Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Hinsta ferð Stuðlabergsins – Björgunarhring rak á land

Þegar áhöfn Stuðla­bergs NS 102 lögðu af stað til síldar­veiða frá Seyðis­firði fyrir bráðum 60 árum, í febrúar 1962, óraði þá ekki fyrir því að þetta yrði þeirra hinsta ferð enda á nýlegum og sterk­legum báti. Að kvöldi 17 febrúar fórst þessi nýlegi síldar­bátur undan ströndum Suður­lands. Öll áhöfnin, 11 manns, lét lífið þessa nótt.

Sjómanna­blaðið Víkingur sagði svo frá slysinu:

Stuðlabergs­slysið er sjóslys sem varð að kvöldi 17. febrúar eða aðfara­nótt 18. febrúar 1962. Síldar­bátur frá Seyðis­firði Stuðla­berg NS 102 með 11 manna áhöfn fórst þá út af Stafnesi að talið er og rak brak úr bátnum á fjörur milli Garðskaga og Sand­gerðis. Meðal þess sem rak á land var bjarg­hringur með nafni bátsins sem fannst hjá Þóroddstöðum. Stuðla­berg var á síld­veiðum fyrir Suður­landi. Síðast heyrðist í bátnum þar sem hann var staddur út af Selvogi á leið til Kefla­víkur til löndunar og voru mörg skip á þeirri siglinga­leið. Stuðla­berg kom hins vegar aldrei til Kefla­víkur og var talið þar að báturinn hefði haldið til Hafnar­fjarðar þar sem hann hafði áður landað. Vegna þessa varð bátsins ekki saknað fyrr en 21. febrúar er Slysavarna­félagi Íslands var gert viðvart. Eins og áður segir rak talsvert brak úr bátnum á fjörur milli Hafna og Garðskaga og fannst lík eins skipverja rekið undan bænum Fuglavík. Stuðla­berg NS 102 var 152 lesta stálbátur sem gerður var út frá Suðurnesjum.

Jón Jör­unds­son og Pétur Þor­f­inssson

Miðvikudaginn 21. febrúar s. 1. var Slysavarna­félaginu tilkynnt, að Seyðis­fjarðar­bátsins
Stuðla­bergs NS 102, hefði ekki orðið vart síðan á laugardags­kvöld, er síðast var haft samband við hann út af Selvogi. Um leið og leit var hafin kom í ljós, að brak hafði fundizt á fjörunum milli Garðskaga og Sand­gerðis, þar á meðal merktur bjarg­hringur, og nót hafði sézt mílu út af Stafnesi á mánudag. Á Stuðla­berginu voru 11 menn, en ekkert hefur til þeirra spurzt. Það var bróðir stýri­mannsins, Björn Þorfinnsson,, skip­stjóri á Heima­skaga, sem tilkynnti Henry Hálfdanar­syni, framkvæmda­stjóra Slysavarna­félagsins, að aðstand­endur væru orðnir uggandi um bátinn, en útgerðar­stjórinn, Jón Jörundsson úr Keflavík, var jafnframt skip­stjóri bátsins og því um borð. Útgerðar­félagið er Berg h.f. á Seyðis­firði, og eigendur auk skip­stjórans Björgvin Jónsson á Seyðis­firði og Kristján Jörundsson, bróðir skip­stjórans, sem einnig var á Stuðla­bergi. Er áhöfnin skráð í Njarðvíkum, aðeins einn skipverja frá Seyðis­firði og samkvæmt upplýsingum frá útgerðinni á Seyðis­firði hefur báturinn lagt upp hjá Bæjarútg. Hafnar­fjarðar.

Hinir áhafn­ar­með­lim­irnir

BRAK REKIÐ

Margir höfðu séð brak í sjónum en skeyttu því engu því ekki hafði verið tilkynnt um að skip væri saknað. Eitt af því sem hafði rekið á land var björgunar­hringur merktur Stuðla­bergi. Sjómanna­blaðið Víkingur segir svo frá;

Stuðla­berg var á síld­veiðum fyrir Suður­landi og er skip­stjórinn hafði samband við Albert Bjarnason útgerðar­mann í Keflavík á laugardags­kvöld, var báturinn staddur út af Selvogi á heimleið. Það kvöld var slæmt veður á þessum slóðum. Mörg skip voru á þessari siglingar­leið, bæði á undan bátnum og eftir, en enginn virðist hafa heyrt neitt til hans eftir þetta. Slysavarna­félagið sendi strax út tilkynningu um að bátsins væri saknað og bað fólk á svæðinu frá Höfnum að Garðskaga um að leita, svo og slysavarna­deildirnar á þessu svæði. Kom þá í Ijós, að þarna hafði rekið heilmikið brak af þilfarinu, án þess að því væri veitt athygli, þar sem ekki var saknað neins skips, þar á meðal bjarg­hringur með nafni bátsins hjá Þórodds­stöðum, milli Garðskaga og Sand­gerðis. Birtu var farið að bregða er leitin hófst í fjörunni.

LANDFÖST NÓT FANNST

Síldarnót hafði sést á mánudags­morgun mílu undan Stafnesi. Þegar betur var að gáð virtist hún föst við botninn. Sjómanna­blaðið Víkingur;

Þá kom í ljós, að Jökulfellið hafði kl. 8,30 á mánudags­morgun tilkynnt að sézt hefði síldarnót liðlega mílu undan Stafnesi. Hafði landhelgisgæzlan beðið Maríu Júlíu að huga að þessu, en hún komst hvergi nærri vegna þess, hve þar var grunnt, krappur sjór og hvasst.
í gær flaug svo landhelgis­flugvélin Rán yfir og sá þá, að nótin var enn á svipuðum stað, en
lítið eitt innar. — Þegar fréttam. Mbl. í gærkvöldi hitti skip­stjórann á Jökulfellinu, Arnór Gíslason, að máli, sagðist hann gera ráð fyrir því, að nótin væri föst í botni.

STAÐURINN SEM HERMÓÐUR FÓRST

Vita­skipið Hermóður

Stuðla­bergið reyndist hafa sokkið á sama stað og skipið Herjólfur hafði gert, nokkrum árum áður. Í því sjóslysi lést einnig öll áhöfnin, 12 manns. Sjómann­blaðið Víkingur;

Þegar blaðið hafði fengið fregnir af því, að föst nót hefði sézt liðlega mílu út af Stafnesi,
rak okkur minni til að þetta væri á sama stað og Hermóður fórst. Við hringdum því í Lárus
Þorsteinsson, skipherra, en það var hann, sem fann brakið, sem talið var vera af Hermóði.
Lárus staðfesti,. að þetta væri sami staður og aðspurður um, hvernig þarna háttaði, sagði hann: „Þetta er á venjulegri siglinga­leið, þegar gott er í sjó, en í verra veðri fara menn yfirleitt dýpra. Þar sem fer að grynnka verður ákaflega kröpp alda,, en strax betra 3 mílum utar. Mér hefur fundizt að svona 1,7 ,mílur út væri sjólagið verst“.

Stuðla­berg NS 102 var stálbátur, 152 lestir að stærð, byggður í Noregi árið 1960 og hefur s. 1. ár verið gerður út frá Suðurnesjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu