Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Nýársheiti Önnu Kristjáns: „Svo ætla ég að labba heilan helling þó án þess að detta “

Anna Kristjánsdóttir
Anna Krist­jáns­dóttir

Anna Krist­jáns ætlar sér að verða betri í spænsk­unni á nýja árinu, sem og ganga meira, án þess að detta.

Í fyrstu dag­bók­ar­færslu árs­ins 2024 segir Anna Krist­jáns­dóttir frá nýárs­heitum sínum. Eins og alþjóð veit býr Anna í Los Cristianos á Tenerife eða í Paradís eins og hún kallar eyj­una. En hvaða nýárs­heit eru það? Betri spænsku­kunn­átta er eitt þeirra en hún hefur not­ast við tungu­mála­smá­forritið Dualingo und­an­farin ár.

„Eins og ég hefi áður bent á hefi ég náð 77.000 stigum meira í Duolingo en ég hafði ætlað mér á árinu 2023. Ég hefi hugsað mér að fara í 260.000 stig á þessu nýja ári sem eru þá 48.000 stig alls eða 4.000 stig á mán­uði. Ég við­ur­kenni að spænskan hefur verið mér erfið, enda orðin 72 ára gömul, en ég reyni samt og þegar ég á erindi í versl­anir, reyni ég að beita spænsk­unni þótt versl­un­ar­fólkið svari mér oft á ensku. En það er þeirra vanda­mál að þau kunna ekki nóg í þessu eðla tungu­máli sem spænskan er.“

En þetta er ekki eina heitið hennar Önnu en hana langar í „kjól­inn fyrir jólin“ eins og svo margir sam­landar hennar.

„Á sjö mán­uðum lið­ins árs náði ég af mér 12 kílóum. Ætli ég reyni ekki að ná átta kílóum að auki á þessu ári og verð þá komin niður fyrir 80 kg fyrir næstu jól því ég skal í kjól­inn fyrir jólin. Svo ætla ég að labba heilan hell­ing þó án þess að detta eins og fyrir nokkru síðan, fara bara var­lega, en labba samt. Ég ætla samt hvorki að setja nein mark­mið í þeim efnum hversu mörg skref eða kíló­metra ég mun ganga á þessu nýja ári.“

Þá talar hún um þær utan­lands­ferðir sem skipu­lagðar eru á árinu en bendir svo á að það sé fjöl­margt sem ekki mun breyt­ast.

„Það stendur ekki til að kaupa nýjan bíl á árinu, ekki kaupa nýja íbúð, kannski nýjan kjól, hins­vegar reikna ég með að geta haldið áfram að tapa á fjár­fest­ingum með því að kaupa fleiri hluta­bréf á árinu og von­ast til að geta fórnað um tveimur millj­ónum í hluta­bréf á árinu verði ein­hver arður greiddur. Ekki veitir af ef íhaldið ætlar að fara að hækka skatt­ana á mér frá 1. jan­úar 2025 sem boðað hefur verið. Ef alvara verður af þess­ari fyr­ir­ætlun íslenskra stjórn­valda neyð­ist ég til að flytja lög­heim­ilið til Tenerife, enda lægri skattar hér en á Íslandi. Til að útskýra málið, þá er ég með óskráð lög­heim­ili á Íslandi, en með heim­il­is­festi á Tenerife, er með und­an­þágu frá greiðslu skatta á Spáni vegna greiðslu skatta minna á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027