Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sigurbjörg biður um hjálp fyrir sveltandi fjölskyldu

Sex manna fjöl­skylda deildi dollu af hummus fyrir nokkrum dögum en stendur nú frammi fyrir dauð­anum

Systir Ayu
Systir Ayu Ayat, systir Ayu, þegar meiri matur var til skipt­anna Mynd: Aðsend

Sig­ur­björg Magn­ús­dóttir hefur um hríð reynt að styðja fólk á Gaza með pen­inga­gjöfum og öðrum leiðum, en í nýrri færslu á Facebook lýsir hún yfir örvænt­ingu vegna stöðu fjöl­skyldu sem hún hefur tengst til­finn­inga­böndum en á Gaza ríkir nú mann­gerð hung­ursneyð.

„Fjöl­skyldan hennar Aya Harb minnar er að deyja úr hungri!!!“ skrifar Sig­ur­björg og bendir á að söfn­unin fyrir þau hafi stöðvast.

Samkvæmt henni eru nú sex manns í fjöl­skyld­unni sem deildu fyrir fjórum dögum ein­ungis einni dollu af hummus. Ætt­ingjar móður Ayu höfðu komið tveimur konum fyrir í tjald­inu þeirra til að hugsa um og þar með fjölg­aði munn­unum sem þurfa fæðu.

Unga­börninÞessi kríli bætt­ust nýlega við

Tvö systk­ini Aya eru alvar­lega veik og fað­ir­inn féll í sprengju­árás Ísraela fyrir meira en ára­tug. „Þannig að það er eng­inn eig­in­maður eða fjöl­skyldu­faðir sem er fyr­ir­vinna eða getur aðstoðað,“ segir Sig­ur­björg. Hún bætir við að móðir Aya, Reem Harb, 46 ára hafi selt allt sem nokk­urt verð­mæti hafði.

FaðirinnFaðir Ayu lést fyrir akkurat 16 árum í sprengju­árás Ísraela

„Hjálp! Hvað get ég gert?!?“ spyr Sig­ur­björg og segir að hún sjálf geti lítið lagt af mörkum þar sem hún sé öryrki með fjár­hag í rúst. „Ef ég væri ekki með fjár­hag­inn í rúst sjálf myndi ég leggja inn á hana pen­ing en ég á bara engan. Allt hjálpar, sama hversu lítið það er. Allar deil­ingar eru vel þegnar.“

RústirRústir þar sem heim­ili fjöl­skyld­unnar stóð áður

Með færsl­unni birtir hún mynd af því sem eftir stendur af heim­ili fjöl­skyld­unnar og hvetur fólk til að bregð­ast við neyð­ar­kall­inu.

MahmoudramiBróðir Ayu er með þroska­skerð­ingu

Mannlíf ræddi við Sig­ur­björgu en hún seg­ist hafa kynnst hinni 24 ára Aya Harb og eig­in­manni hennar þegar þau fengu vernd hér á landi en eig­in­maður hennar var staddur í Úkraínu þegar Rússar réð­ust á landið. Á Gaza er móðir Ayu og fimm syst­kyni en tvö þeirra glíma við greind­ar­skerð­ingu og eru með þroska á við fimm ára börn. Faðir þeirra dó eins og áður segir, þegar hann brann inni í bygg­ingu eftir loft­árás Ísra­els­manna en í dag eru akkurat 16 ár frá and­lát­inu. Samkvæmt Sig­ur­björgu eru nokkrir staðir þar sem hægt er að fá mat en að börn séu þar með for­gang en systk­ini Ayu eru á ung­lings­aldri og ungt fólk og því ekki í for­gangi. Þá sé sá litli matur sem enn er seldur á Gaza á upp­sprengdu verði.

Bræður AyuMyndin er ekki ný

Systkini Ayu eru þau Mohammed Harb 22 ára, Ahmed Harb 21 ára, Alaa Harb 17 ára en hún er þroska­skert og með skjald­kirtils sjúk­dóm, Mahmoudrami Harb16 ára, einnig þroska­skertur og Ayat Harb er yngst og verður 16 ára eftir sirka mánuð, lifi hún af.

Hægt er að leggja fjöl­skyld­unni lið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé