Áströlsk kona sem svaf hjá 300 manns á einu ári hefur opnað sig um erfiðleika sína við það að finna ástina. Hún segir ástæðuna vera vegna þess að enginn karlmaður „tikki í öll boxin sín“.
Konan, sem heitir Annie Knight, er 26 ára gömul. Hún er vinsæl á samfélagsmiðlum og hefur 1,6 milljón fylgjenda á Instagram. Frá fylgjendum hefur hún fengið mikið lof fyrir hreinskilni sína þegar kemur að kynlífi en lýsti hún því yfir í spjallþætti á síðasta ári að hún stundaði kynlíf með bæði körlum og konum, stundum, allt að fimm manns á dag.
Aðspurð segist Annie enn vera einhleyp vegna þess að henni hafi ekki tekist að finna mann sem hafi öll þau persónueinkenni sem hún leitar að í fari maka. Á þessu ári segist Annie ætla sér að sofa hjá 365 manns á 365 dögum og gefur hún fylgjendum sínum reglulega tíðindi af því hvernig það gangi að fylgja markmiðinu eftir.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir