Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Guðmundur Hrafn fær Vorstjörnuna: „Ég er náttúrlega orðlaus, stoltur og sæll“

Guðmundur Hrafn var hrærður þegar hann tók við Vorstjörnunni ásamt dóttur sinni, Arlet Sögu Mynd/aðsend
Guð­mundur Hrafn var hrærður þegar hann tók við Vor­stjörn­unni ásamt dóttur sinni, Arlet Sögu Mynd/aðsend

Vorstjarnan, styrktar­sjóður fyrir hagsmuna- og réttlætis­baráttu almennings, veitti í dag Guðmundi Hrafni Arngríms­syni, formanni Samtaka leigjenda, Vorstjörnuna, viðurkenningu fyrir óeigingjarnt starf í þágu leigjenda.

Guðmundur Hrafn hefur vakið athygli fyrir skelegga framgöngu og málflutning á þessu ári. Hann hefur víða farið og skilgreint stöðu þeirra á þann hátt að óréttlætið verður auðskilið öllum. Auk greina­skrifa og viðtala hefur Guðmundur Hrafn haldið úti þættinum Leigjandinn á Samstöðinni, þar sem hann fjallar um leigu­markaðinn og réttindi leigjenda og ræðir við leigjendur, sérfræðinga og baráttu­fólk hér heima og erlendis. Auk þessa hefur Guðmundur Hrafn endur­reist Samtök leigjenda ásamt öðru stjórnar­fólki og sjálfboða­liðum, staðið m.a. fyrir fundum og Degi leigjenda, útbúið reiknivél fyrir viðmiðunar­verð húsleigu og safnað að félaginu á annað þúsund félags­manna. Í haust munu samtökin standa fyrir norrænu leigu­þingi á Íslandi ásamt leigjenda­samtökum á Norður­löndunum.

„Megin­verkefni Vorstjörnunnar er að styrkja félög og samtök sem berjast fyrir hagsmuna­málum almennings og þeirra hópa sem ekki standa sterkt fjárhags­lega,“ segir Védís Guðjóns­dóttir, formaður stjórnar Vorstjörnunnar. „En þótt skipulags starf almennings og samtaka­máttur fjöldans sé lykil­atriði barátt­unnar þá vitum við líka að einstaklingarnir skipta máli, frumkvæði þeirra og seigla. Það er of lítið gert af því að heiðra fólk sem gefur tíma sinn, vit og dugnað til að reka réttlætis­baráttu alþýðunnar. Við viljum því veita Vorstjörnuna einstaklingum sem hafa haft áhrif á baráttuna á sama tíma og við viljum efla baráttuna með því að styrkja félög og samtök með fé.“

Védís segir að sé sannarlega við hæfi að veita Guðmundi Hrafni fyrstu Vorstjörnuna. „Málefni leigjenda hafa verið meira í deiglunni í ár en um langan langan tíma,“ segir hún. „Húsnæðis­málin voru aðalmál kosninga­baráttunnar fyrir sveita­stjórnar­kosningarnar í vor og það var ekki síst fyrir málflutning Leigjenda­samtakanna og ekki síst Guðmundar Hrafns.“

Verðlauna­gripinn Vorstjörnuna gerði lista­konan Hulda Hákon. Vorstjarnan er gullin stjarna mótuð af spýtna­rusli.

„Ég er nátt­úrlega orðlaus, stoltur og sæll,“ sagði Guðmundur Hrafn. „Mér verður hugsað til þeirra sem hafa drifið áfram baráttu leigjenda í gegnum tíðina en fengu kannski aldrei sérstakar þakkir fyrir. Samfélagið þakkaði Jóni frá Pálmholti til dæmis aldrei fyrir hans stórkost­lega framlag og ekki heldur fólkinu sem stofnaði Samtök leigjenda eftir hrun og vann frábært starf; fólk eins og Ásta Hafberg, Jóhann Már Sigurbjörnsson og ekki síst Hólmsteinn Brekkan. Það er margt fólk sem kyndir elda barátt­unnar, vinnur verk sín í hljóði og án launa og fær aldrei viðurkenningu fyrir. Ég tek við Vorstjörnunni fyrir hönd þessa fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Eftir að hafa gert við klakavélar segist einn þátttakandi aldrei hafa pantað klaka aftur.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi