Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Í ungu fólki býr kraftur og orka

Dale Carnegie hefur lagt metnað sinn í að byggja upp ein­stak­linga og efla sjálf­traustið og býður ungu fólki upp á áhuga­verð nám­skeið sem hafa þetta meðal ann­ars að leið­ar­ljósi. Við hittum Agnesi Ósk Sig­mund­ar­dóttur, þjálf­ara og verk­efna­stjóra hjá Dale Carnegie, og spurðum hana frekar út þau nám­skeið sem í boði eru fyrir ungt fólk og bera yfir­skrift­ina Dale fyrir ungt fólk.

Hvert er aðal­markið ykkar með þessum nám­skeiðum fyrir ungt fólk? „Á nám­skeið­unum okkar eru fók­us­inn á að byggja upp heil­brigt og sterkt sjálfs­traust, hæfi­leik­ann til að þora að vera maður sjálfur. Sem for­eldrar sjáum við svo marga frá­bæra eig­in­leika í börn­unum okkar en sjáum jafn­framt að þau eru gjarnan full af efa­semdum um eigið ágæti. Stundum er það snúið að nálg­ast aðra krakka og eign­ast vini. Við vinnum mikið með sam­skipta­hæfni á nám­skeið­unum okkar, viljum efla ung­linga í að eiga í góðum sam­skiptum í „mann­heimum“, segir Agnes Ósk. „Það býr kraftur í ungu fólki og við hjálpum því að beina honum í réttan far­veg. Þegar við reynum á okkur fáum við tæki­færi til að styrkja sjálfs­mynd­ina. Til þess að geta litið á áskor­anir okkar í líf­inu sem tæki­færi þurfum við að hafa jákvætt við­horf. Margir af okkar þátt­tak­endum segj­ast finna mik­inn mun á sér eftir nám­skeiðið, að það sé auð­veld­ara að vera jákvæður.“ Hún leggur ríka áherslu á hve mik­il­vægt er fyrir ein­stak­ling að hafa sterka sjálfs­mynd, hún verði að vera til staðar út í lífið.

Dale Carnegie-námskeiðin eru aldursskipt og hér má sjá hvernig þeim er skipt niður.

10-12 ára: börn á mið­stigi
Við vitum að það þarf að vera gaman og gleði í kringum 10-12 ára krakka. Við förum í leiki, vinnum skap­andi verk­efni og eflum vin­áttu innan hóps­ins. Í gegnum nám­skeiðið ein­blínum við á þá jákvæðu eig­in­leika sem börnin sýna.

13-15 ára: ung­linga­stig
Að hafa jákvæða sjálfs­mynd og trú á sjálfan sig hefur sjaldan verið jafn­mik­il­vægt og í dag með síauknum sam­an­burði við jafn­aldra, meðal ann­ars vegna sam­fé­lags­miðla. Við vitum að ung­lingar hafa ríka þörf fyrir við­ur­kenn­ingu á því hver þau eru og við leggjum okkur fram um að mæta þeim á jafn­ingja­grund­velli.

16-19 ára: fram­halds­skóla­ald­ur­inn
Á þessum árum verða oft miklar breyt­ingar í lífi okkar og það reynir á okkur á nýjan hátt, t.d. í sam­skiptum við vini og fjöl­skyldu. Einnig þarf að læra að for­gangs­raða rétt svo við veljum það besta fyrir okkur og náum að takast á við stress og kvíða. Sjálfs­myndin styrk­ist við jákvæðar upp­lif­anir af sjálfum okkur og við verðum öfl­ugri leið­togar í okkar umhverfi.

20-25 ára: háskóli og fyrstu skref á vinnu­mark­aði
Ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref út í atvinnu­lífið upp­götvar nýjar hliðar á sjálfu sér og sam­skipti verða flókn­ari. Sam­keppni og sam­an­burður getur orðið yfir­þyrm­andi og því nauð­syn­legt að hafa jákvæða og sterka sjálfs­mynd. Á þessu nám­skeiði er áhersla lögð á að þátt­tak­endur skapi sinn eigin leið­ar­vísi með per­sónu­legum mark­miðum og fram­tíð­ar­sýn.

Mynd / Tinna Stef­áns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur