Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Öfgar senda Aroni og Eggerti bréf: „Nýtið ykkur forréttindastöðu til þess að „styrkja“ ykkar mál“

Aron Einar Gunnarsson og Eggert Gunnþór Jónsson
Aron Einar Gunn­ars­son og Eggert Gunnþór Jónsson

Baráttu­hópurinn Öfgar sendi frá sér opið bréf til fótbolta­mannanna Arons Einars Gunnars­sonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar vegna yfir­lýsinga félaganna um það kynferðis­ofbeldi sem þeir hafa verið sakaðir um að hafa framið fyrir ellefu árum síðan í Danmörku gegn íslenskri stúlku.

Í áður­nefndu bréfi eru Aron Einar og Eggert Gunnþór harðlega gagn­rýndir; sagðir ráðast opinber­lega gegn stúlkunniu sem sakaði þá um ofbeldið með yfir­lýsingum sínum á samfélags­miðli:

„Af hverju þurfið þið að ráðast svona að henni opinber­lega? Af hverju má þolandi ekki segja frá ónafn­greindum meintum gerendum og meintu broti sem hún varð fyrir án þess að frásögn hennar sé rengd?“

Sagt var frá því í október að íslensk stúlka hefði kært Aron Einar og Eggert Gunnþór fyrir nauðgun; sögð hafa átt sér í Kaupmanna­höfn árið 2010, en bæði Aron Einar og Eggert Gunnþór hafa nú gefið skýrslu hjá lögreglu vegna rann­sóknar málsins: Lögmaður Arons Einars sagðist í gær búast við því að málið yrði fellt niður.

Baráttu­hópurinn Öfgar segja að þolandi meintrar nauðgunar sé í fullum rétti að kæra meinta gerendur; að enginn þolandi leiki sér að því að berskjalda sig á þennan hátt.

„Það gerir sér enginn þolandi það að leik að kæra meinta gerendur sína, hvað þá ef þeir hafa völd í samfélaginu, eru fyrir­myndir, myndar­legir fjölskyldu­menn, dýrkaðir og dáðir.“

Málið hefur vakið mikla athygli á Íslandi, og samfélagið er í sárum eftir að mörg hneykslismál komu upp varðandi núverandi og fyrr­verandi lands­liðsmenn; KSÍ lagðist nánast á hliðina og ljóst er að þessi mál eru hvergi nærri búin.

Öfgar.

Bréf Öfga í heild sinni er hér fyrir neðan:

Opið bréf til Arons Einars & Eggerts Gunnþórs:

Í maí á þessu ári steig hugrökk kona fram og sagði frá kynferðis­broti sem hún hafði orðið fyrir árið 2010, hópnauðgun af hendi tveggja lands­liðsmanna á þeim tíma.

Þessi frásögn varð til þess að KSÍ málið stóra fór af stað og opnaði á gríðar­lega mörg mál sem hingað til hafa þrifist í þögninni. Það er nefnilega stór hluti lands­liðsmanna sem komu Íslandi á EM 2016 bendlaðir við meint ofbeldi.

Lið sem þú, Aron Einar, hefur leitt sem fyrirliði.

Við sem stöndum utan vallar veltum því eðlilega fyrir okkur hvers konar menning hefur skapast innan þessa liðs, hvers konar bro code eru menn komnir með þegar þeir meint hópnauðga saman, hvað þá þegar nánast helmingur gull­kynslóðarinnar eru meintir gerendur.

Í fyrstu yfir­lýsingu þinni, Aron, kallar þú konuna með óbeinum orðum óheiðarlega vegna þess að hún nafn­greinir þig ekki.

Þessi kona skuldar þér ekkert, og eins og þú veist sjálfur þá má hún ekki, samkvæmt lögum, nafn­greina þig.

Af hverju bendlar þú þig við þetta mál ef þú ert blásaklaus og konan hefur ekki nafn­greint þig?

Eins og þið segið sjálfir þá hefur þolandi hvergi nafn­greint meinta gerendur sína heldur einungis sagt sína sögu og leitað réttar síns, sem hún fékk ekki að gera á sínum tíma.

Þið hljótið að skilja það að þolandi meintrar hópnauðgunar er í fullum rétti á að kæra meinta gerendur sína.

Af hverju þurfið þið að ráðast svona að henni opinber­lega? Af hverju má þolandi ekki segja frá ónafn­greindum meintum gerendum og meintu broti sem hún varð fyrir án þess að frásögn hennar sé rengd?

Það leikur sér enginn þolandi að því að berskjalda sig með þessum hætti, enda höfum við séð í gegnum árin að þegar þolendur stíga fram þá missa þau mannorð sitt, fjöl­skyldu, vini og hrekjast burt.

Það gerir sér enginn þolandi það að leik að kæra meinta gerendur sína, hvað þá ef þeir hafa völd í samfélaginu, eru fyrir­myndir, myndar­legir fjölskyldu­menn, dýrkaðir og dáðir.

Í sömu yfir­lýsingu sakar Aron Einar KSÍ um útskúfun en þegar einstaklingur situr undir lögreglu­rannsókn er það eðli mála að viðkomandi sé sendur í starfs­leyfi. Við sjáum það gert á flestum vinnu­stöðum.

Að þú, Aron Einar, hafir „fórnað“ þér svona duglega fyrir íslensku þjóðina og leikið 97 leiki fyrir Íslands hönd gefur þér ekkert tilkall til þess að spila fyrir lands­liðið á meðan rannsókn stendur yfir.

Þau forréttindi sem þú hefur sem fyrirliði íslenska lands­liðsins fylgir ábyrgð, ábyrgð sem þú virðist kannski ekki hafa getað staðið undir.

Það er vitað mál að lögreglu­rannsókn tekur langan tíma hér á Íslandi. Það geta liðið margir mánuðir áður en meintir gerendur eru kallaðir inn í skýrslu­töku og þeir jafnvel vita ekki að lögreglu­rannsókn standi yfir fyrr en símtal um boðun í skýrslu­töku berst.

Það er svo sem ekkert undravert að þið hafið ekki verið kallaðir inn strax. Þetta vita ykkar lögmenn líka fullvel, sem undir­strikar sterklega hvað yfir­lýsingarnar eru einbeitt aðför að æru og trúverðug­leika þolandans.

Því miður er mála­flokkur kynferðis­ofbeldis mjög brotinn, tölfræðin segir okkur það. Einungis 17% tilkynntra mála ná til dómstóla og þar af eru einungis 13% sem ná til sakfellingar.

Réttar­kerfið endur­speglar því ekki sakleysi meintra gerenda á neinn hátt. Það sem hins vegar styrkir mál þolanda í þessu tilfelli er að lögreglan endur­opnar ekki rannsókn á 11 ára gömlu máli sem átti sér stað í Kaupmanna­höfn nema að rík ástæða þyki til.

Það er skrítinn „misskilningur“ hjá ykkur báðum að halda því fram að hægt sé að óska eftir því að gefa skýrslu hjá lögreglu um meint sakleysi sitt. Það er lögreglan sem kallar til skýrslu­töku, ekki öfugt.

Annað hvort eruð þið forréttinda­firrtir með öllu eða, þetta er enn eitt útspilið til að reyna að þyrla upp ryki og mála upp slæma mynd af þolanda, fyrir­myndar­mennirnir sem þið nú eruð.

Þið bætið svo í þetta með því að leggja mat á að þetta verði nú af öllum líkindum fellt niður en það sannar hvergi sakleysi ykkar í þessu máli.

Þið nýtið ykkur forréttinda­stöðu ykkar til þess að „styrkja“ ykkar mál á opinberum vettvangi og setjið þolanda í enn viðkvæmari stöðu með þessum aðferðum, sem þið hljótið að vera meðvitaðir um.

Samfélagið okkar trúir síður konum, sérstak­lega ef þær eru þolendur ofbeldis. Það virðist vera auðveldara að trúa því að konur ljúgi frekar en að þær séu beittar ofbeldi.

Þessar yfir­lýsingar þýða ekki neitt, ekkert annað en að þið stígið fram og nafn­greinið ykkur sjálfa með alla þjóðina á bak við ykkur.

Það er ekkert nýtt að meintir gerendur nýti sér valda­stöðu sína með þessum hætti og það er ekkert nýtt að meintir gerendur, sérstak­lega ef þeir eru í valda­stöðu, veitist svona að þolendum. Það er engin ný aðferð að lögmenn taki þátt í slíkum aðförum og jafnvel mæli með þeim.

Það er ekkert nýtt að meintir gerendur neiti sök í kynferðis­brotamálum. Það er ekkert nýtt að líkurnar á niður­fellingu séu sterkar.

Þið endur­takið söguna með öllum hinum meintu gerendunum.

Það sannar hins vegar aldrei neitt sakleysi, rann­sóknir og tölfræði er þolendum í hag.

Heimildir:

Er 13% réttlæti nóg?ÁRSSKÝRSLA 2019 – blaðsíður 43-48, 49-50, 66, 71-72,FRUMNIÐURSTÖÐURÁrsskýrsla 2020 – blaðsíða 7, 17-19.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu