Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

„Rík­is­stjórnin ham­ast við að moka flór­inn eftir þessa sóða, en þeir standa á hlið­ar­lín­unni hróp­andi ókvæð­is­orð“

Formenn þriggja stjórnmálaflokka
Formenn þriggja stjórn­mála­flokka Björn Birgis hjólar í stjórn­ar­and­stöð­una Mynd: BHJ

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir og fyrr­ver­andi rit­stjóri frá Grinda­vík, sparar ekki stóru orðin í nýrri Facebook-færslu þar sem hann gagn­rýnir stjórn­ar­and­stöð­una harð­lega en færslur hans vekja að jafn­aði mikla eft­ir­tekt og umræðu. Í nýju færsl­unni sakar Björn fyrri rík­is­stjórn um að hafa skilið eftir gríð­ar­legar skuldir og segir núver­andi stjórn­völd þurfa að taka til eftir hana.

Björn beinir spjótum sínum einkum að Sjálf­stæð­is­flokknum, en hann gagn­rýnir einnig Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokk­inn og Mið­flokk­inn.

„Aðallega Sjall­arnir sem aldrei á að hleypa að opin­beru fjár­magni eða stjórnun af nokkru tagi,“ skrifar Björn og segir Vinstri græn vera á líkn­ar­deild­inni. Þá líkir hann stöðu Fram­sókn­ar­flokks­ins við ein­hvers konar löm­un­ar­veiki og segir Mið­flokk­inn ekk­ert kunna annað en að rífa kjaft.

Mest fer fyrir gagn­rýni Björns á fjár­mál rík­is­ins og þann halla sem hann segir fyrri rík­is­stjórn hafa skilið eftir.

„Við síð­ustu stjórn­ar­skipti stóð halli fjár­lag­anna í 805 millj­örðum. Slíkur halli er skuld fyrir fram­tíð­ina að greiða,“ skrifar hann.

Til að und­ir­strika gagn­rýni sína tekur Björn dæmi af smærri fyr­ir­tækjum og segir að ef verslun eða pylsu­vagn safn­aði hlut­falls­lega sam­bæri­legum skuldum á sjö árum yrðu eig­endur þeirra gjald­þrota og jafn­vel dæmdir til fang­els­is­vistar.

Hann segir núver­andi rík­is­stjórn þurfa að takast á við afleið­ingar fjár­mála­stjórnar fyrri rík­is­stjórnar og líkir stöð­unni við það sem gerð­ist í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árið 2008.

„Rík­is­stjórnin ham­ast við að moka flór­inn eftir þessa sóða, en þeir standa á hlið­ar­lín­unni hróp­andi ókvæð­is­orð,“ skrifar Björn.

Hann gagn­rýnir jafn­framt þá hug­mynd að stjórn­ar­and­staðan taki aftur við stjórn­ar­taumunum og segir að þeir sem hafi skapað vand­ann séu nú meðal þeirra sem gagn­rýni hvernig tekið sé á honum.

Í lok færsl­unnar vísar Björn til myndar sem fylgir henni og á að sýna Ísland með fjár­lagagat­inu. Hann beinir spurn­ingu að þeim sem hann telur bera ábyrgð á hall­anum og veltir fyrir sér hvort þeir ætli að greiða skuld­irnar með skatta­lækk­unum.

„Ætla þeir sem grófu hol­una að borga þessa skuld með lækkun skatta í landi tæki­fær­anna í útgerð­inni?“ spyr Björn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sól­ar­hrings­ins orðin nán­ast óbæri­leg“

Umferðartafir á Reykjanesbraut í Hafnarfirði eru miklar á álagstímum, að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar, sem kallar eftir úrbótum.
  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaup­unum

  • „Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda