Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Putin skalf í viðtali Tucker Carlson: „Þetta vekur ekkert nema bros í Kreml“

Carlson og Putin
Carlson og Putin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Vladimir Putin Rúss­lands­for­seti virt­ist nota hönd sína til að halda sjálf­andi fæti sínum kjurrum í nýju tveggja klukku­tíma við­tali sem Tucker Carlson tók við hann í Kreml.

Fyrrum frétta­maður Fox-frétta­stof­unnar, Tucker Carlson, tók tveggja klukku­tíma við­tal við Vladimir Putin, fyrir þátt sinn The Tucker Carlson Interview sem hann birti á heima­síðu sinni.

Putin, sem er á 72 ald­ursár­inu, sást í við­tal­inu nota hönd sína til að hafa stjórn á titr­andi fæti sínum í við­tal­inu. Þá hóstaði hann reglu­lega og ræskti sig en sögu­sagnir af heilsu­leysi for­set­ans hafa verið á kreiki um nokk­urra ára skeið. Fyrir utan þessar vís­bend­ingar um heilsu for­set­ans, vöktu stað­hæf­ingar hans um eitt og annað athygli. Hélt hann því meðal ann­ars fram að Rússar ættu „ofur eld­flaugar“ og að frétta­maður Wall Street Journal, Evan Gershkovich, væri „njósn­ari“.

Nýlega vakti fram­koma Putins á fundi sínum með for­seta Belarús, Lukashenko, þann 28 jan­úar, athygli en þar sást hann gretta sig furðu­lega. Sumir vildu meina að Putin hefði virst ringlaður á fund­inum.

Yfirvöld í Kremlin hafa stað­fast­lega neitað öllum sögu­sögnum um heilsu­bresti for­set­ans, en meðal þess sem haldið hefur verið fram, er að Putin hafi fengið hjarta­á­fall eða að vegna krabba­meins hafi þurft að not­ast við tví­fara hans. Dmitry Peskov, tals­maður Kremlins, segir for­setan við góða heilsu og að sögu­sagn­irnar séu „fals­fréttir“ og tekur fram að slíkt vekji kátínu innan veggja Kremlin.

Peskov sagði: „Það er allt í lagi með hann, þetta er algjör­lega enn eitt slúðrið. Þessar sögur til­heyra flokki fals­frétta, ræddar af öfunds­verðri þraut­seigju af fjölda fjöl­miðla. Þetta vekur ekk­ert nema bros í Kreml.“

Viðtal Carlson er fyrst við­talið sem Vestrænn blaða­maður tekur við Putin, frá því að Rúss­lands­her réð­ist inn í Úkraínu fyrir tveimur árum. Í við­tal­inu, sem birt­ist í dag, beind­ist að mestu að stríð­inu í Úkraínu en Putin hélt því fram að inn­rásin hafi verið mik­il­væg svo vernda mætti rúss­nesku­mæl­andi íbúa Úkraínu og til að koma í veg fyrir að Úkraína gengi inn í NATO og ógn­aði þannig öryggi Rúss­lands.

Benti hann á að for­seti Úkraínu, Vlodymyr Zelensky, hafi neitað að ræða við Kremlin. Sagði hann einnig að Washington ætti að hætta að útvega Úkraínu vopn og sann­færa Kænugarð, sem hann kall­aði banda­rískan „gervi­hnött“, um að setj­ast niður og semja um frið. „Við höfum aldrei neitað samn­inga­við­ræðum. Þið ættuð að segja núver­andi yfir­völdum í Úkraínu að hætta og koma að samn­ings­borð­inu.“ Á öðrum stað í við­tal­inu spurði Putin hvort Banda­ríkin ætti við næg vanda­mál að stríða heima fyrir. „Þið eigið í fullu fangi með vanda­mál heima fyrir, það eru vand­ræði við landa­mærin, þið eruð að kljást við inn­flytj­anda­vanda og gríð­ar­miklar skuldir. Af hverju ættuð þið að vera að hjálpa Úkraínu í stríð­inu?“

Þá var­aði Putin við því að Vest­ur­löndum muni aldrei takast að valda Rússum „stra­tegískum ósigri“ í Úkraínu og hafn­aði ásök­unum um að Rússar væru með áform um að ráð­ast á Pólland eða önnur NATO-ríki.

Hér má sjá við­talið í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Viðreisn mælist með 9,2 prósenta fylgi og Miðflokkurinn með 15,1 prósent. Atli Þór segir Miðflokkinn „hreinlegri“ kost.
Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Réttarmeinafræðingur í New York rannsakar andlát kvikmyndaleikstjórans Ray Tintori. Dánarorsök liggur ekki fyrir.

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti