Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Svona lítur líkaminn út eftir 55 klukkustunda langa sundferð

||||||||
||||||||

Hinn hol­lenski Maarten van der Weijden varð ungur afreks­maður í sundi og átti fram­tíð­ina fyrir sér í íþrótt­inni. En þegar hann var nítján ára greind­ist hann með krabba­mein, nánar til­tekið hvít­blæði, og gáfu læknar honum litlar lífslíkur.

Maarten var nítján ára þegar hann greind­ist með hvít­blæði.

Maarten barð­ist hins vegar með kjafti og klóm og náði að sigr­ast á krabba­mein­inu. Auk þess sneri hann aftur í sundið af fullum krafti tveimur árum eftir grein­ing­una. Ef það var ekki nóg, þá náði hann svo góðum bata að hann nældi sér í gull­verð­laun í sundi á Ólymp­íu­leik­unum í Peking árið 2008.

Þessi sund­garpur lætur fátt stoppa sig.

Maarten reyndi nýlega við að synda tæp­lega tvö hund­ruð kíló­metra langt sund, betur þekkt sem Elfstedentocht í Hollandi. Vanalega er keppt í skautum þessa leið einu sinni á ári þegar vatnið frýs, en skautað er í hring frá bænum Leeuwarden, í gegnum bæi eins og Stavoren, Workum, Harl­ingen og Franeker og endað aftur í Leeuwarden. Fyrir þá sem eru kunn­ugir í Hollandi er enda­punkt­ur­inn nálægt frægu vind­myll­unni De Bullemo­len.

Synt af kappi.

Maarten ákvað að synda þessa leið til að safna pen­ingum fyrir krabba­meins­rann­sóknir, og mál­stað­ur­inn því afar nærri hjarta hans. Áætlað var að sund­ferðin tæki þrjá daga með stuttum hvíld­ar­lúrum. Þegar liðið var á sundið varð Maarten hins vegar veikur og vatnið talið of mengað þannig að hann þurfti að hætta sund­inu eftir að hafa synt 163 kíló­metra á 55 klukku­stundum. Á með­fylgj­andi myndum má sjá hvernig lík­ami hans leit út eftir svo langt sund.

Þó að Maarten hafi ekki náð að synda alla leið náði hann samt að safna rúm­lega fjórum millj­ónum doll­ara, tæp­lega 430 millj­ónum króna.

Maarten safn­aði tæp­lega 430 millj­ónum króna á sund­inu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé