Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Grunur um þrjár byrlanir á Akureyri í nótt: „Eins og fólk sé meira meðvitað um þetta“

Akureyri -Myndin tengist fréttinni ekki beint -Mynd/skjáskot RÚV
Akureyri -Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint -Mynd/skjá­skot RÚV

Á Vísi í dag er sagt frá því að grunur leiki á að þremur hafi verið byrlað ólyfjan á Akureyri í nótt, tveimur konum og einum karlmanni.

Þar kemur fram að önnur kvennana hafi fundist nær rænulaus fyrir utan skemmtistað í bænum. Vinir hinna tveggja einstaklinganna komu þeim á slysa­deild.

„Það fór lögreglu­maður á bráða­móttökuna en við náðum ekkert að ræða við viðkomandi einstaklinga til þess að spyrja út í ferðir þeirra og fleira,” segir Árni Páll Jóhannesson, aðal­varðstjóri hjá lögreglunni á Norður­landi eystra.

Árni segir að rannsókn málsins sé á frumstigi og ekki sé vitað hvaða efni hafi verið notuð til að byrla fólkinu. Hann vill meina að almennt hafi ekki verið mikið um byrlanir á Akureyri, í það minnsta hafi lögregla ekki vitneskju um það.

Nú sé hinsvegar að eiga sér stað vitunda­vakning og því sé fólk hugsanlega meira á varðbergi og vakandi fyrir einkennum.

„Það er hefur verið mikil umfjöllun um byrlanir og þá er eins og fólk sé meira meðvitað um þetta og fylgist kannski meira með vinum sínum á djamminu. Af þeim sökum er fólk kannski að horfa meira eftir þessu og ef vinirnir eru kannski ekki alveg bara í ölvunar­ástandi þá kannski er farið með þau á bráða­móttöku til skoðunar,” segir hann.

Hann segir umræðuna jákvæða og gott að fylgst sé betur með þessu en áður.

„Það er bara mjög nauðsynlegt, til dæmis miðað við það sem hefur verið að gerast í höfuð­borginni og á skemmtistöðum að fólk sé meðvitað um þetta og fylgist betur með hvoru öðru,“ segir Árni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli