Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Sjómannslífið heillar Helga Seljan fréttamann: „Ég var oft kallaður Gísli Marteinn“

Helgi Seljan, blaðamaður.
Helgi Seljan, blaða­maður. Mynd: Róbert Reynisson

Helgi Seljan frétta­maður er frá Reyðar­firði. Sjórinn heillar og hefur hann af og til í gegnum árin farið í túra. Hvað dregur hann á sjóinn?

Síðustu ár hef ég svo skot­ist í einn og einn túr á bol­fisk­s­tog­ara frá Fáskrúðs­firði

„Að einhverju leyti til er þetta einhvers konar nostalgía og karla­grobb. En á tímabili var þetta þannig að ég vildi ná mér mér í auka­tekjur eftir hrun; ég var, eins og aðrir, skít­blankur en ég átti blessunar­lega lítið þegar kom að hruninu þannig að ég tapaði minna. Ég sá að ég þyrfti meira og þess vegna fór ég á sjó og var svo heppinn að ég fór á síldartúr 2008, rétt fyrir hrun, sem breyttist í markíltúr í miðjum túr, sem varð eitt risastórt ævintýri og ég var á makríl þarna í eina, tvær, þrjár og upp í sex vikur á sumrin þar á eftir, sem var ævintýra­legur tími. Síðustu ár hef ég svo skotist í einn og einn túr á bolfisks­togara frá Fáskrúðs­firði, Ljósa­felli. Þetta er allt annað andrúms­loft. Í fyrsta lagi þarf maður eins og alls staðar annars staðar að skila sínu en maður er líka með tiltölu­lega afmarkaðan ramma utan um það sem maður er að gera; maður er að vinna á vöktum og ef það er fiskur þá er vinna. Ef það er veiði þá er vinna. Ef það er ekki veiði þá er annaðhvort ekki vinna eða minni vinna. Maður gengur inn í mjög skýrt afmarkaðan ramma. Þetta eru smáátök sem ég held að ég hafi stundum gott af og svo hef ég bara gott af því að láta einhvern öskra á mig í smástund, þótt það sé ekkert rosalega mikið. Þú getur ímyndað þér hvort menn hafi ekki gaman af því að fíflast aðeins í mér; ég var oft kallaður Gísli Marteinn,“ segir Helgi og bætir svo við að hann verði að gjöra svo vel að taka þessum skotum skips­félaga sinna. „Einhvern tímann hefur sigið aðeins í mig yfir því, en ég hef alveg húmor fyrir því. Mér finnst það mjög fyndið. Ég hef verið kallaður ýmsum nöfnum; „litla kast­ljósið okkar“ og eitthvað svona. Mér finnst þetta vera mjög skemmtilegt.“

Sjórinn lokkar og laðar

„Ég hef alltaf verið með það í hausnum og ekki vitað hvort það gengi eftir, en ef ég myndi einn daginn hætta þessu, sem ég hef oft hugsað um, þá væri ég alveg til í að fara á sjóinn aftur. Ég kann mjög vel við mig þar. Það er ekkert mjög fjölskyldu­vænt; ég er með þrjú börn. Fjöl­skyldu. En þegar ég tala um þetta núna; ég segi ekki að það komi hressileg harmóniku­tónlist undir en ég sakna þess að fara ekki reglulega og það er svo margt við þetta sem ég hef áhuga á.“

Viðtalið við Helga Seljan má nálgast í nýjasta helgar­blaði Mannlífs. Einnig má horfa á viðtalið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki