Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Frosti segir Eddu hafa beitt sig hræðilegu andlegu ofbeldi: „Við eigum ekki að hata svona mikið“

Frosti Logason Photo / Facebook
Frosti Logason Photo / Facebook

Frosti Logason fjöl­miðla­maður segir í nýjum hlað­varps­þætti sínum, Harma­geddon að hann hafi verið beittur and­legu ofbeldi er hann var í sam­bandi við Eddu Pét­urs­dóttur, fyrir 11 árum síðan. Kveðst hann hafa brugð­ist við því ofbeldi með ofbeldi í formi tölvu­pósta, sem hann sjái eftir.

Edda sagði frá ofbeldi Frosta eftir að sam­bandi þeirra lauk fyrr 11 árum síðan í hlað­varps­þætti Eddu Falak, og gekkst Frosti við því að hluta. Hann við­ur­kenndi að hafa fengið „þrá­hyggju“ fyrir því að hún myndi við­ur­kenna að hafa beitt hann and­legu ofbeldi á meðan á sam­band­inu stóð og sent henni tölvu­pósta í nokkra mán­uði. Í hlað­varps­þætt­inum seg­ist hann hafa brugð­ist rangt við sam­bands­slit­unum og við­ur­kennir sinn þátt þar. Stað­hæfir hann þó að Edda hafi beytt hann miklu and­legu ofbeldi á meðan þau voru í sam­bandi og að hann hafi þurft að sækja sér áfalla­með­ferðir eftir það. Það hafi tekið hann nokkur ár að kom­ast yfir þetta. „Ég er ekki að mæla því bót en ástæðan fyrir því að ég missti mig var að ég var beittur hræði­legu and­legu ofbeldi og ég sendi þessa tölvu­pósta. En hversu lengi á að töngl­ast á því?“

Í færsl­unni fer hann yfir „ein­stak­lega óheið­ar­lega færslu rík­is­styrkta karl­femínist­ans Þor­steins V,“ eins og það er orðað á YouTube-rás hlað­varps­ins. Þar birtir hann færslur sem téður Þor­steinn hefur skrifað á sam­fé­lags­miðlum um Frosta. Í einni slíkri færslu kemur Þor­steinn inn á það að Frosti hafi „hat­ast út í fem­inista í ára­tugi“ en Frosti velti fyrir sér í þætt­inum hvort tengsl væru á milli þess að hann hafi gagn­rýnt fem­inista í ára­tugi og þess að „ráð­ist var á hann.“ „Ég hef vissu­lega gagn­rýnt fem­inista í ára­tugi og það er kannski þess vegna sem ráð­ist var á mig. Getur verið ein­hver teng­ing þar á milli? Það gæti verið.“ Bætti hann við: „Það var verið að grafa undan mínum trú­verð­ug­leika af því ég hafði gagn­rýnt fem­inista um ára­tugi. Þá þurfit sem sagt að draga fram ein­hvern óhróður og ein­hvern skít um mig og var fundin ein mann­eskja sem ég hafði verið í ofboðs­lega ljótu sam­bandi með, það er að segja ekki af minni hálfu, þetta var and­styggi­legt sam­band. Hún er dregin á flot til þess að reyna að mála mig upp sem eitt­hvað sem ég var í nokkra mán­uði þegar ég var í áfalli. Þá var ég mann­eskja sem ég vil alls ekki vera en það þýðir ekki að ég sé þessi mann­eskja frá degi til dags. Þarna er hann sem sagt að reyna að mála það þannig upp,“ sagði Frosti og átti við færslu Þor­steins.

Frosti full­yrðir í þætt­inum að föð­ur­leysi Þor­steins „hafi markað djúp spor í sál­ar­líf drengs­ins“ eins og hann orð­aði það og bætti við að þess vegna sé hann að „úða þessu hatri yfir fólk.“ Bætir hann við í lokin: „Við eigum ekki að hata svona mikið, við eigum að finna svona núansa í umræð­unni og mæt­ast á miðri leið og tala saman. Ég held að það væri miklu gáfu­legra.“

Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinni hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto