Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Ugla varar við fangelsisvæðingu hæliskerfisins

„Að flokkar sem kenni sig við mann­rétt­indi telji þetta ásætt­an­legt er ein­hver brenglaður brand­ari“

Ugla Stefanía
Ugla Stefanía Ugla varar við þró­un­inni Mynd: Móa Hjartardóttir

Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, bar­áttu­kona og fyrr­ver­andi for­maður Trans Íslands, gagn­rýnir harð­lega áform stjórn­valda um að setja á fót svo­kall­aða „brott­far­ar­stöð“ fyrir hæl­is­leit­endur og fólk á flótta. Í Facebook-færslu sinni segir hún hug­mynd­ina í reynd jafn­gilda frels­is­svipt­ingu fólks sem hafi ekki framið neinn glæp.

„Það er ekki glæpur að koma hingað í leit að betra lífi, eða til að flýja stríð eða ofsóknir. Samt sem áður er svokölluð „brott­far­ar­stöð“ sem stjórn­völd hyggj­ast setja á fót lítið annað en fang­elsi. Fangelsi þar sem full­orðnir og börn eru svipt frelsi sínu fyrir þar eitt að vera á flótta eð sækja hér um hæli,“ skrifar Ugla.

Hún segir að mann­rétt­inda­sjón­ar­mið liggi skýr fyrir þegar frum­varpið sé skoðað og bendir á að fag­legar umsagnir styðji þá nið­ur­stöðu. „Það er öllum aug­ljóst sem lesa frum­varpið út frá mann­rétt­inda­sjón­ar­miði, og eru umsagnir frá sér­fræð­ingum og góð­gerð­ar­sam­tökum sem vinna í þessum mála­flokki afger­andi,“ segir hún.

Ugla hafnar alfarið þeirri hug­mynd að um mann­úð­ar­að­gerð sé að ræða og segir orð­ræð­una afmennsk­andi. „Hér er ekki að ræða um neina mannúð, bara meiri hörku, andúð og mis­munun í nafni „til­tektar“ – eins og fólk séu bara ein­hverjir hlutir og drasl sem við getum troðið ofan í skúffu eða hent í ruslið,“ skrifar hún.

Sér­stak­lega gagn­rýnir hún stjórn­mála­flokka sem skil­greina sig sem mann­rétt­inda­sinn­aða fyrir að styðja slíkar aðgerðir. „Að flokkar sem kenni sig við mann­rétt­indi telji þetta ásætt­an­legt er ein­hver brenglaður brand­ari,“ segir Ugla.

Að lokum varar hún við afleið­ing­unum fyrir sam­fé­lagið í heild ef sam­þykkt verði að skerða rétt­indi eins hóps. „Um leið og við sam­þykkjum að brotið sé á rétt­indum eins hóps eða þrengt að þeim, þá sam­þykkjum við að mann­rétt­indi séu umsemj­an­leg, frá­víkj­an­leg og háð geð­þótta stjórn­valda. Þá fyrst er voðin vís í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Aðeins um 150 þúsund af tveimur milljónum ólífutrjáa sem stóðu á Gaza fyrir stríðið eru enn eftir, samkvæmt gögnum landbúnaðarráðuneytisins þar.
Fólk

Átta mis­tök sem fólk ætti að forð­ast ef það flýgur um jólin

Heimur

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sól­ar­hrings­ins orðin nán­ast óbæri­leg“

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Innlent

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

„Ég biðla til þeirra þingmanna sem kalla sig jafnaðarmenn að beita sér gegn þessum breytingum“

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984