sig eiga um sárt að binda vegna ósæmilegrar framkomu einhvers frægðarmennis, munu líklega stíga fram og segja sögu sína. Ef marka má upplýsingarnar á myndinni gætu þolendurnir verið skjólstæðingar SÁÁ. Mér hefur verið sagt að gerandinn sé Kári Stef­ánsson. Getur þú staðfest við stjórn SÁÁ að svo sé ekki?,“ skrifaði Arnþór í tölvu­póstinum, sem Mannlíf hefur undir höndum.

Í fram­haldinu dró Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir framboð sitt til formanns SÁÁ til baka og Kári Stef­ánsson steig til hliðar úr stjórninni. Þóra Kristín tók ákvörðunina skömmu fyrir fundinn þar sem kjósa átti nýjan formann SÁÁ. Ljóst var að hún gekk að formanns­stólnum vísum, enda með yfirburða­stuðning stjórnar­meðlima.

Í póstinum sem Frosti Logason sendi á stjórnar­meðlimi SÁÁ í kjölfar þess að Þóra Kristín dró framboð sitt til baka segir:

„Þóra Kristín og Kári Stef­ánsson hafa ákveðið að draga sig alfarið úr stjórn samtak­anna vegna þeirrar ofbeldis­hegðunar sem Arnþór Jónsson og félagar hafa verið að sýna af sér í dag eins og á liðnum árum. Það skal tekið hér fram að Edda Falak hefur staðfest það við Arnþór að ekki sé um Kára Stef­ánsson að ræða í þessum orðrómi um vændis­kaup sem hún var að fiska eftir á samfélags­miðlum. Eftir stendur að ítrekað ofbeldi Arnþórs og félaga heldur áfram að eyði­leggja fyrir okkar ágætu samtökum og það er miður.“

Segist hafa svarað í hálfkæringi

Nú hefur Edda Falak gefið það í skyn á Twitter að hún hafi svarað spurningu Arnþórs í hálf­kæringi. Hún segir einnig í samtali við Stundina:

„Ég ætla ekki að greina frá því hver þessi maður er. Ég svaraði konu úr stjórn SÁÁ og þessum fyrr­verandi formanni SÁÁ í hálf­kæringi, þetta var innihalds­laust svar af því að ég þarf ekki að svara fyrir neitt, enda er ég fyrst og fremst bundin trúnaði gagnvart þolandanum og í öðru lagi hef ég engan áhuga á að taka þátt í einhverri pólitík innan SÁÁ.“

Kári sagðist í samtali við Stundina vera hundrað prósent viss um að það væri ekki verið að tala um hann, öðruvísi en að fólk væri að skálda.

Í gær eftir að Þóra Kristín dró framboð sitt til baka og Kári Stef­ánsson steig niður úr stjórn SÁÁ, deildi Edda Falak fréttinni á Twitter með orðunum „Flott. Bless bæði tvö.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu