Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Allt tekið upp á myndband

Björk Vilhelms­dóttir var handtekin af ísraelska hernum í síðasta mánuði þegar hún var við ólífu­tínslu í Palestínu. Hún sat í lögreglu­bifreið með sex lögreglu­mönnum og var á leið í yfirheyrslu þegar hún ákvað að hringja í eiginmann sinn, Svein Rúnar Hauksson, og biðja hann að hringja í borgara­þjónustu utan­ríkis­ráðuneytisins.

|||
|||

Hún segist vera mjög fegin að lögreglan skyldi ekki taka af þeim símana, annars viti hún ekki hvernig þetta hefði farið.

„Einn lögreglu­maðurinn var með vídeó­myndavél og tók okkur upp á myndband allan tímann sem við vorum í bílnum, til að ná sönnunum ef við gerðum eitthvað af okkur. Við vorum meðhöndlaðar eins og glæpamenn,“ segir Björk. „En ég var alveg róleg eftir að ég vissi að borgara­þjónustan væri komin í málið. Það eru algjör forréttindi sem við Íslendingar búum við að hafa þessa borgara­þjónustu sem grípur inn í þegar fólk lendir í vandræðum.“

Eftir að komið var á lögreglu­stöðina var konunum skipað að setjast inn á stóra skrif­stofu og þær látnar bíða þar. Björk segir að þeim hafi ekki verið sýnt neitt ofbeldi, en það hafi verið leitað með offorsi í bakpokum þeirra allra.

„Þeir fundu strax vegabréf frönsku kvennanna,“ segir hún. „En ég var með mitt vegabréf í lítilli hliðar­tösku ofan í bakpokanum og þegar þeir tóku hann tók ég hliðar­töskuna upp úr og faldi hana. Það sama gerði Tinna, hin íslenska konan, og enginn þessara lögreglu­manna virtist taka eftir neinu. Tinna lenti hins vegar í líkams­leit sem framkvæmd var af þremur lögreglu­konum, en setti vega­bréfið fyrst í buxna­strenginn meðan leitað var í maga­buddunni sem það hafði verið í og síðan ofan í hana aftur. Henni var skipað að fara úr öllu nema nærfötunum á meðan leitað var á henni en þær fundu auðvitað ekki vega­bréfið. Þegar þær ætluðu svo að fara að leita í maga­buddunni sagði hún þeim að hinir lögreglu­mennirnir væru búnir að leita í henni svo þær hættu við. Þannig að þetta fór allt vel og okkar vegabréf fundust ekki.“

Áfram var haldið að hóta kon­unum yfir­heyrslum, en þær fengu þó leyfi til að kalla til lög­mann sem þurfti að bíða eftir þannig að það dróst.

Á meðan beðið var hringdi ræðis­maður Íslands í Ísrael og bað um að fá að tala við einhvern lögreglu­manninn en það var bara skellt á hana. Lögreglan sagðist ekki tala við „þetta fólk“. Bannaði Björk að hringja í hana aftur og tók af henni símann.

„Ég var samt róleg,“ segir hún. „Ég vissi sem var að borgara­þjónustan og ræðis­maðurinn voru komin í málið og myndu ekki láta stoppa sig. Lögreglan hefur ekki leyfi til að halda fólki lengur en 24 tíma þannig að ég vissi að við yrðum þarna aldrei lengur en það. Við vissum líka að það var ekki hægt að kæra okkur fyrir að vera ekki með vegabréf. Erlent fólk hlýtur borgara­lega meðferð í dóms­kerfinu í Ísrael en Palestínu­menn lúta hernaðar­lögum. Þeir eru ofurseldir herlögum og á hverjum tíma eru hundruð Palestínu­manna í varðhaldi án dóms og laga, allt upp í sex mánuði. Maður er auðvitað glaður yfir eigin forréttindum, en það vekur mann líka til umhugsunar um hvað það er gróflega brotið á Palestínu­mönnum sem lenda í að vera hand­teknir.“

Eins og heimtar úr helju

Björk segir að þótt hún hafi ekki verið hrædd þann tíma sem hún sat í varð­haldinu þá sé það skrýtin tilfinning að lenda í þessari stöðu. Eftir þrjá tíma var þeim tilkynnt að búið væri að taka ákvörðun um að láta þær lausar með því skilyrði að þær lofuðu að fara aldrei aftur inn á hernaðar­lega lokað svæði. Þær lofuðu að reyna sitt besta til þess og voru þar með reknar út á götu og sagt að reyna að ná strætó til baka. Þá fyrst varð Björk dálítið hrædd.

„Þá stóðum við þarna inni í miðri landtöku­byggðinni Ariel, þar sem búa um hundrað þúsund manns og við vissum ekkert á hverju við ættum von. Það var alveg augljóst af útganginum á okkur að við vorum að koma úr ólífu­tínslu og fólk horfði á okkur með mjög skrýtnu augnaráði. Ég veit að þetta fólk er mjög óvinveitt Palestínu­mönnum og við áttum alveg eins von á að ráðist yrði á okkur. Við fórum í strætó og ég spurði bílstjórann hvort hann færi út fyrir landtöku­byggðina. Þá spurði hann mig hvort ég talaði arabísku og þegar ég jánkaði því, að ég kynni smáhrafl í henni, sagði hann mér að hafa ekki áhyggjur, hann væri Palestínu­maður og myndi passa að ekkert kæmi fyrir okkur.

Það var mjög nota­leg til­finn­ing að finna að við vorum komnar í öruggar hendur.

Eftir að við komum út úr strætis­vagninum hringdi ég í leigu­bílstjóra úr þorpinu okkar sem tók afskaplega fallega á móti okkur, enda búinn að frétta af hand­tökunni og lét eins og við værum heimtar úr helju og sama gerðu aðrir þorpsbúar sem flykktust til okkar um kvöldið. Við reyndum að útskýra fyrir þeim að við hefðum aldrei verið í hættu, þetta væri ekki það sama og þegar Palestínu­menn eru hand­teknir. Það er auðvitað eingöngu að þakka okkar vestrænu vega­bréfum og borgara­þjónustunni, sem breytir í rauninni öllu og ég get ekki þakkað og dásamað eins og vert væri.“

Lestu viðtalið í heild í nýjasta tölublaði Mannlífs.

Myndir / Hákon Davíð Björnsson
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förðunar­meistari Yves Saint Laurent á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra