Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Þórdís Sigurðardóttir vill 1. sæti hjá Viðreisn í Reykjavík: „Það er í mér einhver brimbrjótur“

„Ég brenn fyrir sýn Viðreisnar um réttlátt samfélag þar sem almannahags­munir ganga alltaf framar sérhagsmunum og allar manneskjur, heimili og fyrirtæki njóti jafnræðis. Það er framtíðar­sýnin sem ég vil vinna að sem leiðtogi og er sannfærð um að eigi að vera leiðar­ljós farsæls samfélags,“ segir Þórdís Sigurðar­dóttir sem sækist eftir 1. sæti í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík sem fer fram 4. og 5. mars.

Þórdís er eigandi Manifesto ráðgjafa­fyrirtækis og hefur víða komið við í störfum sínum og öðlast mikla reynslu af rekstri og stjórnun fyrir­tækja, bæði sem stjórnar­maður, ráðgjafi og framkvæmda­stjóri. Hún var lektor í stefnu­mótun og stjórnun í Háskólanum í Reykjavík og jafnframt gegndi hún forstöðu yfir MBA-náminu og sat í háskóla­ráði skólans. Þórdís var einnig framkvæmda­stjóri Hjalla­stefnunnar sem á og rekur 18 skóla á landinu. Í störfum sínum hefur Þórdís þótt einkar farsæll leiðtogi þegar kemur að breytinga­stjórnun og umbreytingar­verkefnum, en nefna má sem dæmi að árið 2019 hlaut Hjalla­stefnan verðlaun fyrir „Byltingu í stjórnun“ frá Viðskipta­ráði Íslands. Þórdís leiddi verkefnið og miðaði það að vald­eflingu starfs­fólks sem leiddi til aukinna gæða í þjónustu við börn og fjöl­skyldur þeirra. Þórdís segir að sú stjórnun sem hún aðhyllist miði að því að auka völd og áhrif starfs­fólks sem raun­verulega vinnur verkefnin sem ætlast sé til að unnin séu og fækka milli­liðum – allt með mikilli aðkomu starfs­fólksins sjálfs. „Þetta kallar á virðingu gagnvart öllum störfum í kerfinu og fyrir þeim sem þiggur þjónustuna og er því ekki síst mikilvægt þegar um er að ræða þjónustu sem snýr að velferðar­þjónustu, svo sem við börn, aldraða og fatlað fólk,“ segir Þórdís. Þannig fáist bestu hugmyndirnar og séu þær virkjaðar fáist bestu lausnirnar. Slíkar áherslur þurfi að auka í stjórnun og rekstri borgarinnar.

„Það þarf að draga úr sóun og þar felast tækifæri til að endur­hugsa fjármálin og tíma auk þess sem þjónusta batnar, starfs­ánægja eykst og kerfið verður skilvirkara. Þetta kallar á virðingu gagnvart öllum störfum í kerfinu og fyrir þeim sem þiggur þjónustuna.“

Innviðir verða að styðja við þá upp­bygg­ingu því þetta er hluti af grænum lausnum og vellíðan borg­ar­búa

Þórdís segir að sér þyki einnig brýnt að bregðast við ákalli atvinnu­lífsins um að stytta boðleiðir og styðja við starfsemi í borginni með mark­vissum hætti. „Blómlegt atvinnulíf er lykil­þáttur í að mynda sjálfbær og lífleg hverfi þar sem fólk þarf ekki notast við einkabíl til að sinna öllum verkefnum daglegs lífs. Innviðir verða að styðja við þá uppbyggingu því þetta er hluti af grænum lausnum og vellíðan borgarbúa. Hið opinbera getur gert margt til að örva sköpunar­kraft fólks og efla heilbrigða samkeppni sem svo leiðir af sér nýjar lausnir fyrir daglegt líf fólks,“ segir Þórdís sem segir að ekki eigi að horfa á atvinnulíf og opinbera þjónustu sem andstæða póla því hvort tveggja sé mikil­vægur þáttur góðs samfélags.

Allt hið smáa

Þórdís segist hafa aðhyllst Viðreisn frá því að flokkurinn var stofnaður. „Ég á samleið með frjáls­lyndri stefnu og sterkum gildum auk þess sem mér finnst markmið flokksins um jafnrétti, rétt­látara samfélag, krafa hans um kröftugt efnahagslíf og ábyrga fjármála­stjórnun í takt við það sem ég hef talað fyrir. Í mínum störfum hef ég ítrekað séð hve mikil verðmæti eru í hverju einu og einasta starfi sem unnið er. Sé virðing borin fyrir hverju starfi og sá sem það vinnur fái að hafa eitthvað um það að segja, þá fæst besta útkoman,“ segir Þórdís og tekur þáttinn Verbúðina sem nýlegt dæmi sem mörgum sé hugleikið um þessar mundir. Hver einasti rammi og hljóðmynd beri vott um aðkomu fjölda fólks en ekki eins snillings. Fókusinn sé ekki aðeins á að það sem sé mest áberandi eða á frægasta leikarann heldur sýni heildar­myndin mikla vinnu fjölda ólíkra einstaklinga sem vinna að sama markmiði – það er að búa til innihalds­ríkt og áhrifa­mikið verk. Þessum augum megi einnig líta öfluga leikskóla sem skila hamingju­sömum og forvitnum börnum út í grunn­skólana, tómstunda­starf sem byggir upp sjálfs­traust og lífsgleði þeirra sem það stunda eða vel rekna hverfis­verslun eða fyrirtæki sem skipti nágrenni sitt og samfélag miklu máli, skapi góðan brag og umtal. „Hver einstaklingur og verk hans skiptir máli en samvinna og gagnkvæm virðing getur skilað samfélaginu einhverju stórkost­legu þótt ávinningurinn sjáist ef til vill ekki strax og stundum skortir næmni í samfélaginu til að bera skynbragð á raun­verulegt mikilvægi þess.“

Nunnurnar í Hólminum

Þórdís ólst upp í Stykkis­hólmi – bænum við fjörðinn stóra þar sem eyjarnar eru sagðar óteljandi.

Það voru ólýs­an­leg for­rétt­indi að fá að kynn­ast nunn­unum

„Það er ekki hægt að segja annað en að ég hafi fengið trúarlegt uppeldi,“ segir Þórdís og hlær. „Á þeim tíma þegar ég var að vaxa úr grasi fóru börn í leikskóla hjá nunnunum og svo fórum við alla sunnudaga niður í Hvítasunnu­söfnuðinn; það var öflugur Hvítasunnu­söfnuður í bænum og manni fannst alltaf svo gaman að fara þangað. Það var verið að syngja svo skemmtileg lög. Ég fór þó alltaf á sunnudags­morgnum fyrst í barna­messu klukkan 11 – mér þykir vænt um þennan hluta af barn­æskunni og dýrmætt að kynnast fjölda tegunda trúar­iðkunar,“ segir Þórdís sem minnist einkum nunnanna með miklum kærleika.

„Það voru ólýsanleg forréttindi að fá að kynnast nunnunum; þær ráku þarna spítala, prentsmiðju og leikskóla. Þetta var ótrúlegt. Þær gerðu svo stórkost­lega hluti fyrir samfélagið.“

Þórdís er spurð hvað hana hafi dreymt um að verða á þessum tíma. „Ég held að mig hafi alltaf langað til að láta eitthvað gott af mér leiða. Kannski var þetta einhver „inspírasjón“ frá nunnunum. Ég held að það hafi haft mikil áhrif.“

Þórdís hefur gengið Jakobs­veginn fram og til baka síðustu sjö ár bæði ein og líka með allri fjöl­skyldunni. „Það hefur breytt lífi mínu mikið og veitt mér ró, innri frið og líka stórkostlegar uppgötvanir sem ég tengi svo vel við æskuna og lífið með nunnunum.“

Mikilvægur lærdómur

Sextán ára gömul flutti Þórdís til Reykja­víkur til að hefja nám við Mennta­skólann í Reykjavík. Hún lauk síðan prófi í stjórnmála­fræði frá Háskóla Íslands og lauk eftir það meistara­námi í félags­fræði frá sama háskóla.

„Ég fór í stjórnmála­fræði vegna þess að ég hafði einlægan áhuga á stjórn­málum og byrjaði í stúdenta­pólitíkinni sem varð til þess að ég missti áhugann á að fara sjálf í pólitík um langt skeið. En sá áhugi hefur heldur betur vaknað á ný eftir langan dvala.

Ég var í start-up verk­efnum erlendis, sat í stjórnum fyr­ir­tækja hér á landi sem erlendis og var stjórn­ar­for­maður í skráðu fyr­ir­tæki í kaup­höll

Árið 2005 fékk ég svo tilboð frá Baugi um að fara að vinna hjá fyrir­tækinu. Ég fór í mörg mjög áhugaverð verkefni og fannst spennandi að vinna hjá fyrirtæki sem þá var svolítill suðu­pottur samfélags­umræðunnar. Ég var í start-up verkefnum erlendis, sat í stjórnum fyrir­tækja hér á landi sem erlendis og var stjórnar­formaður í skráðu fyrirtæki í kauphöll. Þetta er gríðarleg reynsla sem hefur gert mér kleift að ná þeim árangri sem ég hef séð í mínum störfum eins og hvað varðar Hjalla­stefnuna. Þannig að tengslin við atvinnu­lífið finnst mér líka vera svo mikilvæg fyrir borgina; að skilja hvað þarf til þess að auka verðmæta­sköpun í atvinnu­lífinu og hvað ber að varast.“

Allt breyttist á einni nóttu

Hrunið og það sem á eftir fylgdi var mörgum erfitt sem höfðu tengsl við atvinnu­lífið, svo sem Baug, fyrir utan almenning í landinu sem sat eftir með sárt ennið. Umræðan snerti ekki aðeins vinnustað Þórdísar heldur líka nánustu fjöl­skyldu, því Þórdís er systir Hreiðars Más Sigurðs­sonar sem var forstjóri Kaupþings.

„Jú, það má eiginlega segja að allt hafi breyst á einni nóttu. Nýr veruleiki blasti við og margt sem fór á allt annan hátt en maður hefði nokkurn tímann geta trúað eða séð fyrir á þeim tíma. Þetta var að sjálfsögðu mikil lífs­reynsla sem gerir mann auðmjúkari og sterkari ef maður nær að vinna úr vel henni.“

Þetta var mikið áfall

Hvað var erfiðast? „Það var skiljanlega svo mikill sársauki í samfélaginu og þegar það beinist gegn ákveðnum aðilum þá er bara ofsalega sárt að vera hluti af því. Þetta var mikið áfall. Ég held það hafi verið erfitt fyrir alla að horfa upp á þetta. Og þegar hlutirnir hafa svona miklar afleiðingar þá verða viðbrögðin erfið. Staðan var svo flókin og þörfin fyrir að fá útrás fyrir reiðina var skiljanleg. Það var erfitt að takast á við þetta allt saman.“

Brimbrjótur hið innra

Þessi reynsla gerði það að verkum að Þórdís breytti um starfs­vettvang. „Þetta varð til þess að ég fór að gera allt aðra hluti. Hluti af þessu var að mig langaði til að reyna að vinna úr þessari reynslu á uppbyggilegan hátt. Ég fór í heilsu­markþjálfun í skóla í New York með það að markmiði að ég gæti hugsað sem best um mig sjálfa og fjöl­skylduna mína. Ég fór líka í jóga­kennaranám sem hefur gefið mér mikinn andlegan og líkamlegan styrk. Við hjónin elskum að vera úti í nátt­úrunni og þar fæ ég mína tengingu til að mæta lífinu.

Það er í mér ein­hver brim­brjótur

Ég ætlaði mér ekkert endilega að fara út í atvinnu­lífið af fullum krafti á ný, en það er alltaf eitthvað þar sem heillar mig og líklega þörf fyrir að koma að breytingum og hafa áhrif til góðs. Það er í mér einhver brim­brjótur. Ég brenn fyrir umbreytinga­verkefnum og því að fá nýtt sjónar­horn á það sem við tökum sem gefnu alla jafna. Það eru þeir kraftar sem drífa mig áfram í dag.

Í dag höfum við hjónin unnið með fyrir­tækjum í innleiðingu stefnu­mótunar sem er helsta áskorun fyrir­tækja og stofnana. Það eru til stefnur um allt, en minna um að þær raun­gerist. Þarna er ég á heima­velli.“

Gæfan birtist í ólíklegustu myndum

Þórdís segir að gæfan birtist fólki í ýmsum og jafnvel ólíklegustu myndum og oft sé erfitt að átta sig á því að mikill sársauki geti orðið til góðs síðar. „Þetta minnir mig á hvað það er mikilvægt að nálgast það sem fyrir augu ber í lífinu af auðmýkt, forvitni og gagnrýni og þannig vil ég mæta lífinu. Við þurfum að vera opin fyrir því að skilja atburði og fólk á fleiri vegu en aðeins út frá sjálfum okkur.“

Hún líti á stærstu áskoranirnar í lífinu sem gjöf þar sem einmitt þær hafi gert hana að því sem hún er í dag.

Þú getur bara ímyndað þér hvað ég er miklu betur und­ir­búin að fara í þetta verk­efni að bjóða mig fram núna með alla þessa reynslu í fartesk­inu

„Það eru aðrir hlutir í lífinu sem eru svo miklu erfiðari, en ég hef sem betur fer ekki þurft að takast á við slíkt þannig að það ber að líta á svona verkefni sem gjöf og tækifæri. Þá er ég samt ekki að segja að maður biðji um það, en svona verkefni koma til manns og þá er það tækifæri til að vaxa og læra af. Þú getur bara ímyndað þér hvað ég er miklu betur undirbúin að fara í þetta verkefni að bjóða mig fram núna með alla þessa reynslu í farte­skinu. Eins og ég sagði þá þekki ég sjálfa mig betur, ég er búin að vinna úr verk­efninu sem ég fékk í hendurnar og þá leysir maður það sem bíður manns á miklu farsælli hátt en ella.“

Með flugvöllinn við stofugluggann

Þótt Þórdís segi æsku­stöðvar sínar í Stykkis­hólmi skipa stóran sess í hjarta hennar hafi hún fyrir löngu áttað sig á því að hún sé Reyk­víkingur. Hún hafi notið þess að fylgjast með breytingum borgarinnar frá því að hún kynntist henni fyrst almennilega, þótt ekki hafi hún verið sammála öllum ákvörðunum. Margar mikil­vægar áskoranir séu fram undan, þær birtist henni meðal annars vel þegar hún horfi út um stofu­glugga heimilisins en þar blasir við Öskju­hlíðin, Háskólinn í Reykjavík og svo flug­völlurinn með öllum þeim áskorunum sem uppbyggingu á svæðinu fylgir. Eins sé mikilvægt að huga að því að færa aftur líf og þjónustu inn í fjölda nýrri og eldri hverfa. Góð heild sé mynduð úr fjölda atriða, ólík en lífleg hverfi myndi svo góða og heil­steypta borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli