Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

María segist fara á hausinn ef ríkið styrki ekki N4 – Svona var bréf hennar til mágs síns

María Björk Ingvars­dóttir, framkvæmda­stjóri N4 á Akureyri, lætur í það skína að loka þurfi sjónvarps­stöðinni norð­lensku um áramótin hljóti hún ekki fjár­stuðning frá ríkinu. Hún fékk vilyrði 100 milljóna fjölmiðla­styrk frá mági sínum á Alþingi. Mágur hennar, fram­sóknar­maðurinn Stefán Vagn Stef­ánsson, situr ekki aðeins á þingi heldur situr hann í meirihluta fjár­laganefndar sem ætlaði að veita mágkonunni styrkinn myndar­lega.

María Björk sendi styrk­beiðnina til fjár­laga­nefndarinnar 1. desember síðastliðinn en hana má ekki finna á vef þingsins. Milljónirnar hundrað eru ætlaðar fyrir sjónvarps­stöðina á næsta rekstarári. N4 er meðal ann­­ars í eigu KEA, Kaup­­fé­lags Skag­­firð­inga og Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar. Stærsti eig­andi Síld­­ar­vinnsl­unnar er Sam­herji, eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins sem er með höf­uð­­stöðvar á Akur­eyr­i.

Sjá einnig: María fékk 100 milljóna fjölmiðla­styrk frá mági sínum á þingi: „Ég brenn fyr­ir þessu starfi!“

Athygli vekur í erindi Maríu til mágs síns og annarra nefndar­manna í fjár­laganefnd þingsins að þar segir hún Samherja og önnur fjársterk fyrirtæki á Norður­landi hafa snúið baki við sjónvarps­stöðinni og hætt að styrkja hana fjárhags­lega. Sömu sögu sé að segja um sveitar­félögin í lands­fjórðungnum.Í bréfinu til þingsins gefur María það jafnframt til kynna að ríkis­styrkurinn sé lífs­nauðsyn­legur

„

til þess að N4 þurfi ekki að loka um áramótin.“

Hér fyrir neðan má sjá bréf Maríu Bjarkar til fjár­laganefndar Alþingis sem Stundin birti:

„Til fjár­laganefndar Alþingis

Ég undir­rituð, María Björk Ingva­dóttir, kt. 201259-4449, framkvæmda­stjóri N4 ehf. óska hér með eftir styrk til N4 fjöl­miðils, til að halda úti fjöl­miðlun, þáttagerð og frétta­miðlun, af lands­byggðunum árið 2023.

Óskað er eftir 100 millj. króna styrk. N4 hefur verið leiðandi í sjónvarpi frá lands­byggðunum síðan 2015 , gert milli 350 – 400 þætti á ári, rætt við tugþúsundir, documenterað sögu íbúanna síðan 2008, fyrst eingöngu Akureyringa og nærsveit­unga en frá 2012 og 2013 höfum við bætt öllum öðrum lands­fjórðungum við.

Áhorfs­mælingar í október sl. sýna að tæplega 6 milljón sinnum hefur verið náð í þætti N4 í tíma­flakki , heimasíðu og á veitum Símans og Vodafone síðustu tæpu 2 árin, þá er ekki talið með áhorf í línulegri dagskrá. Eftir­spurn eftir íslensku efni frá lands­byggðunum hefur marg­faldast ( 282% ) á þessu tímabili. En tekjur og áhorf haldast ekki í hendur.

1. Skilyrði fyrir Covidstyrk/ rekstrar­styrk frá ríkinu hefur verið að N4 hefur þurft að framleiða og sýna 365 þætti á ári, að meðaltali einn nýjan þátt á dag. Kostnaður við það er að lágmarki um 200 milljónir króna. Styrkur síðasta árs nam 20 milljónum.

2. Mörg sveitar­félög hafa verið tilbúin að styrkja þáttagerð af sínum svæðum, ýmist með beinum styrkjum til þátta­gerðar eða kaupum á þjónustu. Nú bregður svo við að aðal­baklandið, Norður­land allt, hvarf frá þessu 2022 en hélt okkur volgum fram eftir ári. Það komu að lokum rúmar 4 milljónir samtals í þjónustu­kaup frá 12 sveitar­félögum á Norður­landi eystra nú í lok árs. ( ca 26.000.- að meðaltali á mánuði frá hverju þeirra ). Þetta hefur sett rekstur stöðvarinnar í algjört uppnám. Fara þarf eftir tekjum og efni langar leiðir en skal haldið til haga að öll sv.félög á Austur­landi, flest á Vestur­landi og nokkur á Suður­landi hafa haldið tryggð við stöðina. En það dugar engan veginn til.

3. Auglýsinga­tekjur hafa stór­minnkað á þessu ári. Kemur tvennt til; Um 55% auglýsinga­fjár fer til erlendra samfélags­miðla í ár, var 40% fyrir tveimur árum. Stærstur hluti sem eftir verður á landinu fer til RÚV, þar sem meðallaun sölumanna eru 1,2 milljónir á mánuði.

4. Fyrirtæki eru eftir Covid ekki áfjáð í að kosta þætti af sama krafti og áður. Þar er mikill tekju­samdráttur einnig. Til þess að N4 þurfi ekki að loka um áramótin og geti haldið starfseminni áfram næstu tvö árin amk. eðaá meðan verið er að undirbúa ný fjölmiðlalög, þarf að koma stöðinni til hjálpar við að halda uppi merkjum lands­byggðarinnar af sama krafti og gert hefur verið. Ríkis­styrkur þessi mun gefa okkur von um að það takist en ljóst að fleiri þurfa að koma að málinu, bæði sveitar­félögin og “Angels-investors” sem eiga stöðina í dag.

Rætt hefur verið um að leggja fram ný lög um fjölmiðla á næstu tveimur árum. Ef ekki á kasta burt allri umfjöllun utan af landi þarf að grípa til úrræða eins og Danir framkvæmdu í þessari sömu stöðu og þeir voru í árið 1985. Þá stóð til að loka einu landsbyggðastöð DR og reis upp gífurlega mikil mótmæla­alda. Lagt var fram frumvarp 1986 þar sem ákveðið var að búa til TV2 sem að hluta yrði ríkis­rekin og hluta til rekin á auglýsingafé en skilyrði að hún væri með höfuð­stöðvar úti á landi. DR er ekki á auglýsinga­markaði heldur sinnir sínu lögbundna hlutverki. TV2 og DR eru í hörku samkeppni um áhorf og gerð vandaðra frétta og frétta­skýringa sem að sögn þeirra gerir allt fjölmiðla­starf faglegra og betra.

Tillaga mín er þessi:

1. Skatt­leggja erlendar veitur um 6% líkt og Danir eru að fara að gera

2. Nota hluta þeirra tekna til að tryggja að RÚV framleiði enn meira íslenskt efni og vandaðri fréttir og frétta­skýringar­þætti

3. Taka RÚV af auglýsinga­markaði og gera þannig frjálsum stöðvum kleift að lifa og vera í samkeppni við RÚV.

4. Stofna TV2 með höfuð­stöðvar á Akureyri og sameina þar undir það litla sem er eftir af lands­byggða­fréttafólki RÚV ( Á Akureyri og Austur­landi ) með N4. Bjóða öllum litlu frétta­miðlunum sem berjast fyrir lífi sínu og fer sífellt fækkandi að koma þarna inn undir hattinn.

5. Skipta útvarps­gjaldinu 70-30 milli RÚV og TV2 .

Kaupmanna­höfn 1.desember 2022,

F.h. N4 ehf.

María Björk Ingva­dóttir framkvæmda­stjóri.“

Fjár­laganefnd hefur nú breytt afstöðu sinni og leggur umræddar 100 milljónir króna í púkkið til stuðnings frjálsum fjöl­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis