Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Þegar Ísdrottningin mætti á klakann: „Myndarlegustu karlmenn sem ég hef hitt“

Hver man ekki eftir Icey Spicy Leoncie sem tryllti lýðinn í fjöldi ára þar til hún nánast hvarf á einni nóttu? Þessi merka söngkona og dansari skemmti á árum áruð á hinum ýmsum klúbbum Reykja­víkur sem og úti á landi og kom fram í sjónvarps­þáttum á borð við Á tali hjá Hemma Gunn, breska X-factor og Popp Tíví. Hin síðari ár hafa listræn myndbönd hennar við stór­smelli hennar slegið rækilega í gegn á YouTube en ber þar helst að nefna Ást á pöbbnum, Viktor og Killer in the Park.

En hvenær kom þessi söngdíva fyrst fyrir sjónir Íslendinga? Það var árið 1982 þegar hún kom til landsins til að syngja í Glæsibæ. Tíminn tók fyrsta viðtalið við Leoncie en það var í október 1982. Þar talaði Leoncie um íslenska karlmenn, feril sinn í tónlist og tegund tónlistarinnar sem hún syngur. Hér má sjá viðtalið í heild sinni:

Indversk-portúgölsk söngkona í Glæsibæ: MYNDARLEGUSTU KARLMENN SEM ÉG HEF HITT

— segir söngkonan Leoncie Maria Martin um íslenska karlmenn „Ef ég fengi tækifæri. til að syngja með góðri íslenskri jass hljómsveit gæti ég vel hugsað mér að setjast að hérna á
íslandi. Eg hef verið búsett í Kaupmanna­höfn í rúm tvö ár, á reyndar danskan eiginmann, en er orðin leið á Danmörku. Þar er svo mikið af fólki sem ber austrænt yfirbragð, að Danir vilja helst losna við það í kreppunni sem hrjáir þá núna. Hér á íslandi hef ég hrifist mjög af fólkinu, sérstak­lega karl­mönnunum, sem eru þeir kurteisustu og myndarlegustu sem ég hef hitt á ævinni.“

Sú sem talar heitir Leoncie Maria Martin, söngkona, sem er hálfur Indverji og hálfur Portúgali. Leoncie er nú stödd hér á landi á vegum veitinga­hússins Glæsi­bæjar, en þar kom
hún fram þrjú kvöld um síðustu helgi og mun verða þar aftur nú um helgina, föstudag, laugardag og sunnudag. Hvað rak þessa indversk-portúgölsku söngkonu til íslands? „Ég kynntist íslenskum mánni, Þorsteini Viggós­syni, i Kaupmanna­höfn. Hann sagði mér talsvert frá landinu og ég varð mjög spennt, svo það varð úr að hann útvegaði mér starf í Glæsibæ. Að vísu var bara talað um að ég yrði hér í tvær vikur, en mér hefur líkað svo vel, að það kemur vel til greina að ég verði lengur. Kannski mun ég koma fram á Akureyri um þar næstu helgi,“ sagði Leoncie.

Mest sungið á Bahrain og Indlandi

„Þótt ég búi í Danmörku hef ég ekki komið mikið fram þar. Ég hef á undan­förnum árum mest verið á ferða­lögum. Ég hef verið talsvert í Austur­löndum nær, aðallega á Bahrain,
og í Indlandi. Það er sérstakt að koma fram í Mið-Austur­löndum. Þar hef ég sungið á klúbbum þar sem næstum eingöngu eru karlmenn, það sjást aðeins örfáar konur og þær sem sjást eru frá Vestur­löndum.“

 Geturðu skilgreint músikina sem þú flytur?

„Ég syng og spila alla vega dægur­tónlist, bæði eftir sjálfa mig og aðra. Ég hef líka mjög gaman af að syngja jass og þá sérstak­lega jass með suður-amerískum áhrifum, bossa nova og samba. í Glæsibæ geri ég hvort tveggja, syng við eigin píanóleik og með hljómsveit hússins,“ sagði Leoncie.

Leoncie býr nú í Keflavík en hægst hefur á ferli hennar en hún gaf þó út plötu árið 2017 sem bar heitið Mr. Lusty.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli