Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið annan karlmann á þrítugsaldri í tengslum við skotárásina í Grafarholti í nótt. Í morgun var Hrannar Fossberg Viðarsson handtekinn á Miklubrautinni en hinn maðurinn var handtekinn eftir hádegi. Þá hefur lögreglan einnig lagt hald á bifreið og skotvopn sem grunur leikur á að hafa verið notuð við árásina.
Rúv
sagði frá þessu í dag.
Kona og maður voru flutt á slysadeilt í nótt eftir að hafa orðið fyrir skoti en eru þau ekki í lífshættu.
Lögreglan sendi frá sér tilkynningu um málið í dag þar sem hún segir málið mjög alvarlegt og að mikill viðbúnaður hafi verið hjá embættinu þegar tilkynningin barst í nótt. Sérsveit ríkislögreglustjóra hefur aðstoðað lögregluna við rannsókn málsins.
Lögreglan verst allra frekari frétta af málinu að sinni.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir