Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Myrti elskhuga fyrrum eiginkonu sinnar á Sæbraut: „Hann ætlaði greinilega að ganga frá okkur“

Laust fyrir hádegi þann 29 maí árið 2007 barst lögreglu tilkynning sem skotárás á Sæbraut í Reykjavík. Síðar kom í ljós að þar var um 38 ára gamlan árásar­mann sem skaut mann á sama aldri með riffli. Fórna­lambið reyndi að flýja af vettvangi á sendibíl en lést stuttu síðar af sárum sínum. Ástæða árásinnar var sögð vera sú að hinn myrti hafi stuttu áður hafið ástar­samband við fyrr­verandi eiginkonu árásar­mannsins.

„Lögreglu barst tilkynning klukkan 11.42 um að maður hefði orðið fyrir árás á gatnamótum Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar og lægi særður við sund­laugarnar í Laugardal. Lögregla fékk strax upplýsingar um að um skotárás væri að ræða og að hinn særði væri með skotsár vinstra megin í brjóstholi,“ sagði í frétt Frétta­blaðsins.

„Það sá ekkert á manninum þegar ég tók hann upp í en svo fór blóðið að fossa úr honum í stríðum straumum. Þegar ég leit upp og sá árásarmanninn hlaða riffilinn fyrir framan bílinn áttaði ég mig á því hvað hafði gerst. Hann ætlaði greini­lega að ganga frá okkur. Ég gaf í skíthræddur, og var alveg sama þótt ég hefði keyrt yfir hann í leiðinni.“ sagði Eiríkur Eiðsson sendibílstjóri í samtali við Fréttablaðið eftir morðið. Eiríkur var á vettvangi árásarinnar og kom að fórna­lambinu stór­slösuðu. Hann tók manninn upp í sendibíl sinn og ók með hann að Laugar­dalslaug þar sem hringt var á sjúkra­bifreið. Maðurinn lést á slysa­deild Land­spítalans.

Hinn myrti var að skipta um hjólbarða á bíl sínum þegar árásar­maðurinn kom að honum og skaut einu skoti úr 22 kalibera riffli í brjóst mannsins. Árásar­maðurinn flúði á Þingvelli þar sem hann svipti sig lífi með morð­vopninu. Hann skyldi eftir sig bréf sem ætlað var lögreglu og staðfesti hann þar tengsl mannana og játaði morðið. Hvorugur mannana hafði áður komið við sögu lögreglu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim