Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Finni hefur siglt 3.000 sjómílur án þess að nota dropa af eldsneyti

Smíðaði sér sól­ar­raf­knúna snekkju og ferð­ast nú um höfin.

Snekkjan
Snekkjan Sjöman hefur ekki eitt krónu í elds­neyti í ferð­inni. Mynd: Instagram

Maður sem smíð­aði sjálfur sól­ar­orkuknúna snekkju fyrir um 20.700 banda­ríkja­dali, eða rúm­lega 2,5 millj­ónir íslenskra króna, hefur nú siglt yfir 3.000 sjó­mílur án þess að nota einn ein­asta dropa af elds­neyti.

Snekkjan hefur verið á ferða­lagi um Evrópu und­an­farna mán­uði og er ein­göngu knúin raf­magni sem fram­leitt er með hefð­bundnum sól­ar­sellum á þaki hennar.

Hinn finnski Lukas Sjöman, sem hann­aði og smíð­aði bát­inn sjálfur, segir verk­efnið hafa gjör­breytt sýn sinni á lang­ferðir á sjó. Að hans mati gætu sól­ar­orkuknúnir bátar orðið fram­tíð margra báta­eig­enda.

Knúin af sólinni

Ólíkt flestum raf­knúnum snekkjum, sem þurfa reglu­lega að tengj­ast hleðslu­stöðvum, fram­leiðir Helios 11 raf­magn sitt sjálf.

Hin ell­efu metra langa snekkja var smíðuð í Finn­landi og er búin tíu hefð­bundnum sól­ar­sellum af þeirri gerð sem notuð er á íbúð­ar­húsum. Þær hlaða stöðugt 24 kílóvatt­stunda raf­hlöðu­pakka yfir dag­inn.

Raf­hlöð­urnar knýja síðan sex kílóvatta raf­mótor sem gerir bátnum kleift að sigla án bens­íns eða dísilolíu.

Í nýlegu mynd­bandi sínu, sem tekið var við Mið­jarð­ar­hafs­strönd Spánar, greinir Sjöman frá því að bát­ur­inn hafi nú farið yfir 3.000 sjó­mílur ein­göngu á sól­ar­orku.

Á einni 30 sjó­mílna sigl­ingu áætlar hann að hafa sparað um 46 banda­ríkja­dali í elds­neytis­kostn­aði með því að nýta ein­ungis orku sól­ar­innar.

Þar sem sól­ar­sell­urnar geta fram­leitt allt að 4.000 vött við bestu aðstæður notar bát­ur­inn oft lítið sem ekk­ert af orkunni sem geymd er í raf­hlöð­unum á meðan hann er á sigl­ingu.

Þegar hann liggur fyrir akk­eri á sól­ríkum dögum geta raf­hlöð­urnar jafn­vel hlað­ist aftur í 100 pró­sent á meðan eig­and­inn slakar á, syndir eða skoðar nær­liggj­andi strendur.

Smíðaði bátinn sjálfur

Sjöman hefur einnig birt sund­ur­liðun á kostn­aði við verk­efnið. Samkvæmt honum kost­aði raf­hlöðu­pakk­inn um 2.900 dali en raf­mót­or­inn á bil­inu 4.000 til 4.600 dali.

Sól­ar­sell­urnar kost­uðu um 860 dali og jafn mikið fór í hleðslu­stýr­ingar fyrir kerfið. Afgang­ur­inn af kostn­að­inum fólst í bygg­ing­ar­efni á borð við kros­svið, trefja­plast, epoxý, timbur og máln­ingu.

Hann áætlar að efn­is­kostn­aður við sam­bæri­legan bát sé um 20.700 dalir. Með verk­stæð­is­að­stöðu, verk­færum og raf­magns­kostn­aði gæti heild­ar­verðið numið á bil­inu 23.000 til 34.500 dölum.

Ef slíkur bátur væri hins vegar smíð­aður af fag­fólki gæti verðið orðið á bil­inu 69.000 til rúm­lega 92.000 banda­ríkja­dalir.

Sjöman segir verk­efnið sýna að venju­legt fólk geti smíðað hag­kvæma og lang­dræga sól­ar­orku­báta án þess að eyða stórfé. Hann vinnur nú þegar að hönnun enn stærri, 16 metra langs tví­bytnu sem verður einnig knú­inn ein­göngu af sól­ar­orku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé