Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Segir Sævald hafa snert leikmenn á óþægilegan hátt: „Ég ætlaði nú ekki að fara í rassinn á þér“

Sævaldur Bjarnason
Sævaldur Bjarna­son Mynd: Karfan.is

Sara Líf Boama, körfu­knattleiks­kona Vals og lands­liðsins steig fram í dag og sagði Sævald Bjarnason körfubolta­þjálfara, hafa valdið öllum leik­mönnum U-18 ára landsliðs kvenna kvíða og vanlíðan er hann þjálfaði liðið. Þá segist hún hafa orðið fyrir vonbrigðum með ákveðna aðila vegna viðbragða þeirra við færslu Sævalds.

Sara Líf Boama

Líkt og Mannlíf sagði frá í sumar, fór Sævaldur ekki með U-18 ára lands­liðinu á Evrópu­mótið í Grikk­landi en hann hafði þjálfaði liðið fram að keppninni. Var honum meinað að fara með liðinu vegna „óþægilegrar nærveru“ eins og það var orðað af KKÍ en kvartanir þess efnis höfðu borist samskipta­ráðgjafa íþrótta­samband Íslands.

Sjá einnig: Sævaldur hættur með U18 landslið kvenna: „Hann er ekki starfandi þjálfari, hann er í leyfi“

Í frétt Vísis um málið kemur fram í fundar­gerð stjórnar KKÍ að samskipta­ráðgjafi ÍSÍ hafi skilað áliti sínu um málið þar sem segir eftir­farandi: „Álit samskipta­ráðgjafa íþrótta- og æskulýðs­starfs vegna máls sem kom upp í sumar hjá U18 stúlkna­landsliðinu rætt.

Er álitið á þá leið að verk­ferlum var fylgt rétt af KKÍ sem og að þjálfari hafi ekki viðhaft neitt ólöglegt og mun því geta starfað sem þjálfari áfram, hvort sem er hjá félagi eða í afreks­starfi KKÍ.

Sævaldur setti fram færslu á Facebook eftir að álitið kom fram þar sem hann segir meðal annars: „Þetta mál hefur legið mjög þungt á mér og mínum nánustu síðustu mánuði og með þessari niður­stöðu lít ég svo á að málinu sé að fullu lokið og ég tel ekki ástæðu til að tjá mig eða elta þetta mál frekar. Ég vil þakka fjöl­skyldu minni kærlega fyrir stuðninginn og öllum þeim sem hafa sýnt mér skilning á þessum tímum.“

Í kjölfar færslu Sævalds birti Sara Líf eftir­farandi yfir­lýsingu á Facebook, þar sem hún beinir orðum sínum að sínum fyrr­verandi þjálfara:

„Vegna færslu sem umræddur þjálfari setti fram nýlega langar mér að létta á mér. Mér finnst það glatað að þú í fyrsta lagi neitar því sem þú gerðir og lætur svo eins og þú sért fórnar­lambið í stöðinni. Þú veittir okkur nánast öllum vanlíðan og kvíða í allt sumar. það er án djóks glatað að þú fáir ennþá að þjálfa fyrir Ísland.

Þú snertir okkur á óviðeigandi hátt og varst almennt mjög óþægilegur. Ég mun aldrei gleyma því hvernig þú lést mér líða, hvernig þú rass­skelltir mig bæði með lófanum og þjálfara­spjaldinu þínu en mest af öllu mun ég aldrei gleyma því þegar þú kemur aftan að mér eftir leik á stóra vellinum i Finnlandi rass­skellir mig tvisvar og segir svo glottandi og hlæjandi “nei, ég ætlaði nú ekki að fara í rassinn á þér”.

Þú áttir ekki skilið að hafa sloppið svona auðveldlega. Staðan þín í samfélaginu er sú sama og áður fyrr, þú hefðir átt að þjást miklu lengur eins og við allar. Eftir þennan póst sem þú settir á FB vitandi af þeim hlutum sem þú gerðir ! Ertu ekkert að grínast með þetta ? Datt þér ekki í hug að senda frekar fyrirgefningar póst eða eitthvað annað eða vera bara mannlegur og sjá að þú ollir okkur miklum sársauka. Það er ekki að ástæðu­lausu að þegar við sem sögðum frá að fólk hafi strax tekið til málanna. Þetta er sárt……… Enn og aftur sleppur gerandinn!!!!!!!!!!!!

Í lokin langar mér að taka fram hvað ég er vonsvikin með ákveðna aðila sem brugðust við þessu umrædda innleggi, því ég hélt að þau væru betur upplýst og berðu hag barna og ungra kvenna fyrir brjósti sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis