Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Ísraelsher skaut tvö palestínsk börn til bana á Vesturbakkanum – Adam var 8 ára, Basil var 15 ára

Barnamorðin.
Barna­morðin. Mynd: Al-jazeera skjáskot

Leyniskyttur ísra­elska hers­ins drápu tvö palest­ínsk börn í árás á Jenin-flótta­manna­búð­unum á Vest­ur­bakka Palest­ínu í gær.

Adam Samer al-Ghoul, átta ára gam­all, var skot­inn í höf­uðið af leyniskyttum ísra­elska hers­ins og Basil Suleiman Abu al-Wafa, 15 ára, var skot­inn í bring­una. Báðir lét­ust þeir af sárum sínum.

Fram kemur í frétt Al Jazeera að ísra­elski her­inn hafi neytt íbúa ad-Damj hverf­is­ins á Vest­ur­bakk­anum, að yfir­gefa heim­ili sín, með valdi og eyðilögðu svo götur hverf­is­ins. Þá not­aði her­inn einnig flygyldi til að sprengja hús.

Í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu ísra­el­skra fjöl­miðla, landamæra­lög­regl­unnar, ísra­elska hers­ins og Shin Bet örygg­is­stofn­un­ar­innar, kemur fram að her­inn hafi drepið tvær mann­eskjur sem tóku þátt í vopn­aðri and­spyrnu, en annar þeirra hafi verið lykil leið­togi. Nöfn þeirra eru Muhammad Zubeidi og Hussam Hanoun. Í til­kynn­ing­unni er við­ur­kennt að tvær aðrar mann­eskju hefðu lát­ist í kjöl­far átaka á svæð­inu.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni voru 17 Palest­ínu­menn hand­teknir í árásinni.

Mynd­skeið úr örygg­is­mynda­vélum hefur verið í dreif­ingu á sam­fé­lags­miðl­unum en þar sést drengur falla í göt­una í flótta­manna­búð­unum, eftir að hafa orðið fyrir byssu­kúlu. Í öðru mynd­bandi sést drengur fá í sig skot og liggja í göt­unni, kallandi á hjálp á meðan fleiri kúlum rignir í kringum hann.

Eldri dreng­ur­inn sést berj­ast fyrir lífi sínu á jörð­inni í að minnsta kosti hálfa mín­útu.

Þá komu ísra­elskir skrið­drekar í veg fyrir að sjúkra­bílar kæmust á svæðið til að huga að slös­uðum.

Ísra­elski her­inn hafa nær dag­lega gert skyndi­árásir á Vest­ur­bakk­anum frá 7. októ­ber. Samkvæmt PPS (Palest­ínska fanga­sam­fé­lagið) og fanga­mála­stofnun Palest­ínu, hafa her­sveitir Ísraela hand­tekið 35 Palest­ínu­búa á Vest­ur­bakk­anum síð­asta sól­ar­hring, þar af einn 12 ára.

Frá 7. októ­ber hafa fleiri en 3.325 verið hand­teknir á Vest­ur­bakk­anum og að minnsta kosti 242 verið drepnir, þar af 50 börn. Þá hafa meira en 2,750 slasast.

Hér má sjá annað mynd­skeiðið en við­kvæmir eru varaðir sterk­lega við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

„Við erum að skapa framandi verur“

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest