Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Húð- og snyrtivöruiðnaðurinn þarf að taka sig saman í andlitinu

Dr. Guðrún Marteinsdóttir leiðir TARAMAR
Dr. Guðrún Mart­eins­dóttir leiðir TARAMAR Mynd: Stefán Karlsson

Á undan­förnum árum hefur íslenska nýsköpunar­fyrirtækið TARAMAR komið með nýjar, heilsusamlegar lausnir fyrir þá sem vilja, eða hreinlega þurfa, bæta og endur­byggja húðina. Heilarnir á bak við TARAMAR eru hjónin Guðrún Marteins­dóttir, prófessor í fiska­vistfræði, og Kristberg Krist­bergsson, prófessor emeritus í matvæla­fræði, sem hafa þróað og fengið einka­leyfi á byltingar­kenndum aðferðum til að framleiða húðvörur án þess að nota eiginleg rotvarnar­efni eða nein önnur efni sem geta verið slæm fyrir húð og líkama.

Hrein­leiki húðvara er ekkert til að grínast með

Húðvörurnar sem hjónin hafa þróað saman skipta þau persónu­lega miklu máli, þar sem Rúna hefur sjálf þurft að glíma við húðvandamál um ævina sem hafa verið henni til ama. „Þróunina á TARAMAR má rekja til vandamála sem ég hafði með húð mína. Þegar ég fór að lesa um innihalds­efni í húðvörum, þá átti ég ekki til orð yfir hvað var í gangi. Allir voru að tala fallega um sínar vörur og sögðu að þær væru afburða­hreinar og -virkar. Í mörgum tilfellum var erfitt að finna lista yfir innihalds­efnin án þess að fara og kaupa vörurnar og oft voru bara aðalefnin listuð, en það eru einmitt aukaefnin sem vert er að hafa áhyggjur af og það er ódýr leið að afvega­leiða fólk með því að lista bara aðalefnin upp. Ég var fyrst hissa eftir að ég fór að skoða innihalds­efnin. Ég var fimmtug og farin að sjá áhrif öldrunar á andlitinu um leið og ég glímdi við mjög erfið húðvandamál sem voru afleiðing af skordýra­biti sem ég hafði fengið þegar ég var í námi í Banda­ríkjunum 25 árum fyrr.“

Áhugi Rúnu þróaðist yfir í langtíma­rannsóknir. Hún komst að þeirri niður­stöðu að efnin sem notuð eru í krem og snyrti­vörur gætu haft gríðar­lega skaðleg áhrif. „Athuganir mínar á innihalds­efnum, sem síðar breyttust í langtíma­rannsóknir, sýndu að þeir sem voru að blanda þessar vörur báru ekki hagsmuni neytenda fyrir brjósti. Þar var að finna mörg efni sem eru í raun hræðileg, svo sem formalín, stoðefni notuð í byggingar- og bíla­iðnaði og mörg hormónaruglandi efni sem og efni sem við nánari athugun kom í ljós að voru tekin hratt upp í gegnum húðina og settust að í líffærum og lifandi vefjum líkamans, þar sem þau gátu haft eitrandi og jafnvel krabbameins­valdandi áhrif. Í raun varð ég öskureið þegar ég kynnti mér þetta og mér blöskraði hvernig fyrirtæki gátu talað annars vegar um hvað þau voru hrein, notuðu eingöngu „free trade“ og sjálfbær innihalds­efni á meðan þau smeygðu inn bakdyramegin skelfi­legum efnum sem hreinlega gátu verið skaðleg og blönduðu þeim saman við hin svokölluð hreinu efni.“

TARAMAR vör­urnar eru full­kom­lega hreinar og byggja á líf­rænt rækt­uðum jurtum úr íslenskri nátt­úru

Loforð á loforð ofan

Guðrún vill meina að fram­leiðendur snyrti­vara í dag kasti fram full­yrðingum án þess að geta staðið við þær. „Í dag veit ég að þetta fyrirbæri, þar sem allir fram­leiðendur staðhæfa að þeirra vörur séu hreinar, öruggar og náttúrulegar, án þess að geta í raun staðið við þessar stað­hæfingar, er kallað „greenwashing“. Þessi markaðs­setning tröllríður snyrti- og húðvöru­iðnaðinum í dag og neytendur hafa enga leið til að finna út það rétta til að vita hverjum þeir eiga að treysta.“

Heiðar­leikinn skiptir máli 

Heiðar­leiki skiptir Rúnu höfuðmáli og hefur það orð verið lykilorð þegar kemur að allri markaðs­setningu þeirra á vörum sem TARAMAR fram­leiðir. „Þar sem ég hafði upplifað þessi svik á eigin skinni, sem venju­legur neytandi áður en TARAMAR verkefnið hófst, þá var ég ákveðin í því að TARAMAR myndi einkennast af heiðar­leika og að aldrei yrðu farnar leiðir í þróun á uppskriftum sem gætu á nokkurn hátt haft skaðleg áhrif á menn eða umhverfi. Það gerir enginn sér grein fyrir hvað þetta í raun og veru þýðir, en að fara þessa leið er margfalt dýrara og krefst mikillar vinnu og mælinga á öllum efnum. Jafnvel þótt efni hafi lífræna vottun, sérstak­lega ef þau koma erlendis frá, þá geta þau inni­haldið leifar af skor­dýraeitri, illgresiseyði eða sveppa­eitri sem hefur borist inn á akrana annars staðar frá, eða hreinlega verið úðað á akrana án eftirlits. Og hvað þá með náttúruleg efni sem eru ekki vottuð. Þessi efni eru í öllum tilfellum gegnsósa af eitur­efnum. Sem dæmi þá eru akrarnir í Norður-Ameríku úðaðir 5-7 sinnum á ári með eitrandi efnum sem eiga að drepa skordýr, illgresi og sveppi. Þetta eitur sest að í lifandi vefjum og kemur með náttúru­efnunum inn í húðvörurnar. Neytendur hafa enga leið til að meta hvort vörurnar innihalda mikið af þessum efnum, þeir geta í besta falli valið vörur með lífrænt vottuðum innihalds­efnum.“ 

Þá hafa fram­leiðendur í hinum stóra heimi snyrti­vara reynt að komast fram hjá reglum hvað varðar ýmiss konar efni og magn sem má setja í húðvörur að sögn Rúnu. „Hvað varðar önnur efni, eins og parabenin, benzyl afleiðurnar, phenoxyethanol og glyclo, sem finnast í eiginlega öllum húðvörum, þá geta neytendur lesið innihalds­lýsingarnar og reynt að varast þessi efni. Sum af þeim eru leyfð í litlu magni eins og phenoxyethanol sem má ekki nota í meiri styrk­leika en 1%, en eftirlits­mælingar hafa sýnt að fram­leiðendur setja oft mikið meira í vörurnar.“ 

Rann­sóknir á rot­varn­ar­efn­inu phen­oxyet­hanol sýna að það hefur eitr­andi áhrif á lif­andi vefi. Hér má sjá áhrif þessa efnis á rót­ar­vöxtur við styrk­leika 0, 2, 5 og 10 mM

Notast aðeins við íslenskar lífrænar afurðir

Það er mikil lukka fyrir þau að vera svo nálægt góðu hráefni sem er hægt að nota í vörur fyrir­tækisins, enda telur Rúna það gífurlega mikil­vægan þátt í vörunum. „Við erum svo lánsöm að hafa aðgang að úrvals­hráefni hér á Íslandi. Þannig er ein öruggasta leiðin til að forðast falin, eitrandi efni í náttúru­legum afurðum, að framleiða efnin sjálf eða kaupa þau af fólki sem stundar lífrænan búskap. Við fáum jurtir og þang frá Bláskel í Breiða­firði, Í skjóli Skyggnis í Grímsnesinu og Móður Jörð á Fljótsdals­héraði. Þessar náttúru­afurðir eru afburða­hreinar, gríðar­lega öflugar og bera af öllu sem við höfum séð, en við höfum í gegnum tíðina fengið hundruð af sýnum af jurtum og þangi alls staðar að af hnettinum.“

Þá segir Guðrún að hún standi standi og falli með vörunum sem TARAMAR fram­leiðir. „Til að losna við öll erfiðu og hormónaruglandi, manngerðu efnin, þá þróuðum við nýja aðferð sem gerir okkur kleift að setja saman formúlur án þess að nota eiginleg rotvarnar­efni, eða nein af þeim óæskilegu efnum sem almennt finnast í svo til öllum húðvörum. TARAMAR stendur við það, að fólk getur treyst því 100% að vörurnar eru hreinar og öruggar og ekkert í gangi sem ekki má segja frá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur