Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Geimfaraþjálfun í Stefánshelli: „CHILL-ICE hefur vakið athygli um allan heim“

Frá geimfaraþjálfuninni á Íslandi
Frá geim­fara­þjálfun­inni á Íslandi

Rannsóknar­hópurinn Chill-ICE á vegum ICEE Space (áður EuroMoonMars) hefur nú lokið geimfara­þjálfun í Stef­ánshelli í samstarfi við Space Iceland. Verk­efnið er hluti af hí­býla­hönnun fyrir tunglið og Mars, en Ís­land þykir heppi­legur staður fyrir til­raunina því hér er að finna helli sem á að svipa til þeirra sem eru á tunglinu.

Vegna hættu á að verða fyrir loft­steinum og vegna mikillar geislunar er ekki talið ráðlegt að vera á yfir­borði tunglsins í lengri tíma, því gætu hellar á tunglinu og Mars verið á­kjósan­legri fyrir hí­býli og rann­sóknar­stöðvar.

Samkvæmt Atla Þór Fanndal, framkvæmda­stjóra Space Iceland er þetta í þriðja sinn sem hópurinn kemur hingað til lands í samstarfi við Space Iceland, en árið 2020 kom hópurinn til Íslands í forathugun og fyrsta stig rannsókna fór fram í fyrra sumar.

 „CHILL-ICE II sem fór fram nú í ágúst er ítarlegri rannsókn en í fyrra þar sem gerð er tilraun til að þjálfa lengri veru á Tunglinu eða Mars þar sem geim­fararnir gera meira en aðeins að lifa af. Chill-ICE I, sem fór fram 2021, var þannig herming á fyrstu klukku­stundum og dögum geimfara en CHILL-ICE II skoðar dagana og vikurnar eftir að híbýli er risið og geim­fararnir þurfa að sinna sínum daglegu störfum,“ segir Atli.

Hópurinn saman stendur af rann­sakendum frá Hollandi, Póllandi, Bretlandi, Indlandi, Ítalú, Ástralíu, Banda­ríkjunum og Spáni. Bakvið CHILL-ICE verkefnið er fyrir­tækið ICEE SPACE, frumkvöðla­fyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknun, þróun og tilraunum fyrir áfram­haldandi könnun mannkyns á geimnum.

Í samtali við Atla Þór Fanndal, framkvæmda­stjóra Space Iceland, segir hann að aðkoma Space Iceland sé fyrst og fremst stuðningur og ráðgjöf líkt og stendur öllum vísinda­hópum, fyrir­tækjum og stofnunum með tengsl við vaxandi geimiðnað til boða. Atli er mjög ánægður með leiðangurinn og segir: „Space Iceland óskar ICEE SPACE til hamingju með velheppnaðan rannsóknar­leiðangur til Íslands. Það er, eins og alltaf, mikill heiður fyrir Space Iceland að koma að verkefnum sem þessum. Space Iceland var stofnað með þann eina tilgang að ýta undir þátttöku Íslands í geim­vísindum og auka tækni­tilfærslu geim­vísinda- og tækni hér á landi. CHILL-ICE hefur vakið athygli um allan heim. Þar á meðal á Lunar and Planetary Science Conference 2021.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Þrír skipverjar létust þegar Jökull ÞH 299 sökk.
Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning