Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hitinn nær allt að 20 gráðum um jólin

Hita­metið gæti fallið fyrir austan

Smábátahöfnin á Borgarfirði eystri
Smá­báta­höfnin á Borg­ar­firði eystri Ef allt gengur eftir verður hita­metið fyrir des­em­ber slegið á jól­unum Mynd: Shutterstock

Útlit er fyrir óvenju­lega hlýju veðri á Aust­ur­landi um jólin og er jafn­vel mögu­legt að hit­inn fari upp í tutt­ugu gráður, ef allar aðstæður falla saman. Hlý­ind­unum fylgir þó snarpt hvass­viðri og hafa íbúar verið hvattir til að festa lausa­muni, enda hefur Veð­ur­stofan gefið út gula við­vörun vegna veð­urs­ins. Þetta kemur fram í umfjöllun Aust­ur­fréttar.

„Það er mjög hlýtt loft hátt yfir land­inu. Til að það bland­ist niður þarf hvassan vind til að mynda hnjúka­þey. Þetta verður ekki nota­legur hiti því það þarf mik­inn vind til að þrýsta honum niður,“ segir Teitur Arason, veð­ur­fræð­ingur hjá Veð­ur­stofu Íslands.

Samkvæmt spám getur hit­inn farið í 17–18 stig á stöku stað, og þó des­em­ber­metið sé 19,7 stig telur Teitur mögu­legt að hit­inn nái 20 stigum þar sem full­nægj­andi mælar eru til staðar, en þá þurfi allt að smella saman.

Teitur segir erfitt að segja til um hvar hlý­indin verði mest, en nefnir að Skjald­þings­staðir á Vopna­firði, Seyð­is­fjörður og jafn­vel Borg­ar­fjörður eystri geti notið góðs af hnjúka­þey.

Hlýja loftið kemur langt að, frá Atl­ants­haf­inu á breidd­argráðu Spánar, en hæðir beggja megin Atl­ants­hafs­ins, einkum við Skand­in­avíu og Bretland, beina því til Íslands.

Kólnar eftir jólin

Gular við­var­anir gilda fyrir Aust­ur­land að Glett­ingi og Aust­firði, þar sem spáð er suð­lægum og suð­vest­lægum vindi, 15–23 m/s, með hvössum hviðum við fjöll sem geta farið yfir 30 m/s. Slíkar aðstæður geta valdið vand­ræðum fyrir öku­menn og lausa­munir eru taldir í hættu á að fjúka.

„Það hvessir í kvöld og verður hvasst allan morg­un­dag­inn. Á jóla­dag lægir aðeins en á annan í jólum verður kom­inn hæg­ari vindur og þá fer að kólna. Yfir helg­ina verða ljúfir dagar með hita í kringum frost­mark,“ segir Teitur.

Aðvörun vegna ofanflóða og lausra muna

Skriðu­vakt Veð­ur­stof­unnar hefur einnig varað við hættu á ofan­flóðum víða um land, þó að mestu á vest­an­verðu land­inu þar sem úrkoma verður meiri; aust­an­lands verður áfram þurrt. Mikill vindur gæti einnig valdið skemmdum á mann­virkjum, t.d. með því að losa þak­plötur, en minni hætta er talin á slíku eystra.

„Vindur er minni á Aust­ur­landi en Norð­ur­landi. En það er rétt að kippa inn jóla­skraut­inu, ef það er laust og lík­legt til að taka á sig vind,“ segir Teitur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp