Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

„Tilefnið er samskipti fréttastjórans við undirmann sem ekki uppfylla faglegar kröfur“

Kenn­ar­inn og blogg­ar­inn Páll Vil­hjálms­son skrifar um RÚV í nýjum pistli á blogg­síðu sinni. Hann gefur ýmis­legt í skyn varð­andi inn­an­búð­ar­mál á RÚV og vegur harka­lega að útvarps­stjóra og frétta­stjóra stofn­un­ar­innar með ásök­unum um brot á siða­reglum.

„Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri leitar til gam­al­reyndra frétta­manna að leysa vanda vegna Heiðars Arnar Sig­ur­vins­sonar frétta­stjóra. Málið er það heitt að aðeins inn­vígðum er treyst að höndla með efn­is­at­riði. Nöfn Arnars Páls Hauks­sonar og Brodda Brodda­sonar eru nefnd í ráð­gjafa­hlut­verki. Báðir fyrrum frétta­menn RÚV.“

Blogg­ar­inn bætir við:

„Heiðar Örn sést lítið á skjánum síð­ustu vik­urnar. Tilefnið er sam­skipti frétta­stjór­ans við und­ir­mann sem ekki upp­fylla fag­legar kröfur. Inn í málið bland­ast stöðu­veit­ing innan RÚV, ófag­leg að sama skapi. Heiðar Örn var beggja vegna borðs­ins og aðeins öðru megin í hlut­verki frétta­stjóra.

Fyrir er Stefán útvarps­stjóri með á sinni könnu byrl­unar- og síma­stulds­málið. Lög­reglu­rann­sókn stendur yfir. Allt bendir til að mið­stöð skipu­lags á byrlun og gagna­stuldi sé á Efsta­leiti.

Þrír starfs­menn, Rakel Þor­bergs­dóttir frétta­stjóri, Helgi Seljan og Þóra Arn­órs­dóttir hafa með svip­legum hætti látið af störfum eftir að lög­reglu­rann­sókn hófst.“

Nefnir að „Heiðar Örn tók við stöðu frétta­stjóra eftir að Rakel hætti. Frétta­stjór­inn hefur komið fram fyrir hönd RÚV sem siða­post­uli. Hann gagn­rýndi að Samherji nýtti sér efni frá RÚV, sagði ljótt að stela. Þá gat Heiðar Örn sér orð fyrir sið­ferð­is­grein­ingu á afsök­un­ar­beiðni Samherja. Eft­ir­vænt­ing ríkir eftir stílnum á afsökun frétta­stjóra.“

Páll spyr líka:

„Spurt verður hvort yfir­menn á rík­is­fjöl­miðl­inum séu hafnir yfir það stíga til hliðar er mál skip­ast með þeim hætti að staða þeirra sé óverj­andi. Gömlu fjöl­miðla­kemp­urnar Arnar Páll og Broddi munu hafa verið kall­aðir til skrafs og ráða­gerða í máli Heiðars Arnar.

Í byrl­unar- og síma­stulds­mál­inu nýtti Stefán sér almanna­tengla af ætt utan­búð­ar­manna. Í þessu máli þykir það ekki óhætt. Inn­an­búð­ar­fólki er betur treystandi í Heið­ars­málum Arnar sem á með öllum ráðum að halda innan veggja rík­is­fjöl­mið­ils­ins og láta ekki frétt­ast. Til þessa hefur ekk­ert ratað í fréttir. Enginn fjöl­mið­ill fjallar um næst heitasta frétta­málið á eftir byrl­unar- og síma­stulds­mál­inu.“

Hann lýkur færslu sinni á þessum orðum:

„RÚV er ris­inn á fjöl­miðla­mark­aði. Blaða­menn sem styggja yfir­valdið eiga á hættu atvinnu­bann á Efsta­leiti. Það skerðir afkomu­mögu­leika. Útvarps­stjóri er í veru­legri klípu. Um ára­mót rennur út sam­starfs­samn­ingur RÚV og rík­is­ins. Stefán situr uppi með sak­born­inga og afhjúpaðan siða­post­ula þegar hann sest að samn­inga­borð­inu and­spænis Lilju ráð­herra í haust. Verði Stefán enn útvarps­stjóri.“

Mannlíf hefur sent Stefáni Eiríks­syni útvarps­stjóra fyr­ir­spurn varð­andi umrædda stöðu­veit­ingu á Akureyri. Áður hafði Stefán þver­tekið fyrir það að frétta­stjór­inn hefði verið sendur í leyfi vegna umræddrar stöðu­veit­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto