Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Vitnisburðir lækna og sakbornings stangast á: „Hann var aldrei að fara að standa upp“

Dumitru Calin og Unnsteinn Örn Elvarsson, verjandi hans.
Dumitru Calin og Unn­steinn Örn Elvars­son, verj­andi hans.

„Mér finnst að ökutækið hefði þurft að vera á meiri hraða,“ sagði lögreglu­maður sem bar vitni fyrir dómi í gær í réttar­höldum yfir Dumitru Calin.

Dumitru er gert að sök að hafa ekki komið Daníel Eiríks­syni til hjálpar er hann var í nauð, og að hafa með gáleysi verið valdur að dauða hans. Daníel fannst mikið slasaður á bílaplani fyrir utan heimili sitt að Vindakór í Kópavogi, þann 2. apríl árið 2021, eftir samskipti við Dumitru. Hann komst aldrei til meðvitundar og lést af áverkum sínum.

Lögreglu­maðurinn sagði að honum þætti að bifreið Dumitru hefði þurft að vera á meiri hraða þannig að Daníel færi með jafn miklum krafti í malbikið og hann virðist hafa gert, miðað við áverka hans.

„Að brjóta höfuðið á malbiki, það hlýtur að þurfa hraða og kraft. Því meiri hraða sem ökutækið fer á, þeim mun harkalegra verður fallið.“

Sakborningurinn hefur haldið því fram að bifreiðin hafi aðeins verið á 15 til 20 kílómetra hraða. Hann hafi ekið af stað til þess að komast undan Daníel, sem hafi haldið með báðum höndum í rúðu bílsins bílstjóramegin.

Daníel Eiríks­son

„Hann var aldrei að fara að standa upp“

Við skoðun á Daníel, þegar hann var fluttur á slysa­deild, síðar þegar hann gekkst undir aðgerð á höfði og eftir að hann var látinn, sáust marg­víslegir áverkar. Hann var með mikla og greini­lega höfuð­áverka og rispur víða um líkamann sem voru greini­lega nýlegar.

Sérfræðingur í bráða- og slysa­lækningum, sem annaðist Daníel á bráða­móttöku, bar vitni fyrir dómi í gær. Saksóknari spurði hvort honum þætti líklegt að maður með þessa áverka hefði getað staðið upp.

„Hann var aldrei að fara að standa upp,“ var svarið.

Verjandi sakbornings spurði þá hvort hægt væri að útiloka það. „Ég er bara að lýsa því hvernig þetta blasir við mér þegar hann kemur á bráða­móttöku,“ svaraði vitnið þá.

Skurðlæknir á sama máli

Sérfræðingur í heila- og tauga­skurð­lækningum, sem gerði aðgerð á höfði Daníels, talaði með svipuðum hætti í vitna­leiðslum. Hann sagði höfuð­áverkana hafa verið alvarlega og dreifða. Daníel hafi verið með brotna höfuðkúpu, blóð hafi verið beggja vegna í heila­hvelum og heilinn mjög bólginn. Hann segir þrýstinginn í heila hafa verið svo mikinn að súrefni hafi ekki getað komist til heilans í nægum mæli.

Hann sagði að ástand sjúklings yrði yfirleitt mjög fljótt alvarlegt í kjölfar svona áverka; oftast á fyrstu sekúndum eða mínútum.

Sækjandi spurði þá hvort líklegt væri að Daníel hefði getað staðið upp eftir að hafa hlotið áverkana. Hann sagðist ekki telja að svo gæti verið. „Miðað við útlit áverkanna finnst mér það nánast útilokað.“

Verjandi sakbornings spurði í kjölfarið hvort sérfræðingurinn gæti útilokað það með óyggjandi hætti. „Nánast. En ekki hundrað prósent. En þetta er mín skoðun með mína þekkingu.“

Dumitru Calin hélt því fram í sínum vitnis­burði að Daníel hafi haldið með báðum höndum í rúðu bifreiðarinnar en fallið fljótlega í jörðina þegar hann hafi keyrt af stað, á 15 til 20 kílómetra hraða. Hann hafi þá stöðvað bifreiðina og séð Daníel í speglinum. Dumitru hélt því stöðugt fram að hann hefði séð Daníel vera að standa á fætur og að Daníel hefði gert sig líklegan til þess að hlaupa af stað á eftir honum. Þess vegna hafi Dumitru keyrt á brott. Hann sagðist ekki hafa haft hugmynd um að Daníel væri slasaður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu