Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fjaðrafok með frægum í færslu hjá Agli: „Prófið að setja æjatollatúrban á Frosta“

Fjölmargir frægir skrifuðu athugasemd undir færslu Egils. Myndin er samsett
Fjöl­margir frægir skrif­uðu athuga­semd undir færslu Egils. Myndin er sam­sett

Bubbi Morthens, Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir, Hall­grímur Helgason, Jón Trausti Reynisson, Björn Leví Gunnarsson og fleiri frægir tjá sig undir færslu hjá Agli Helgasyni fjölmiðla­manni hjá RÚV. Færsluna birti Egill í gær en í henni segir:

„Ég á frekar erfitt með afstæðishyggjuma sem felst í því að sann­leikur skipti minna máli en hverjir segja hlutina. Ég er ekki viss um að það sé hollt fyrir samfélög og alls ekki fjölmiðla.“

Þetta ritar Egill í kjölfar ásakana Frosta Logasonar á hendur Eddu Falak, uppljóstrun á ósannindum og yfir­lýsingar Heimildarinnar sem Edda starfar hjá. Málið hefur farið víða og mikill hiti skapast í umræðunni.

Færslan er ekki löng en fjöldi athugasemda hafa verið skrifaðar og hafa rokk­stjörnur, pólítikusar og fleiri frægir lagt orð í belg. Hér verður stiklað á stóru en færslu Egils má nálgast neðst í fréttinni.

Bubbi Morthens er kjarnyrtur og kveður: „Samála“

Ingibjörg Sólrún Gísla­dóttir virðist ekki vita um hvað færslan snúist, segir hana vísa í ýmsar áttir og spyr hvort hann hafa eitthvað sérstakt í huga.

Jón Trausti Reynisson virðist taka færsluna til sín, en hann er framkvæmda­stjóri Heimildarinnar. Hann segist vera sammála þó óljóst sé en útskýrir að alltaf hafi það skipt máli hver talar:

„[…] Hvað varðar fjölmiðla, er það einmitt afstaða gegn afstæðis­hyggju sem hefur verið tekin. Gangast við mistökum og röngum stað­hæfingum, leiðrétta, fram­fylgja vinnu­brögðum óháð hagsmunum. Um leið eru íslenskir frétt­miðlar mikið til að vinna eftir afstæðis­hyggju, að því leytinu að stór hluti þeirra afritar markvisst ásakanir á samfélags­miðlum á víxl og býr til fréttir í röðum án þess að kanna nokkuð sannleiks­gildi eða gefa færi á andmælum, nema þeim sé troðið upp á þá.[…]“

Hart er vegið að Jón Trausta og virðast þó nokkrir þungt hugsi yfir skrifum hans. Blaða­maðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson bendir honum á að eitt sé að ljúga en annað sé að ljúga að blaða­mönnum:

„[…] Sann­leikurinn er fundement fagsins. Fólk verður að geta treyst þeim upplýsingum sem er að finna í fjöl­miðlum. Ef svo er ekki hlýtur að hrikta í stoðum lýðræðisins sem grundvallast á upplýstri afstöðu. Ég þykist vita að vinir mínir á Heimildinni hljóti að fordæma afdráttar­laust lygar sem svo blaðamenn bera á borð fyrir lesendur?“

Jón Ólafsson nýtir tækifærið og deilir lagi eftir sig.

 Hall­grímur Helgason virðist sjá hlutina myndrænt, og uppsker töluverða gagnrýni fyrir sína athugasemd:

„Þetta er bara feðra­veldið að sparka í óþægilega konu. Same old shit. Klerka­veldis­stemning. Prófið að setja æjatollatúrban á Frosta og þá fáiði réttu myndina.“

Í svari við spurningu hvort Frosti hefði í svo mikilli ákefð kannað misfellur í fortíð annarra blaða­manna segir Egill Helgason:

„ég hef verið blaða­maður í mörg ár og man lítt til þess að kollegar hafi sagt ósatt um feril sinn. Í nútíma­samfélagi kemst slíkt yfirleitt upp – auk þess sem varla er þess virði að taka áhættuna. Það þarf dálítið sérstaka persónu­leika til að fara með svona fleipur. Blaða­maður sem missir trúverðug­leikann á óhægt um vik í starfi – og það er erfitt að ná honum aftur.“

Út frá spurningunni sem Anna María Sverris­dóttir varpar fram og svari Egils spannast heil­miklar umræður og stígur Margrét Tryggva­dóttir þar inn og spyr:

„Ekki að ég sé að afsaka neitt en var hún blaða­maður þegar hún sagði þetta?“

Margréti virðist í mun að vita hvort Edda hafi verið blaða­maður á þeim tíma sem hún laug og hvort það sé blaða­mennska ef hún starfaði ekki á þeim tíma sem blaða­maður: „var hún blaða­maður þá eða bara kona úti í bæ?“

Björn Leví Gunnarsson skrifar heillanga athugasemd og ræðir þar um störf þingmanna, breytingar­tillöguna og setur meðal annars hlekk að atvinnu­réttindum útlendingar.

Þá skrifar Þorvarður Goði Guðrúnarson tvær athuga­semdir en hér er brot úr fyrri:

„Það er samt vont ef máls­metandi einstaklingar varpa ábyrgð frá sér með því að einfalda sann­leikann niður í hvað sem þeir sjá og skilja sjálfir á því augna­bliki sem eitthvað gerist. Þá gæti maður farið að velta fyrir sér hvað hugtakið sann­leikur raun­verulega þýðir, er það upplifun þessa sama einstaklings, sýn eða skoðun á ákveðnu atriði eða atburðarás? […]“

Í seinni skrifar hann:

„Veit bara að Edda Falak skuldar syni mínum og fyrir­tækinu okkar fyrir fram­leiðslu og samstarf að fyrstu 32 þáttum af Eigin Konum, eða þangað til Gísli Marteinn tók hana undir sinn verndar­væng og hampaði henni í þættinum sínum. Í sömu viku breytti hún aðgangs­orðum að öllum samfélags­miðlum þeirra, skrifaði sjálfa sig sem eina aðstand­anda og eiganda verk­efnisins og síðan hef ég ekki heyrt meira, þrátt fyrir að hún hafi fengið reikning og bréf frá lögfræði­stofu um að gera upp sínar skuldir.“

Færslu Egils og athugasemdirnar má lesa hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim