Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Starfsmaður braut á níu ára stúlku í sumarbúðum fyrir fötluð börn: „Brotaviljinn var augljós“

Sumarbúðirnar í Reykjadal.
Sum­ar­búð­irnar í Reykja­dal. Mynd: Facebook

Ungur maður sem kom inn í gegnum sérúrræði og átti að sinna dýrum og útiverkum í  sumar­búðum í Reykjadal er sakaður um að hafa brotið kynferðis­lega á níu ára stúlku síðasta sumar. Framkvæmdar­stjóri Styrktar­félags lamaðra og fatlaðra, sem rekur sumar­búðirnar bað starfs­fólkið að hringja ekki á lögreglu vegna hins meinta brots.

Í nýjasta blaði Heimildarinnar má sjá sláandi viðtal við foreldra níu ára fatlaðrar stúlku sem fór í sumar­búðirnar í Reykjadal síðastliðið sumar. Þar varð hún fyrir kynferðis­broti af hendi starfs­manns sumar­búðanna sem sjálfur með mikla fötlun og þroska­skerðingu en hann kom inn í gegnum sérúrræði á milli Átaks og Styrktar­félags lamaðra og fatlaðra og átti að sinna dýrum og útiverkum. Segir í Heimildinni að þegar kom að brottfara­deginum hafi foreldrar hennar átt að sækja hana klukkan fjögur. „Hún var tilbúin um tvöleytið, starfs­maður var búinn að aðstoða hana við að pakka ofan í tösku og fór síðan fram til að hjálpa öðru barni, annars staðar í húsinu,“ sagði faðirinn í viðtalinu og hélt áfram. „Á meðan var hún ein inni í herberginu, þar sem hún stendur og horfir út um gluggann, kemur starfs­maður inn og brýtur á henni. Án þess að fara í smáatriði þá fór hann inn á hana, snerti hennar einka­staði og færði hana upp í rúm. Það er það sem við vitum. Hann lokaði dyrunum svo enginn kæmi inn, þannig að brota­viljinn var augljós. Þegar aðrir starfs­menn sjá að dyrnar eru lokaðar, sem ekki má í Reykjadal, fara þeir tveir inn í herbergið þar sem þeir koma að honum. Þá kom flótti á starfs­manninn sem hleypur í burtu og hinir sjá auðvitað að það er ekki allt í lagi, spyrja dóttur okkar út í það og hún segir þeim sem var.“

Skýrsla frá Gæða- og eftirlits­stofnun velferða­mála styður atvika­lýsinguna en þar er hins vegar ekki talað um staðfest brot, heldur um grun um kynferðis­ofbeldi, þar sem maðurinn hefur ekki hlotið dóm. Segir faðirinn að tíma­setningin hafi alltaf staðið í sér. „Við héldum upphaf­lega að það ætti að sækja hana klukkan eitt og vorum tilbúin. Svo kom í ljós að það var ekki fyrr en fjögur. ég hef margoft hugsað um það, ef við hefðum farið klukkan eitt stæðum við ekki í þessum sporum.“

Fram kemur í Heimildinni að starfs­maður sumar­búðanna hafi sagt hjónunum að framkvæmda­stjóri Styrktar­félags lamaðra og fatlaðra hefði ráðið starfs­fólkinu frá því að hringja í lögregluna. Þegar hjónin spurðu framkvæmdar­stjórann um þetta á fundi gaf hann þá skýringu að hann hefði fyrst þurft að hringja nokkur símtöl til að fá leið­beiningu. „Í því samhengi kom fram að það voru engir verk­ferlar eða viðbragðs­áætlun til að taka á svona málum.“ Voru hjónin mjög óánægð eftir fundinn og sögðust hafa farið út af honum í enn meira áfalli en áður.

Viðtalið má lesa í heild sinni í blaði Heimildarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim