Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ella Stína beitir núvitund við innkaup: „Vel gjafir handa fólki sem það getur borðað“

Elín Kristín Guðmundsdóttir
Elín Kristín Guð­munds­dóttir

Matar­frumkvöðullinn, Elín Kristín Guðmunds­dóttir, er neytandi vikunnar að þessu sinni. Hún er gift Árna Sigurðs­syni viðskipta­fræðingi. Þau búa þau í Kópavogi og eiga þrjú börn, tengdason og hund. Elín rekur fyrir­tækið Ella Stína vegan og fram­leiðir vegan­vörur án allra aukaefna og viðbætts sykurs. Þau byrjuðu að selja eina tegund af buffi en eru í dag með átta vörur á markaði og fleiri í farvatninu.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég reyni að vera hagsýn þegar ég kaupi í matinn og passa að við sóum ekki mat. Fjöl­skyldan ákveður í sameiningu hvað skal hafa á borðum svo allir fái eitthvað við sitt hæfi. Það minnkar líkurnar á því að ég sé að eyða tíma í að versla inn og matbúa eitthvað sem endar svo í ruslinu. Ég er líka óhrædd við að frysta afganga og nýta aftur seinna sem sparar mikið og minnkar sóun töluvert. Ella Stína vegan er einnig í stöðugri vöruþróun og kem ég því oft heim með afganga úr tilrauna­eldhúsinu sem við nýtum í fjöl­breyttar máltíðir.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég hef alltaf átt auðvelt að búa til mat úr þeim hráefnum sem eru við höndina og nýti afganga vel. Það er gott að eiga nóg í frysti sem hægt er að taka fram og bæta við nýju meðlæti og sósu. Þá hefur maturinn öðlast alveg nýtt bragð og útlit og ekkert fer til spillis. Árið 2019 fór ég að beita núvitund í tengslum við innkaup og hefur þetta breytt mínu kaup­mynstri til batnaðar. Ég nýti þetta á hverjum degi og mæli hiklaust með að fólk kynni sér þessa aðferð. Einnig mæli ég með að reyna að endurnýta fatnað. Á okkar heimili er reynt að fara vel með fötin svo þau dugi lengi og koma þeim áfram þegar fjölskyldu­meðlimir eru hættir að nota þau.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég vel alltaf íslenskar matvörur fram yfir erlendar til að styðja við íslenska fram­leiðslu og minnka umhverfis­áhrif matar­framleiðslu í leiðinni. Ég reyni einnig að kaupa hæfilegt magn af mat miðað við þörf til að sporna við sóun. Litrík fæða úr plöntu­ríkinu er það sem við reynum að borða mest af og ber matar­karfan þess merki með fjöl­breyttu grænmeti, ávöxtum, baunum og korni. Ég reyni að kaupa sem mest lífrænt og forðast unnar vörum með langan lista af innihalds­efnum sem ég þekki ekki. Þegar ég versla fatnað á mig þá hef ég það fyrir reglu að kaupa ekki samskonar flíkur og ég á nema ég geti endurnýtt þær gömlu. Þetta hefur orðið til þess að ég versla minna á mig en áður, sem er bæði gott fyrir umhverfið og veskið mitt.

Þegar ég vel gjafir handa fólki reyni ég að finna eitthvað sem það getur borðað eða ég veit að það getur nýtt.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég er svolítið veik fyrir því að kaupa ný útivistar-og íþróttaföt og á erfiðast með að draga úr kaupum á þeim þegar kemur að sjálfri mér. Einnig öllu sem viðkemur eldhús­vörum sem auðvelda mér lífið í frumkvöðla­starfinu mínu.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Umhverfis­vernd er eitthvað sem varðar okkur öll og það er ábyrgð okkar allra að passa upp á náttúruna. Fjöl­skyldan er alltaf að reyna að betrumbæta sig í flokkun, veljum vörur sem eru innpakkaðar í minna plast og erum hætt að nota einnota plast heima. Við hjá Ellu Stínu vegan veljum plast­lausar umbúðir utan um okkar vörur ef það er hægt til að leggja okkar lóð á vogar­skálar umhverfis­verndar og gefa neytandanum tækifæri til að kaupa plast­lausa vöru. Dýravernd er okkur auðvitað einnig hugleikin og með því að neyta ekki dýravara og bjóða upp á íslenskar vegan­vörur þá erum við einnig að sinna umhverfis­vernd.

Ég myndi ráðleggja fólki að vera óhrætt við að prufa sig áfram í grænkera fæðu sem hefur áhrif á lífstíls­sjúkdóma og líka hefur áhrif á umhverfið okkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim