Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Útvarp 101 hættir útsendingum

Útvarp 101
Útvarp 101 Mynd: Ragna Gestsdóttir

Útvarp 101 hefur hætt útsendingum.

Frá árinu 2018 hefur Útvarp 101 verið ein ferskasta útvarpsstöð landsins þar sem margir af bestu útvarps­mönnum landsins hafa átt heimili. Nú hefur verið ákveðið að leggja stöðina niður og munu eigendur hennar einbeita sér að fram­leiðslu sjónvarps­efnis. 

Meðal útvarps­manna sem hafa starfað hjá Útvarpi 101 má nefna Aron Má Ólafsson, Sögu Garðars­dóttur, Unnstein Manuel Stef­ánsson, Svanhildi Grétu Kristjáns­dóttur, Sigur­bjart Sturlu Atlason, Jóhann Kristófer Stef­ánsson, Birnu Maríu Másdóttur og Loga Pedro Stef­ánsson og fleiri. Útvarps­stöðin setti sér það markmið að fjalla um popp­kúltúr, listum og málefnum ungs fólks.

Hægt er að lesa tilkynningu félagsins hér fyrir neðan

„101 Productions ehf. hefur ákveðið að gera ótíma­bundið hlé á útsendingum útvarp­stöðvarinnar Útvarp 101 FM 94.1. Breytt rekstrar­umhverfi og ytri aðstæður hafa orðið til þess að stjórn og eigendur félagsins telja kröftum þess betur varið í áfram­haldandi fram­leiðslu sjónvarps- og annars afþreyingar­efnis utan útvarps­útsendinga. Samhliða þessum breytingum mun félagið flytja sig um húsnæði og kveður því einnig höfuð­stöðvar útvarpsins á Hverfis­götu 78. Á allra næstu mánuðum er nýs efnis frá 101 Productions að vænta á skjám lands­manna, þar á meðal má nefna nýja þáttaröð af hinum geysivinsælum þáttum Æði, heimildar­mynd og tvær áhuga­verðar þáttaraðir tengdar menningu og þjóðmálum sem nánar verður tilkynnt um síðar.

Útvarp 101 þakkar dyggum hlustendum sínum og öllu því ótrúlega hæfileika­fólki sem kom að starfsemi þess með einum eða öðrum hætti á undan­förnum fimm árum. Stöðin var stofnuð í þeim tilgangi að auðga menningarlíf landsins og gefa góðum hugmyndum vettvang og farveg til að blómstra. Við vonum að það ætlunar­verk hafi tekist. 101.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt