Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ný verksmiðja rís í Hafnarfirði

Afköstin verða um 70 milljónir lítra á ári

Brynjar Freyr Valsteinsson
Brynjar Freyr Val­steins­son Gos­fé­lagið hefur fram­leiðslu í sumar Mynd: Aðsend

Nýr íslenskur drykkjar­fram­leiðandi, Gosfélagið, stefnir að því að hefja fram­leiðslu á Klaka á næstu vikum, en uppsetning framleiðslu­lína er nú á lokastigi. Gert er ráð fyrir að fram­leiðsla á Klaka í plast­flöskum hefjist um mánaða­mótin maí–júní og að dósa­framleiðsla fylgi um mánuði síðar.

Vélbúnaður til fram­leiðslunnar barst til landsins fyrir helgi og verið er að setja upp tvær framleiðslu­línur í nýrri, 2.000 fermetra aðstöðu félagsins í Hafnar­firði. Afkasta­geta verksmiðjunnar verður um 70 milljónir lítra á ári.

„Gosfélagið tók yfir sölu og dreifingu á Klaka og Djúsí klaka síðastliðið haust og nú er svo komið að Klaki í tveggja lítra plast­flöskum er uppseldur. Nægar birgðir eru af Klaka í dós. Það styttist hins vegar verulega í að við getum aftur boðið upp á Klaka í nýjum, umhverfis­vænni plast­flöskum en áður,“ segir Brynjar Freyr Valsteinsson, framkvæmda­stjóri Gosfélagsins.

Félagið byggir á innlendri fram­leiðslu og verður eitt af fáum fyrir­tækjum á Íslandi sem framleiða íslenska gosdrykki. Vatnið sem notað er í fram­leiðsluna kemur úr Kaldár­botnum, sem þykja meðal hreinustu vatns­linda landsins.

„Við ætlum að verða leiðandi í fram­leiðslu óáfengra drykkja. Klaki hefur notið vaxandi vinsælda meðal Íslendinga undan­farin ár enda drykkirnir ferskir og svalandi. Með nýju framleiðslu­línunni tryggjum við gæði og öryggi vörunnar en afkasta­getan verður um 70 milljón lítrar á ári. Fram­leiðslan á Klaka er fyrsta skrefið en í fram­tíðinni stefnum við á að auka við hana og kynna til sögunnar nýja og spennandi drykki,“ segir Brynjar.

Að Gosfélaginu standa Brynjar Freyr og Kristján Elvar Guðlaugsson ásamt fjár­festunum Ásgeir Johansen og Loftur Bjarni Gíslason. Þeir tveir fyrr­nefndu hafa yfir tveggja áratuga reynslu af dagvörumarkaði og fram­leiðslu drykkja hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Peningar

Kröfu­hafar Skagans 3X boðaðir á fund

Félagið var úrskurðað gjaldþrota í júlí 2024. Kröfuhafar geta nú kynnt sér tillögu að úthlutun úr þrotabúinu.
  • Kaup­máttur jókst um 5,8 prósent frá upphafi kjara­samninga­lotunnar

  • Skiptum lokið á þrotabúi Talays

  • Elís segist hafa tapað 100 milljónum í viðskiptum við fjárfesta

  • Prett­yboitjokkó stofnar fyrirtæki með fyrrum lands­liðsmanni

  • Landsliðs­konur í ný störf