Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Heimsyfirráð eða dauði hjá Silla kokki

Silli er ávallt í miklu stuði
Silli er ávallt í miklu stuði

Sigvaldi Jóhannsson, yfirleitt kallaður Silli kokkur, er einn frægasti og besti kokkur Íslands. Hann er með þúsundir fylgjenda á samfélag­miðlum, rekur eina bestu veislu­þjónustu landsins ásamt því að reka marg­verð­launaðan matarvagn og svo hefur hann einnig gefið út bók. Hann lætur ekkert stoppa sig og er nýbúinn að opna glæsi­legan veitinga­stað sem nefnist Silli kokkur og er stað­settur á Höfða. 

„Það er brjálað að gera í öllu,“ sagði hlægjandi Silli í samtali við Mannlíf þegar hann var spurður hversu mikið væri að gera hjá honum þessa dagana. „Ég er nátt­úrlega með yfir 40 vörur sem ég er að framleiða fyrir jólin þannig að ég vinn allan sólar­hringinn. Núna er ég að búa til lager og það er unnið dag og nótt.“

Óhætt er að segja að elda­mennskan sé köllun Silla, en hann hefur verið í veitinga­bransanum síðan hann man eftir sér. „Sumir hafa val, en ég fæddist inn í þennan bransa,“ sagði Silli um hvernig þetta blessaða kokka­ævintýri hófst. „Pabbi minn var yfir­kokkur á Gaflinum og kenndi í hótel- og matvæla­skólanum í einhver 30 ár og ég ólst upp við það að skræla kartöflur. Það var ekki hægt að kaupa forsoðnar kartöflur í gamla daga. Þannig að ég hef alltaf verið í þessu,“ en Silli hefur áratuga reynslu af að elda ofan í mikinn fjölda manns og var sennilega með erfiðasta kúnnahóp sem hægt er að elda fyrir.

Matar­vagninn frægi varð til vegna COVID 

„Ég rak mötuneyti Tækni­skólans í 14 ár og var þá að elda ofan í rúmlega hundrað manns á hverjum degi og var með heiðar­legan og góðan heimilismat,“ sagði kokkurinn snjalli um hvar hann lærði að elda fyrir marga, eitthvað sem er gífurlega gagnlegt þegar maður rekur veislu­þjónustu. „Svo eftir það þá fór ég í að opna veislu­þjónustu, en svo kom COVID og þá voru engar veislur og þá opnaði ég matar­vagninn. Hann er COVID-barn. Það var annaðhvort að hætta og fara gera eitthvað allt annað eða finna upp á einhverju nýju og það voru hamborgarar og pylsur. Ég hafði verið að framleiða það í litlum mæli fram að því, en eftir COVID þá þurftum við að búa til grill­pakka, það var að koma sumar, og það vatt upp á sig.“

Nýr veit­inga­staður Silla er flottur að innan

Mikið hefur verið rætt um verðlag á íslenskum veitinga­húsum á undan­förnum árum, en Silli telur að fólk átti sig ekki almennilega á allri þeirri vinnu og kostnaði sem fer í að reka veitingahús. „Ég var spurður hvort ég væri ekki búinn að ráða menn í eldhúsið, sem græja og gera allt. Það er ekkert þannig,“ sagði Sigvaldi um þennan misskilning, en hann leggur gríðar­lega mikinn tíma í þessa köllun sína. „Það er ástæða fyrir því að ég ætla að vera með lokað á mánudögum og þriðjudögum, það er ekki þannig að ég verði í fríi, heldur verð ég að þá daga, verð að nota þá til að framleiða vörur fyrir veitinga­staðinn. Því við gerum allt frá grunni. Alla hamborgara, allar sósur, allt meðlæti. Ég hringi ekki í Esju og panta tvö þúsund hamborgara og fæ þá senda á mánudegi til að steikja um helgina. Ég þarf að vera í eldhúsinu að vinna og ég held að fólk átti sig ekki vinnunni og tímanum sem fer í þetta. Ég hef ekki farið á neina fótbolta­leiki eða séð leikrit hjá börnunum mínum, ég er alltaf í vinnunni. Ég er búinn að missa af rosalega miklu vegna þess að ég er alltaf að vinna. Maður hefur fært margar fórnir til að komast á þann stað sem maður er á í dag. Fólkið sem fylgist með mér á Snapchat spyr stundum: „Hvenær sefurðu, Silli?“. Ég mæti í vinnuna klukkan níu og ég er að fara heim eftir miðnætti. Dag eftir dag eftir dag. Það er búið að vera þannig síðan í apríl.“

Silli skilur samt hvaðan fólk er að koma með þessum vanga­veltum, hann hafi sjálfur pælt í þessum hlutum. „Ég er búinn að hugsa þetta sjálfur, maður hugsar oft: „Vá, það er orðið dýrt að fara út að borða“, en skynjunin mín eftir að hafa sjálfur opnað veitinga­stað og eytt miklu fé í það, er að ég muni aldrei aftur kvarta undan verði á veitinga­stöðum,“ sagði hann um málið. „Það er kosta mig 70 til 80 milljónir að opna þennan veitinga­stað. Það tekur gífur­legan langan tíma á Íslandi að fara í gegnum kerfið til að opna svona staði, kerfið er alltof seinvirkt.“

Heiðar­legur matur í góðu andrúms­lofti

Varðandi veitinga­staðinn þá segir Silli glottandi að markmiðið sé heims­yfirráð eða dauði. Þangað geti fólk komið og borðað góðan mat í góðri stemmingu. „Það er allt gert frá grunni og er góður og heiðar­legur matur. Þú kemur þarna og „ahhhh“, afslappað andrúms­loft. Þetta verður svona kántrí-fílingur sem er svona nútíma. Þetta er allt brúnt og viðar og „rustic“. Þetta snýst um að líða vel og slappa af,“ en á veitinga­staðnum verður einmitt hægt að fá hinar vinsælu matar­körfur Silla og verða þær vinsælli með hverju árinu.

„Við erum í raun með einhverjar átta útfærslur sem er hægt að velja, en svo getur fólk líka búið til sjálft úr vörunum okkar, hvað sem það vill. Rekstrar­vörur kaupa til dæmis alltaf kæfuna hjá okkur og setja hana svo í körfu hjá sér með öðru. Þannig að fólk tekur stundum einstaka vörur og setur með öðrum körfum, þannig að það er allur gangur á því. Þær eru búnar til úr þeirri villibráð sem við fram­leiðum. Vína­grettur, sultaðir laukar, gæsa­bringur, pâté, kæfu og annað. Svo eru fyrirtæki sem kaupa vín með og sum gefa bókina mína með,“ en hún kom út í fyrra og fékk mikið lof og endaði í mörgum jóla­pökkum.

En úr mörgum frábærum réttum á matseðli hvað ætti að vera það fyrsta sem fólk fær sér á nýja veitinga­staðnum hans Silla?

„Það er gæsa­hamborgarinn, sem er búinn að vinna öll þessi verðlaun. Það er fyrsta barnið mitt, maður ber alltaf sterkar taugar til þess,“ svaraði Silli án þess að hika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur