Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Hvað mega fjölmiðlar fjalla um? Lögbann á birtingu frétta í einu stærsta sakamáli aldarinnar

Mannlíf fjallaði í gær um ákvörðun Lögreglunnar á Norður­landi eystra að kalla blaða- og frétta­menn til yfirheyrslu með réttar­stöðu sakbornings. Þessi ákvörðun hefur vakið umræður um hvað fjöl­miðlar mega og mega ekki fjalla um. Lengi hefur verið tekist á um það hérlendis. Til dæmis neitaði Arnar Páll Hauksson, þáverandi frétta­maður RÚV, að svara spurningum lögmanns forseta Hæstaréttar um heimildar­mann sinn þegar hann kom upp um stórfelld áfengis­kaup forsetans. Það mál var fyrirmynd áfengis­kaupa ráðamanna í þátta­röðinni Verbúðin.

Arnar Páll var krafinn svara um heimildar­menn sína árið 1989 en borgar­dómur dæmdi að hann þyrfti ekki að upplýsa um heimildar­mann sinn. Nokkrum árum síðar krafði lögreglan Agnesi Braga­dóttur, þáverandi blaðamann Morgun­blaðsins, um upplýsingar um sína heimildar­menn vegna skrifa hennar um endalok Sambands íslenskra samvinnu­félaga. Héraðs­dómur Reykja­víkur sagði henni skylt að svara. Þann úrskurð nam Hæstiréttur úr gildi í janúar 1996.

Mega blaðamenn byggja fréttir á viðkvæmum gögnum?

Hæstiréttur hefur tvívegis dæmt að blaðamenn megi byggja fréttir á viðkvæmum gögnum. Hæstiréttur dæmdi í bæði skiptin að fjöl­miðlar mættu byggja frétta­flutning á gögnum sem þeir fengju í óþökk eigenda þeirra ef umfjöllunin væri hluti af þjóðfélags­umræðu eða sneri að málum sem það hefur þýðingu fyrir almenning að sé upplýst um.

Í samskiptum lögreglunnar við blaða­mennina sem um ræðir mun hafa verið vísað til tveggja greina í almennum hegningar­lögum. Sú fyrri kveður á um sektir eða allt að árs fangelsi ef einstaklingur „brýtur gegn friðhelgi einkalífs annars með því að hnýsast í, útbúa, afla, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heimildar­leysi skjölum, gögnum, myndefni, upplýsingum eða sambærilegu efni um einka­málefni viðkomandi, hvort heldur sem er á stafrænu eða hliðrænu formi“. Seinni greinin segir að hver „sem í heimildar­leysi verður sér úti um aðgang að gögnum eða forritum annarra sem geymd eru á tölvutæku formi“ sæti sektum eða allt að eins árs fangelsi. Í báðum greinum sem vísað er til er þó þann fyrirvara að finna að þær eigi ekki við „þegar háttsemin er réttlætanleg með vísan til almanna- eða einka­hagsmuna“. Og þá vaknar spurningin: á það við í þessum tilfellum? Vísbendingar um það má lesa úr dómum.

Þrír dómar Hæstaréttar til hliðsjónar

Ef málið snýst um það að blaðamenn hafi skrifað fréttir upp úr gögnunum verður að hafa þrjá dóma Hæstaréttar til hliðsjónar.

Sá nýlegasti er frá árinu 2019 og snýr að lögbanni sem Sýslu­maðurinn á höfuð­borgar­svæðinu setti á frétta­flutning Stundarinnar að beiðni Glitnis HoldCo tólf dögum fyrir kosningar 2017. Þá hafði Stundin fjallað um fjár­festingar Bjarna Benedikts­sonar, þáverandi forsætis­ráðherra, og fólks sem honum tengdist fyrir hrun. Grein­arnar byggðu á gögnum úr Glitni sem voru háð banka­leynd. Bankinn varð gjald­þrota í hruninu og Glitnir HoldCo sá um uppgjör þrota­búsins.

Glitnir HoldCo vildi einnig stöðva umfjöllun sem byggðist á gögnum sem urðu til í bankanum og féllu undir banka­leynd. Hæstiréttur sagði tvenn sjónarmið og réttindi vera til hliðsjónar. „Við það mat vegast annars vegar á réttur stefndu sem fjölmiðla til að gera almenningi grein fyrir þeim upplýsingum sem fram koma í hinum umþrættu gögnum og hins vegar réttur þeirra sem gögnin fjalla um til að njóta þeirrar leyndar sem kveðið er á um í“ lögum, stjórnar­skrá og Mann­réttinda­sáttmála Evrópu. Hæstiréttur komst að þeirri niður­stöðu að Stundinni og Reykjavík media sem hún var í samstarfi við hefði verið heimilt að vinna og birta fréttir á grund­velli gagna sem heyrt höfðu undir banka­leynd.

Eitt stærsta sakamál aldarinar

Tölvu­póstamálið var í hámæli um miðjan fyrsta áratug aldarinnar. Þá hóf Frétta­blaðið birtingu á fréttum sem byggðu á tölvu­póstum sem blaðið hafði fengið í hendurnar. Þar kom fram hvernig máls­metandi menn sem tengdust Sjálfstæðis­flokknum höfðu komið við sögu í aðdrag­anda þess sem varð Baugs­málið, eitt stærsta sakamál aldarinnar. Eigandi tölvu­póstanna fékk samþykkt lögbann á frétta­flutning Frétta­blaðsins en tapaði dómsmálum á báðum dómstigum, í héraði og Hæstarétti.

Ef ákvörðun lögreglu að boða blaðamenn til yfirheyrslu snýr ekki að skrifum þeirra heldur að því hvernig blaða­mennirnir fengu gögnin sem þeir notuðu má vísa til tveggja dóma. Annars vegar er umfjöllunin hér að ofan um tilraunir Glitnis HoldCo að fá blaðamenn til að upplýsa um heimildar­menn sína. Hins vegar er dómur Hæstaréttar frá árinu 2014 sem snýr að leka­málinu, þegar lögregla reyndi að upplýsa hver hefði lekið upplýsingum til fjölmiðla úr innan­ríkis­ráðuneytinu. Síðar kom í ljós að það var annar aðstoðar­manna innan­ríkis­ráðherra sem að lokum fékk skilorðs­bundinn átta mánaða dóm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu