Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

María leiksskólastýra sýndi foreldrum trúnaðarskýrslu Barnaverndar: „Þetta eru bara opinber gögn“

„Þar var bara opinber gögn að finna eins og til dæmis skýrsla frá Barna­vernd, og skýrsla frá Reykjar­víkurborg, heilbrigðis­eftirlitinu varðandi aðstöðuna í skólanum, sem er í rauninni eðlilegt,“ sagði María Ösp, leik­skólastjóri Sælukots, í viðtali við Mannlíf í dag.

Móðir barns sem var á leik­skólanum Sælukoti sagði frá reynslu sinni í viðtali fyrr í vikunni.

Þar rekur hún samskipti sín við leik­skólann. Móðirin segir að leik­skólinn hafi brugðist eftir að grunur vaknaði um að barn hennar hefði mögulega orðið fyrir kynferðis­ofbeldi af hálfu starfs­manns  leik­skólans.

Ekki náðist í stjórn­endur Sælukots við vinnslu fyrri fréttar en Mannlíf ræddi við Maríu Ösp leik­skólastjóra og forstöðu­mann Sælukots í dag.

Móðirin segist í viðtalinu hafa spurt stjórn­endur leik­skólans hvort þyrfti ekki að upplýsa foreldra um málið en það var þvertekið fyrir það.

„Við sem fyrirtæki þurfum að fylgja reglum varðandi starfs­fólk ,við getum ekki upplýst alla foreldra eða starfs­fólk um einstök mál. Það er bara brot á  reglum sko, það er að sjálfsögðu ekki hægt að gera það,“ sagði María og bætti við að fylgja þyrfti slíkum reglum:

„Við getum ekki sem stofnun farið á skjön við lög og reglur varðandi það.“

Móðir barnsins tók málin í sínar hendur og upplýsti foreldra um málið. Hún tók fram að hún hafi ekki talað um nein smáatriði eða ýtarlegar lýsingar, né hafi hún nafn­greint starfs­manninn.

Í kjölfarið kallar Sælukot til fundar með foreldra­ráði, en foreldrar höfðu einnig óskað eftir fundi með leik­skólanum að sögn Maríu leik­skólastjóra. Á slíkum fundi er farið yfir hin ýmsu mál, skóla­dagatal, áætlanir og breytingar.

Eftir fundinn fréttir móðir barnsins að foreldra­ráði hafi verið veittar ítarlegar upplýsingar um mál barnsins. Segist móðirin hafa velt því fyrir sér hvort um trúnaðar- eða persónu­verndar­brot hafi verið að ræða.

María segir að á fundinum hafi verið opinber gögn.

„Þar var bara að finna opinber gögn eins og til dæmis skýrsla frá Barna­vernd, og skýrsla frá Reykjar­víkurborg, heilbrigðis­eftirlitinu varðandi aðstöðuna í skólanum, sem er í rauninni eðlilegt, “sagði María.

„Þetta eru bara opinber gögn og hver sem er getur komið og skoðað þau.“

María vildi ekki senda gögnin né sýna þau og benti á að líklega væri hægt að nálgast þau hjá borginni.

Blaða­maður upplýsti Maríu um áhyggjur móðurinnar á því hvort trúnaðar­brestur hafi ekki orðið þegar foreldraráð var upplýst um mál barnsins. María sagði ekki svo vera:

„Nei þetta er náttulega bara verið að fara yfir opinber gögn sem eru ekki trúnaðarmál sko.“

Að gefnu tilefni hafði Mannlíf samband við Barna­vernd, Reykja­víkurborg og lögfræði­stofu.
Svör hafa ekki borist frá Barna­vernd né Reykja­víkurborg.

Lögmaður sagði í viðtali við Mannlíf að mál barna hjá barna­vernd væru ávallt trúnaðarmál og að alvarlegt persónu­verndar­brot væri að sýna slík gögn. Skýrslur um einstök mál barna væru aldrei opinber gögn.

María segist ekki vita til þess að aðrir foreldrar hafi kvartað yfir starfs­manninum sem um ræðir. Auk þess sagði hún að fundur milli barnsins og rekstrar­aðila hafi aldrei átt sér stað. En fundurinn sem um ræðir má finna í frásögn móðurinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum