Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra: „Ég get verið svolítil frenja”

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra

„Örlögin hafa dálítið leikið sér að mér af því ég var dálítið æst yfir því sem ung kona hve vonlausir allir stjórn­málamenn væru. Þegar stjórn­málamenn komu í mennta­skólann minn var ég fussandi og sveiandi yfir þessu fólki. Það er mátulegt á mig að vera núna einn af þeim,” segir Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra í viðtali við Mannlíf. 

Katrín er spurð um upphaf þess að hún lagði inn á braut stjórn­málanna sem hún hafði áður hálfgerða skömm á. Það var virkjanamál sem kveikti áhugann sem á endanum kom henni í sjálfan forsætis­ráðherra­stólinn.  

„Það er örugglega baráttan gegn Kára­hnjúkum og það mál allt,” segir Katrín um ástæðu þess að hún lagði fyrir sig stjórn­málin. 

Katrín er ung að árum, 45 ára, en á þegar að baki langan og farsælan feril sem alþingis­maður og síðan ráðherra. Aðspurð um baráttuna gegn Kára­hnjúka­virkjun hlær hún og rifjar upp þegar hún var aktívisti og stóð með mótmæla­spjald á Austur­velli. Hún segist strax hafa viljað leggja nátt­úrunni lið sitt. Það hafi verið mikil­vægast. 

Katrín er spurð að því hvort því fylgi ekki mikil skerðing á persónu­frelsi að starfa sem forsætis­ráðherra þegar allra augu hvíla á henni, hvar sem hún fer. 

„Öll störf hafa kosti og galla. Það er ég alin upp við. Þegar maður var að kvarta í gamla daga yfir því að það væri leiðinlegt eða ekki nógu gott í einhverju starfi þá sögðu foreldrar mínir gjarnan að þetta snerist meira um  mitt viðhorf en sjálft starfið. Svo hefur maður val um það hversu mikið maður lætur pólitíkina skerða sitt frelsi. Ég hef haldið mig við það að sinna þessu venjulega í lífinu eins og allir gera”. 

Katrín er ekki með háan lífsstíl. Margir sjá fyrir sér að fólk í æðstu stöðum búi stórt og lifi hátt. Katrín býr í fjölbýlis­húsi í Vestur­bænum og berst ekki mikið á. Hún segir það vera meðvitað að vera með báða fætur á jörðinni. 

„Já, ég bý í minni blokk. Ég hef rosalegan áhuga á fólki. Ég sé stundum að fólk fer ekkert sérstak­lega vel út úr því að vera manneskja í póltík. Það er ákveðið markmið hjá mér að þegar ég hætti í stjórn­málum þá sé ég ennþá sama manneskjan og ég hef alltaf verið. Það er eiginlega sjálfstætt markmið”. 

Með harðan skráp

Katrín segist ekki hafa orðið fyrir alvarlegu áreiti. Hún er vön að lifa sínu hefð­bundna lífi í Vestur­bænum án þess að þurfa lífverði. 

„Það sleppur engin í minni stöðu alveg við áreiti. Oftast er þetta allt í góðu og aðeins fólk sem þarf að tala, þó það sé æst. Ég hef alveg lent í leiðinlegum hlutum en  kannski er ég búin að byggja upp harðan skráp. Hér heima hef ég ekki þurft að vera með lífverði sem eru algjör forréttindi. Alltaf þegar ég fer til útlanda í embættis­erindum eru settir á mig 2-5 lífverðir. Það er örugglega erfitt að vera alltaf í þeirri stöðu að vera með fólk að fylgjast með sér. Það furðulegasta sem ég hef lent í var þegar ég fór að hlaupa í Central Park New York. Það varð uppi fótur og fit þegar ég ákvað þetta. Svo hófst hlaupið. Þá var einn lífvörður á undan mér og tveir á eftir mér. Svo ók bíll sem ók löturhægt með mér. Ég hugsaði með mér hvert yrði nú kolefnis­fótspor þessa hlaupa­dags og allt þetta umstang vegna einhverrar konu sem enginn í Ameríku þekkti”. 

Ráðherraveikin

Stundum er talað um ráðherra­veiki. Það hugtak nær utan um þá depurð sem fylgir því að missa völd. Katrín kvíðir því alls ekki að missa ráðherra­stólinn og verða óbreyttur þingmaður. 

„Ég hef hætt að vera ráðherra. Ég spurði Valgerði Sverris­dóttur, sem þá hafði verið ráðherra Framsóknar­flokksins, hvort allir hættu að vilja tala við mann þegar maður hættir. Hún sagði að það væri dálítið þannig en þá skipti mestu að vera mjög upptekin og þá gengi þetta yfir. Ég gerði nákvæmlega þetta og eftir nokkrar vikur var ég komin í nýtt hlutverk”. 

Katrín hefur haldið saman ríkis­stjórn þriggja ólíkra flokka. Til þess þarf væntanlega klókindi og lipurð. Katrín er spurð um það hvernig stjórn­andi hún sé. Hvað er undir góðlegu yfir­bragðinu?

„Ég get verið svolítil frenja. Það verður ekki af mér tekið. En ég hika ekki við að taka ákvarðanir ef á þarf að halda. En ég er ekkert að stressa mig yfir einhverjum status. Einhvern tímann var mér sagt af fræðingi í stjórnun að ég væri jafningja­stjórnandi”. 

Hlustar á aðra

Fyrir 10 árum eða svo var óhugsandi að stjórnmálaöfl lengst til hægri og vinstri ynnu saman í ríkis­stjórn. Þótt einhverjir innan Sjálfstæðis­flokks og Vinstri grænna hefðu átt sér þann draum þótti það vera fráleitt. En svo gerðist það fyrir tilstilli Katrínar og hennar nánustu samstarfs­konu, Svandísar Svavars­dóttur heilbrigðis­ráðherra. Katrín fellst á að það snúist um lipurð að komast í gegnum kjör­tímabil með þessi öfl innanborðs. 

„Ég er tilbúin að hlusta á aðra. Ég lít ekki í spegilinn á hverjum morgni þegar ég vakna og hugsa að ég hafi öll svörin. Ég er alveg til í að hlusta á aðra. Þó ég hafi mínar hugsjónir sem ég byggi á mínum gildum þá veit ég að það eru ekki allir þar. Það skiptir mig máli að geta talað við það fólk. Það skiptir líka samfélagið máli að þetta fólk geti talað saman”. 

Katrín er brosmild kona. Meira að segja svo að hún hefur verið skömmuð fyrir að vera of glaðleg. Hún er spurð um lundar­farið. Verður hún aldrei reið. 

„Það fer ekki framhjá neinum þegar ég reiðist. Ég er ekki pókerfeis. Mig dreymir samt um að vera þessi þögla sterka týpa sem enginn veit hvað er að hugsa. Það verður kannski seinna,” segir hún. 

Traust samstarf

Lykilinn að samstarfi Sjálfstæðis­flokks og Vinstri grænna er að finna í vináttu Katrínar annars vegar og Illuga Gunnars­sonar og Bjarna Benedikts­sonar. Elstu menn muna að Illugi og Katrín voru saman með sjónvarps­þátt á þeim sáluga Skjáeinum. Katrín fellst á þessa skýringu og segir að traust ríki milli sín og Bjarna. 

„Það skiptir gríðar­legu máli í þessu samstarfi að fólk treysti hvert öðru”. 

Hún viðurkennir að ríkis­stjórnar­samstarfið sé ekki einfalt. 

„Það er flókið að vinna með ólíkum flokkum. Ég var áður í ríkis­stjórn með Samfylkingunni en nú erum við með Sjálfstæðis­flokknum og Framsóknar­flokknum. Allar ríkis­stjórnir eru svolítið eins og mannfræði­verkefni. Þú þarft að skilja flokk sem er með ólíka menningu. Maður þarf að átta sig á því hvernig maður tekur á málum”. 

Ekkert kosningabandalag

Einhverjir hafa haldið því á lofti að það sé kosninga­bandalag á milli ríkis­stjórnar­flokkanna þriggja. Katrín segir það af og frá. 

„Það er auðvitað ekki kosninga­bandalag. Það var á sínum tíma stór ákvörðun fyrir okkur að ganga til þessa samstarfs. Ástæðan fyrir því var sú að við Svandís vorum í þeirri vinnu og baklandið okkar, grasrótin, var til í þetta vegna stjórnar­sáttmálans. Fólk sá að þarna voru mörg góð mál sem við höfðum barist lengi fyrir og var til í að láta á þetta reyna. Áframhald samstarfsins mun alltaf hanga á því hvað um semst og auðvitað hvernig við komum út úr kosningum. Við komum vel út síðast og núna verðum við að meta stöðuna eftir því hvað kemur upp úr kössunum ”. 

Einhverjir töldu að það yrði pólitískt sjálfsvíg fyrir VG, róttækan vinstri flokk, að ganga til samstarfs við Sjálfstæðis­flokkinn. Vísað var til fortíðar þar sem hver samstarfs­flokkurinn af öðrum visnaði upp í slíku samstarfu. Annað virðist vera að koma á daginn. VG stendur ágætlega í könnunum. 

„Ég tók við sem formaður, snemma árs 2013 og leiddi hann í kosningum þá um vorið eftir stjórnar­samstarf með Samfylkingu. Þá töpuðum við helmingi af okkar fylgi þannig að ég veit vel að maður fer ekki í stjórnar­samstarf til að verða vinsælastur í bekknum. Ég vona að við skilum þessu fylgi í höfn og er bjartsýn á það og tel að fólk kunni alveg að meta það sem við höfum verið að gera”. 

Forsætis­ráðherra­stóllinn er eftir­sóttur. Lilja Alfreðs­dóttir menntamála­ráðherra sagði í fjöl­miðlum að hún teldi að Framsóknar­flokkurinn væri í lykil­stöðu til að leiða næstu ríkis­stjórn. Sigurður Ingi Jóhannsson væri þannig í dauðafæri með að verða forsætis­ráðherra. Katrín hefur skilning á þessu sjónarmið og segir eðlilegt að flokkar horfi til forsætis­ráðuneytisins. 

„Við höfum talað skýrt og erum tilbúin að leiða næstu ríkis­stjórn. Ég geri engar athuga­semdir við að við séum ekki ein um hituna”. 

Núningur

Núningur hefur verið um heilbrigðis­málin á milli stjórnar­flokkanna. Þingmenn lengst til hægri hafa átt í útistöðum við Vinstri græna sem hafa viljað efla opinbera hlutann af heilbrigðis­kerfinu. Hægrimenn hafa viljað efla einka­framtakið. Átökin hafa staðið um rekstrar­form í heilbrigðis­kerfinu. 

„Þetta hefur ekki verið eðlilegt ástand þar sem við fengum heims­faraldur á miðju kjör­tímabili. Þetta hefur verið algjört álagspróf á heilbrigðis­kerfið. Svandís hefur staðið sig gríðar­lega vel í að benda á að við þurfum núna að horfa til þessa opinbera hluta heilbrigðis­kerfisins. Það er ekkert launungarmál að það var löngu tímabært að styðja betur við heilsu­gæsluna og spítalann og heilsu­gæslu víða um land. Hún hefur gert það og aukið framlög og farið í að byggja nýjan spítala. Þá hefur hún farið í að lækka kostnað vegna sjúklinga sem er risastórt vinstri jöfnunarmál. Svandís hefur skilað mjög góðu verki á kjör­tímabilinu, þrátt fyrir allt sem hefur gengið á”. 

Ekki ESB

Aðildar­umsókn að ESB er í sama frosti og hún var þegar Samfylking og VG ákváðu að sækja um og setja málið í þjóðar­atkvæði. Katrín var á meðal þeirra þingmanna VG sem studdu að sækja um aðild þótt þeir væru í rauninni á móti því. Af hverju í ósköpunum féllst hún á umsóknina? 

„Sjálf er ég þeirrar skoðunar að við eigum ekki að sækja um aðild að ESB núna. En ég tók hins vegar þátt í því á sínum tíma að sækja um. Þá var sú umræða hátt uppi í samfélaginu að þetta væri það mikil­vægasta að gera eftir hrun. Ég var þeirrar skoðunar að þjóðin fengi einhvern samning að kjósa um í þessu máli. Ég féllst á það þótt ég væri með varann á varðandi aðild. Fyrir Samfylkinguna var þetta stóra málið í kosningunum. Í dag er ég á þeirri skoðun að okkur hafi farnast mjög vel utan Evrópu­sambandsins”. 

Viðreisn hefur sett það má á oddinn að þjóðin fái að greiða atkvæði um endanleg slit á umsóknar­ferlinu eða framhald þess. 

„Áður en til þess kemur þurfum við að fá fram hvar meirihluti þingsins stendur í þessu máli. Ég legg mjög mikið upp úr öflugu samstarfi við Evrópu­þjóðir og hef ræktað það sem forsætis­ráðherra. Ég er ekki á þeirri skoðun að það gagnist íslensku samfélagi að ganga í ESB,, hvað þá að ganga inn í eitthvert mynt­bandalag”. 

Katrín segir að Samfylking og VG hefðu betur spurt þjóðina strax árið 2009 hvort hefja ætti aðildar­viðræður. Ef þing­meirihluti myndist fyrir aðildar­umsókn verði skynsamlegt að spyrja þjóðina áður en lengra yrði haldið. 

„Það verður ekki farið aftur af stað í þetta nema með umboði þings og þjóðar”. 

Katrín segir að fátækt sé áhyggju­efni í íslensku samfélagi. Þó hafi ríkis­stjórnin unnið vel að málum þeirra sem minnst mega sín. Hún nefnir hlutdeildar­lánin og bætt barna­bótakerfi. 

Fjármagns­tekju­skatturinn er næstur á dagskrá sem jöfnunar­tæki. Katrín er spurð hvort Sjálfstæðis­flokkurinn verði ekki tregur í taumi þar. Hún segist ekki hafa spurt Sjálfstæðis­flokkinn. 

Ráðherraveikin

Kenningar eru uppi um að Samfylkingin sé komin vinstra megin við VG. Róttæknin hafi minnkað og flokkurinn hafi færst nær miðjunni og sé orðinn umburðar­lyndari

„Við höfum ekki færst inn á miðjuna en það getur vel verið að við séum orðin umburðar­lyndari,” segir hún. 

Því er haldið fram að VG hafi mildast í afstöðu sinni gegn virkjunum og fiskeldi. Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður VG í Norðvestur­kjördæmi var til dæmis stuðnings­maður þeirrar umdeildu Hval­árvirkjunar í Árnes­hreppi og hefur sömuleiðis staðið með fiskeldi í sjó. 

Nei, við Hvalárvirkjun

„Hval­árvirkjun er gott dæmi um að ramma­áætlun sem þingið samþykkir en snýst alltaf um samanburð á virkjana­kostum. Síðan þegar virkjunin er útfærð er hún orðin miklu stærri en hún var þegar þingið skipaði henni í nýtinga­flokk. Fólk var ekki alveg sammála um þessa virkjun í hreyfingunni en ég vona að hún verði ekki að veruleika. Ég hef rosalega sterk tengsl við þetta svæði af því maðurinn minn er frá Svanshóli í Bjarnar­firði á Ströndum. Þessi virkjun hefði ekki orðið til góðs fyrir þetta einstaka svæði”. 

Innan VG eru skiptar skoðanir á fiskeldi í sjó. Þar er horft til mengunar og erfða­blöndunar. Katrín segir að hreyfingin sem slík sé á ekki móti fiskeldi. 

„Við náðum því fram í stjórnar­sáttmála að sett voru lög sem tryggja hvata til að færa fiskeldi upp á land. Þá er tryggt að fiskeldið sé byggt á eins góðum gögnum og hægt er og við viljum gæta ítrustu varúðar. Ég veit að þetta er umdeilt í okkar hreyfingu en um leið er um að ræða mikilvæga atvinnu­sköpun. Það er einkenni minnar hreyfingar að fólk er ófeimið við að takast á um hlutina”. 

VG glímdi lengi vel við innri átök. Frægt var með villikettina á sínum tíma þar sem hver höndin var upp á móti annarri. Við upphaf kjör­tímabilsins hætti tveir þingmenn í VG. Andrés Ingi Jónsson og Rósa Brynjólfs­dóttir gátu ekki hugsað sér að styðja ríkis­stjórnina. Katrín viðurkennir að það hafi verið ákveðið áfall. 

„Rósa var í hreyfingunni lengi, allt frá árinu 2003. Við komum inn á svipuðum tíma. En í dag er rosalega góður andi í hreyfingunni en það er ekki bara mér að þakka. Við héldum landsfund um síðustu helgi og þar fann maður þennan góða anda. Það er í raun mjög magnað hve góð stemmingin er. Ég hef trú á því að það sé hollt að virða allar skoðanir. Hjá okkur hikar fólk ekki við að tala upphátt og greiða atkvæði gegn málum, jafnvel þótt það sé bara einn á móti. Það skapar svo góða stemmningu í fram­haldinu þegar farið er að vinna úr málum og fólk fer ekki út í fýlu”. 

Katrín segist ekki taka því illa þótt einhver sé ósammála. 

„Það hef ég lært af mér reyndara fólki að formaðurinn á ekki að taka því illa þótt einhver sé ósammála honum”. 

Mögnuð langamma

Skúli Thoroddsen, þingmaður sýslu­maður og ritstjóri var langafi Katrínar. Það gustaði vel um Skúla á ferli hans og deilurnar um skokallað Skurðsmál skóku samfélagið og kostuðu hann embættið á sínum tíma. 

Katrín segist þekkja sögu langafa síns og ekki síður langömmu sinnar, Theodóru Thoroddsen, sem hún hafi gert að fyrirmynd sinni. 

„Hún var mögnuð kona sem eignaðist fjölda barna. Langafi minn dó snemma og hún varð ekkja. Þegar hún varð fimmtug fór hún að yrkja og reykja og sást ekki borða annað en súkkulaði. Hún lifði svo fram á tíræðis­aldur. Ég kynntist henni auðvitað ekki en mamma lýsti henni. Hún safnaði stöðugt grjóti og bar inn á heimili sitt. Þessa áráttu hef ég líka. Ég er stöðugt með grjót í vasanum sem ég set hér og þar um heimilið. Gunnar, maðurinn minn, er stöðugt að taka þetta grjót og koma því niður í geymslu. Svo færi ég þetta upp aftur. Þetta hef ég frá langömmu”. 

Katrín á sér fleiri fyrir­myndir í lífinu en langömmu sína. Hún er spurð um pólitískar fyrir­myndir. 

„Það eru örugglega ellimerki að nú er ég dottin í það að lesa allskonar ævisögur. Ég var að lesa ævisögu breska forsætis­ráðherrans Clement Attlee  sem var skammaður fyrir að vera umburðar­lyndur og mjúkur. Eigi að síður náði hann ótrúlegum árangri sem forsætis­ráðherra og byggði meðal annar upp NHS heilbrigðis­kerfið. Hann fékk svo ekki að hætta þegar hann vildi og endaði með magapínu sín seinustu ár í embætti. Hérlendis á ég margar fyrir­myndir. Þegar ég var að byrja í pólitík horfði ég til Ingibjargar Sólrúnar Gísla­dóttur og Kolbrúnar Halldórs­dóttur, þessarra flottu sterku kvenna. Svo horfði ég auðvitað til leiðtoga vinstri manna svo sem Steingríms J. Sigfús­sonar og Svavars Gests­sonar. Svo studdi ég Ólaf Ragnar Grímsson á sínum tíma í forseta­embættið”. 

Aftursæti Steingríms

Katrín er arftaki Steingríms J. sem formaður. Stein­grímur stofnaði VG á sínum tíma og var lengst af óumdeildur leiðtogi. En þótt hann hætti sem formaður þá sat hann áfram á þingi. Hvernig var að hafa fyrr­verandi formann í aftur­sætinu?

„Það höfðu margir rosalegar áhyggjur af þessu og ég líka. Það er gaman að segja frá því. Ég hugsaði með mér hvernig ég ætti að gera þetta. Nú væri hann búinn að vera aðal­karlinn og ætlaði svo bara að vera í velferðar­nefnd Alþingis. En hann gerði þetta ótrúlega vel og samstarf okkar var gott sem fyrr”. 

Stein­grímur og Katrín eru gjör­ólíkir stjórn­málamenn. Hann var oft kjaftfor í þinginu svo eftir var tekið. Katrín er aftir á móti prúð­mennskan uppmáluð. Hún er spurð um ólíkan stíl þeirra. 

„Jú, hann átti það til að vera stóryrtur. Ég er bara alin þannig upp að ég á erfitt með stóryrði. En við erum góðir vinir og ég fór meira að segja og heimsótti hann í sumar. Það var hápunkturinn á sumar­leyfi drengjanna minna að fá að vera með honum í sveitinni. Hann er skemmtilegur og það er gaman að fara með honum um landið”. 

Grúppía Tony Blair

Katrín er spurð um tengsl hennar við pönk­hljóm­sveitina Tony Blair. Einhver hélt því fram að hún hefði verið hljómborðs­leikari, 

„Nei, þú hefur fengið rangar upplýsingar. Ég var grúppía hljóm­sveitarinnar Tony Blair. Ég var ekki í hlómsveitinni en fylgdi henni. Næsta sem ég hef komist því að vera í hljómsveit var þegar ég lék í myndbandi hjá Bang Gang”.  

Hvað hefur að mati forsætis­ráðherrans  tekist best hjá ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur? Katrín hugsar sig um og segist vera heilt yfir ánægð. 

„Það að hafa lengt fæðingar­orlofið, stytt vinnu­vikuna og þrepa­skipt tekju­skattinum eru allt risamál fyrir íslenskan almenning”. 

Katrín reyndi að hreyfa við stjórnar­skrár­málinu. Hún lagði fram þingmanna­frumvarp en hafði ekki árangur sem erfiði. 

„Ég kláraði ekki málið. Þetta var ekki ríkis­stjórnarmál en ég reyndi að hreyfa við því máli. Stjórn­málin þurfa aðeins að velta þessu fyrir sér, ekki bara ég. Snemma í ferlinu fékk ég þau skilaboð að sumir flokkar vildu ekkert gera nema það yrði nánast orðréttar tillögur stjórnlaga­ráðs. Það verður að segjast eins og er að það er töluverður minni­hluti sem vill fara í það verkefni að ná þessum breytingum fram í áföngum. Það eru mér vonbrigði. Ég var að vonast eftir breiðri samstöðu. Þar sem mál af þessum toga er seinasta málið í gegnum þingið gefur það hvaða flokki sem er neitunar­vald í gegnum málþóf. Ég sá ekki fyrir mér að það næðist samstaða um einstakar greinar, allavega ekki þannig að það færi í gegnum þingið. Ég mun reyna að ná í gegn þeirri breytingu að það megi breyta stjórnar­skrá á þriðja ári kjör­tímabils en það taki ekki gildi fyrr en eftir kosningar. Það myndi aðeins lækka spennu­stigið hjá okkur stjórn­málamönnum í þessu máli. En ég missi ekkert móðinn”. 

Katrín er útivistar­kona. Hún nýtur þess að hlaupa eða fara í fjall­göngur til að slaka á frá argaþrasi stjórn­málanna. 

„Þegar maður eldist fer maður að finna meira fyrir því að maður er líkami líka. Svo les ég líka til að slaka á og er með fjöl­skyldunni”. 

Það er alkunna að mikið álag fylgir því að vera stjórn­málamaður í æðstu stöðum og fólk brennur gjarnan hratt upp. Hvernig er heilsa Katrínar. 

„Ég held að heilsan sé ansi góð. En ég hef alltaf verið með ofnæmi og asma. Ég hef aldrei verið þessi ímynd hreystinnar. Fyrir mér er það stórkostlegt afrek að hlaupa 10 kílómetra þá líður mér eins og maraþon­hlaupara. 

Meðvitaðir krakkar

Við rifjum upp gönguferð á Úlfars­fell á vegum Ferða­félags Íslands. Illugi, sonur Katrínar, var með í för. Hann stoppar og spyr móður sína hvað hann eigi að gera við tyggjóið sitt. Hún réttir fram lófann og stingur því í vasann. Þetta er minnis­stætt vegna þess að margir krakkar hefðu spýtt út úr sér tyggjóinu en ekki hugsað um umhverfið. 

„Ég vona að ég ali þá vel upp. Dren­girnir mínir þrír eru öflugir og við ræðum stundum um pólitík. Þeir hafa rosalega sterka sýn á umhverfis­málin sem ég held reyndar að eigi við um marga krakka í dag”. 

Hvernig er verka­skipting á heimili forsætis­ráðherrans. 

„Ég er svona átaks­verkefnis­konan sem þríf allt fyrir jólin. Þá verð ég alveg tjúlluð. En Gunnar er sá sem sér um þetta daglega”. 

Katrín er á hátindi ferils síns, aðeins 45 ára. 14 ár á þingi. Hvað ætlar hún að vera lengi í pólitík og hvað tekur svo við. 

„Ég held áfram á meðan ég brenn fyrir því og einhver vill kjósa mig. Þegar ég hverf úr stjórn­málunum hverf ég aftur á vit bókmennt­anna. Þá skrifa ég kannski bækur eða hjálpa öðrum við að skrifa eins og ég gerði áður en ég fór í stjórn­málin”. 

Viðtalið í heild sinni er á hlað­varpinu Mann­lífinu með Reyni Trausta­syni

Þú getur lesið viðtalið við Katrínu forsætis­ráðherra í heild sinni hér í brakandi fersku helgar­blaði Mannlífs eða flett blaðinu hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Viðtal

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á