Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fyrrum dagskrárstjóri um sjónvarpsfréttir Rúv: „Svona klisjur pirra mig eða hlægja eftir atvikum“

Magnús R. Einarsson
Magnús R. Ein­ars­son

Fyrr­verandi dagskrár­stjóri Ríkis­útvarpsins gagnrýnir sjónvarps­fréttir Rúv í nýrri færslu á Facebook. Segir hann meðal annars að frétta­þulir séu „klæddir og greiddir eins og Garðbæingar á leið á árshátíð.“

Magnús R. Einarsson, fyrr­verandi dagskrár­stjóri útvarps á Rúv skrifaði forvitni­lega færslu á Facebook. Í færslunni gagnrýnir hann sjónvarps­fréttir Rúv, allt frá útliti og fasi frétta­þulanna og í endur­tekningar frétta í lok frétta­tímans. Á einum stað segir Magnús frétta­þulina vera formfasta og íhalds­sama „í framkomu og klæða­burði“. Þá nefnir hann einnig það sem hann kallar „óheppilega kæki og hækjur“ frétta­þula er þeir kynna og afkynna frétta­menn og tekur sem dæmi þegar frétta­mönnum er þakkað fyrir „vondar fréttir.“ Færsluna má lesa í heild hér fyrir neðan.

„Þegar ég er utanlands þá horfi ég og hlusta stundum á fréttir Ríkis­útvarpsins í sjón­varpinu. Annars eiginlega ekki einhverra hluta vegna. Sjónvarps­fréttir voru eitt sinn fastur liður í kvöld­prógramminu hjá manni en ekki lengur. Ég hef til að mynda töluvert meiri áhuga á erlendum fréttum en innlendum og Ríkis­útvarpið sjónvarp fullnægir þeim áhuga takmarkað. Kvöld­fréttatími sjón­varpsins er soldið forvitnileg þáttagerð. Það er búið að rápa með frétta­þáttinn fram og til baka í kvöld­dagskránni og hann hefur tekið ýmsum breytingum i áranna rás eins og kennski eðlilegt má teljast. Flest er í föstum skorðum. Frétta­þulirnir eru form­fastir, íhalds­samir jafnt í framkomu og klæða­burði. Þeir hafa vissulega komið sér upp nokkrum óheppilegum kækjum og hækjum þegar þeir kynna og afkynna frétta­menn, sem getur flækt þeim tungu um háls. Stundum er þetta pínlegt eins og þegar frétta­mönnum er þakkað fyrir að hafa sagt afar vondar fréttir. T.d. Frétta­maður: “ og ljóst að hér hefur greini­lega orðið gríðarlegt tjón“ – Þulur: „takk fyrir það Jón Jónsson.“ Svona klisjur pirra mig eða hlægja eftir atvikum. Þulirnir okkar eru þó oftast skýrir, vel mæltir og koma vel fyrir. Klæða­burður þulanna er samt einkenni­lega hugsaður. Þeir eru allir klæddir og greiddir eins og Garðbæingar á leið á árshátíð. Uppstrílaðir. Og í engum tengslum við neytendur að því leyti. En eitt furðulegasta dæmið um klæðaburð þula var samt þegar fréttin af dauðsfalli Elísabetar annarrar Breta­drottningar var lesin, þá klæddist þulurinn svörtu sorgar­dressi. Ómægod, datt þá uppúr mér. Frétta­þátturinn hefst alltaf á útblásnum syntaþeysingi, svo koma helstu atriði frétta, í fyrra sinnið í þættinum. Þannig byrjar sjóið. Í gamla daga var lang­flottasta stefið notað, spilað á vibrafón, heil­tónaröð eftir Gunnar Reyni Sveinsson, ef ég man rétt. Það var orginal, einfalt og smart með skirskotun í eilífðina. Stefið sem notast er við núna boðar nánast ótíðindi eða jafnvel heimsendi á hverju kvöldi. Svo koma fréttirnar í röð eftir því hversu áríðandi og mikil­vægar þær teljast fyrir almenning. Oftast gengur þetta snurðu­laust fyrir sig. Frétta­þátturinn batnaði mikið eftir að sjónvarps­menn komust loks að því að sjónvarps­frétt er nánast óskiljanleg ef hljóðið er óskýrt eða vantar, hversu flott sem myndefnið annars er. Það var reyndar fyrir mörgum árum. Í lok frétta­tímans eru helstu fréttirnar frá upphafi endur­teknar, þeim troðið oní okkur eins og við séum öll með kollektívan athyglis­brest og búin á gleyma öllu sem við heyrðum og sáum á undan­förnum tuttugu mínútum. Verst er svo að það er búið að búta niður fréttir af veðri og íþróttum, en það er nú ekki frétta­stofunni að kenna heldur markaðs­öflunum á Efstaleiti. Sem eðlilegt er þá er stundum lítið að frétta hjá fámennri þjóð á hjara veraldar en það boðar hins vegar mikinn vanda hjá frétta­þættinum því það þarf að fylla tímann. Þá komast oft skemmilegustu og furðulegustu fréttirnar að. Oft líka svokallaðar „næstum­þvífréttir“, eins og „lá við stórslysi þegar sprakk á vörubíl upp á heiði í þoku“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim