Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Hrannar er grunaður um skotárásina í nótt – Dæmdur í 5 ára skilorðsbundið fangelsi 15 ára

Hrannar Fossberg Viðarsson
Hrannar Fossberg Við­ars­son

Maðurinn sem grunaður er um að hafa sært tvo einstaklinga í skotárás í Grafar­holti í nótt er Hrannar Fossberg Viðarsson, en hann hefur áður verið dæmdur fyrir manndrápstilraun. Þá hefur hann einnig verið dæmdur í fangelsi fyrir vopna­lagabrot, hótanir, umferðar­lagabrot og fíkniefna­brot. Hrannar verður 23 ára eftir 10 daga.

Hrannar hlaut fimm ára fangelsisdóm árið 2015 fyrir tilraun til manndráps, en hann hafði þá stungið annan mann fimm sinnum með hnífi með 21 sentimetra löngu blaði, og sérstak­lega hættulega líkams­árás með því að stinga annan mann af ráðnum hug í kviðinn. Hrannar var ekki nema 15 ára þegar brotin áttu sér stað og 16 ára þegar dómurinn var kveðinn upp. Refsingin var skilorðs­bundinn sökum ungs aldurs hans.

Þegar hann var 19 ára var hann dæmdur í fimm ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir vopna­lagabrot, hótanir, umferðar­lagabrot og fíkniefna­brot. Skilorðs­bundni dómurinn sem hann hlaut fyrir hnífa­árásirnar, var dæmdur upp en ekki bætt við refsinguna.

Árið 2017 var Hrannar svo hand­tekinn fyrir að ógna systur sinni með eldhús­hnífi á heimili móður þeirra. Sagði móðirin í gæslu­varðhalds­úrskurði yfir honum að hún teldi öruggt að hann hefði ráðist á systur sína ef hún hefði ekki gengið á milli þeirra.

Fólkið sem Hrannar er grunaður um að hafa skotið í nótt var flutt á slysa­deild til aðhlynningar. Samkvæmt tilkynningu frá Lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu eru þau ekki í lífshættu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Á þingferli sínum vakti hún athygli fyrir að flytja ræður með annað brjóstið bert.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu