Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fór í hjartastopp eftir eitraðan bjór: „Og ég vakna þremur dögum seinna á gjörgæslunni í Reykjavík“

Nýjasti gestur Mann­lífsins er maður sem gengið hefur í gegnum mikinn ólgusjó en það er skip­stjórinn Páll Steingrímsson.

Páll hefur verið mikið í fjöl­miðlum síðustu árin en hann er skip­stjóri hjá Samherja og komst í fréttirnar þegar hann var sakaður um að vera „skæruliði“ Samherja. Þá steig hann fram og sagði frá eitur­byrlun sem hann varð fyrir en í kjölfarið var síma hans stolið og komið í hendur fjölmiðla, að sögn Páls.

Skip­stjórinn segir Reyni Trausta­syni frá því þegar eiginkona hans þáverandi, sem hafði glímt við andleg veikindi, eitraði fyrir honum þegar þau stóðu í skilnaði, sem varð til þess að hann fór í hjarta­stopp. Páll hafði boðið henni að borða kvöldmat með sér og dóttur þeirra en svo hafi hann farið í sturtu, fengið sér bjór og horft á sjón­varpið en farið svo í háttinn.

„Þá kemur hún allt í einu aftur og heimta að fá að sjá símann minn. Og ég segi bara nei, við erum að skilja og þú hefur bara ekkert að gera með það að skoða símann minn.“

Reynir: „Af hverju vildi hún sjá símann þinn?“

Páll: „Ég veit það ekki. Ég segi bara nei, þú færð ekkert að sjá símann.“ Páll segir svo Reyni frá því að hún hafi farið fram en að hún hafi haft þann sið í mörg ár að ef það var ekki til kaffi, þá sótti hún bolla og setti smá bjór í hann og settist úti á svalir með sígarettu og bollann. Og hann hafi alltaf fengið afganginn á bjórnum. „Og ég drekk bara lítinn bjór. Nema þarna kemur hún með bjórinn allt í einu inn í herbergið. Ég var búinn að tann­bursta mig og segi „Nei, ég ætla ekki að drekka þetta“. En hún segir „Ætlarðu ekki að drekka bjórinn?“,“ sagði Páll og heldur áfram. „Ég sagðist vera búinn að tann­bursta mig en þá svarar hún „Ja, það þýðir ekkert að kenna mér um það ef verður flatur“. Og bara til að fá ekki rifrildi, þá bara tek ég hann og skelli honum í mig. Og ég segi „Hann er eitthvað beiskur þessi“, en hún segir „Þú veist að Thule er ekki beiskur“, og ég segi „Nei, það er alveg rétt“.“ Páll segir að konan hans fyrr­verandi hafi þá farið fram og hann upp í rúm. „Og ég vakna bara þremur dögum seinna á gjör­gæslunni í Reykjavík.“

Reynir spurði Pál hvernig það hefði uppgötvast um nóttina að ekki væri allt með felldu. Páll sagði að það væri eitthvað sem enginn skilur. Hann hefði vaknað um nóttina og haft smá meðvitund í um 15 mínútur en hann man ekki eftir því. „Ég næ að skríða yfir til nágrannanna. Ég var bara í náttbuxum og engu öðru. Ég næ til þeirra og banka á bakdyrnar, sem eru nær mér. En það kemur enginn til dyra þannig að ég skríð einhvern veginn að aðal­dyrunum hjá þeim. Næ að gera vart við mig því þegar þau svo opna, þá dett ég bara í fangið á þeim.“ Páll sagði að nágrannarnir hafi veitt honum fyrstu hjálp og hringt á sjúkrabíl. Þegar á sjúkra­húsið á Akureyri var komið var Páll með skerta meðvitund án þess að muna eftir því sjálfur og honum skilst að það hafi verið hægt að tala við hann eitthvað, þó það væri hálf samhengis­laust það sem hann sagði. „Það kemur alveg fram í gögnum að ég talaði um að það hefði verið eitrað fyrir mér. Ég segi það strax.“

Hægt er að hlusta á allt viðtalið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mannlífið

33:09
InnlentMannlífið

Sigríður notar hugvíkkandi efni til að vinna á áföllum: „Er búin að fara í gegnum allt snjó­flóðið“

Sigríður Rannveig Jóns­dóttir er nýjasti gestur hlaðvarps­þáttarins Mannlífið. Hún hefur gengið í gegnum ótrúlegar raunir á lífs­leiðinni en í janúar árið 1995 missti hún unga dóttur sína í snóflóðinu í Súðavík sem og tengda­foreldra. Hér er brot úr seinni hluta viðtalsins: Sigríður Rannveig hefur notast við allskyns aðferðir við að vinna úr áföllum sem hún hefur lent í á lífs­leiðinni...
33:09
MenningMannlífið

Málaði sig í gegnum sorgina eftir dóttur­missi: „Eitt málverk jafnaðist á við tuttugu sálfræði­tíma“

Sigríður Rannveig Jóns­dóttir er nýjasti gestur hlaðvarps­þáttarins Mannlífið. Hún hefur gengið í gegnum ótrúlegar raunir á lífs­leiðinni en í janúar árið 1995 missti hún unga dóttur sína í snóflóðinu í Súðavík sem og tengda­foreldra. Hér er brot úr seinni hluta viðtalsins: Sigríður Rannveig notaði málara­listina til að takast á við sorgina við að missa 18 mánaða gamla dóttur sína. „1996...
InnlentMannlífið

Hundurinn Hnota fann eldri dóttur Sigríðar eftir snjó­flóðið í Súðavík: „Biðin var skelfi­lega löng“

Sigríður Rannveig Jóns­dóttir er nýjasti gestur hlaðvarps­þáttarins Mannlífið. Hún hefur gengið í gegnum ótrúlegar raunir á lífs­leiðinni en í janúar árið 1995 missti hún unga dóttur sína í snóflóðinu í Súðavík sem og tengda­foreldra. Hér er brot úr fyrra hluta viðtalsins: Þegar snjó­flóðið skall á þorpið í Súðavík snemma morguns 16. janúar 1995, kastaðist Sigríður Rannveig út úr húsinu og...
32:51
MenningMannlífið

Sigríður missti dóttur sína í snjó­flóðinu í Súðavík: „Ég held að reiðin hafi bjargað lífi mínu“

Sigríður Rannveig Jóns­dóttir er nýjasti gestur hlaðvarps­þáttarins Mannlífið. Hún hefur gengið í gegnum ótrúlegar raunir á lífs­leiðinni en í janúar árið 1995 missti hún unga dóttur sína í snóflóðinu í Súðavík sem og tengda­foreldra. Hér er brot úr fyrra hluta viðtalsins: „Ég kvaldi mig svolítið yfir því að hafa látið þá litlu sofa sér, í sínu herbergi,“ segir Sigríður Rannveig...
29:15
MenningMannlífið

Sanna segir kynþátta­hatur vera aukast á Íslandi: „Verið að efast um það að þau tilheyri þjóðinni“

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir var í aðal­hlutverki við að koma Sósíalista­flokknum inn í borgar­stjórn. Hún braut ísinn og náði sjálf kosningu á þar síðasta kjör­tímabili. Í kosningunum þar á eftir náðu tveir fulltrúar kjöri. Nú stefnir hún á þing og flokkur hennar undirbýr framboð í öllum kjördæmum. Krafta­verkakonan Sanna segir sögu sína í Mann­lífinu. Í þættinum ræðir Sanna meðal annars um...
29:15
MenningMannlífið

Fátækt í æsku hafði mótandi áhrif á Sönnu: „Það náttúru­lega á ekki að líðast“

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir var í aðal­hlutverki við að koma Sósíalista­flokknum inn í borgar­stjórn. Hún braut ísinn og náði sjálf kosningu á þar síðasta kjör­tímabili. Í kosningunum þar á eftir náðu tveir fulltrúar kjöri. Nú stefnir hún á þing og flokkur hennar undirbýr framboð í öllum kjördæmum. Krafta­verkakonan Sanna segir sögu sína í Mann­lífinu. Í þættinum ræðir Sanna meðal annars um...
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt