Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Bannárin á Íslandi stóðu yfir í 20 ár: „Þjóðin þoldi ekki þetta aðhald“

Bannárin á Íslandi stóðu yfir í 20 ár (eða 7 ár eftir því hvernig á málið er litið).

Algjört áfengis­bann gekk í gildi árið 1915. Bannið tók til þess að framleiða og selja áfenga drykki. Sala léttra vína var þó leyfð aftur árið 1922 (Spánarvín), en áfengis­bannið var síðan afnumið alveg 1. febrúar árið 1935. Bjór sem hafði verið leyfður fyrir 1915 var þó ekki leyfður aftur á Íslandi fyrr en 1. mars 1989. Þjóðar­atkvæða­greiðslur voru haldnar um áfengis­bann 1908 og 1933.

Áfengis­auglýsingar voru bannaðar á Íslandi með lögum frá árinu 1928 meðan áfengis­bannið var enn í gildi. Áfengis­banninu var svo aflétt 7 árum seinna, en auglýsinga­bannið hefur haldist síðan.

Með opnun Íslands gagnvart umheiminum hefur íslenskt samfélag tekið gagngerum breytingum á síðustu áratugum. Löggjöfin og framkvæmd hennar í áfengis­málum hefur færst til frjálsræðis­áttar og viðhorf lands­manna til áfengis færst nær því sem gerist annars staðar í V-Evrópu. Á sama tíma hefur neysla áfengis aukist hér á landi ef rann­sóknir eru skoðaðar og hægt er að rýna í textanum hér að neðan. Lærdómurinn sýnir svokallaða íslenska bjór­málinu: Afar líklegt er að upptaka markaðs­lögmála og rýmkun reglna um notkun vímuefna, hvort heldur er áfengis eða annarra fíkniefna, hafi leytt til aukinnar neyslu í samfélaginu, en það er erfitt að segja.

Framleiðsla, sala og neysla bjórs var bönnuð á Íslandi

En af hverju var bjór bannaður á sínum tíma en annað áfengi leyft?

Áfengis­neysla á Vestur­löndum á sér langa sögu. Ekki er lengur deilt um lagalega stöðu áfengis þótt áfengis­vandinn sé löngu þekktur og vel kort­lagður. Meðferð og neysla áfengis hefur ekki alltaf verið heimiluð og áfengi ekki alltaf verið samfélags­lega viðurkenndur vímugjafi. Snemma á tuttugustu öldinni var áfengis­neysla víða bönnuð, meðal annars á Íslandi.

Fram­leiðsla, sala og neysla bjórs var fyrst bönnuð á Íslandi þegar áfengis­bannið tók gildi árið 1915. Alþingi ákvað árið 1922 að veita undanþágu frá algeru áfengis­banni og leyfði sölu spænskra vína, einkum vegna hættu á að tapa fisk­útflutningi til Spánar. Sjónarmið heil­brigðis og almennrar lýðheilsu sem voru grund­völlur bannsins í upphafi urðu því að víkja fyrir viðskipta­hagsmunum þjóðarinnar.

Í kjölfar þjóðar­atkvæða­greiðslu um áfengis­bannið árið 1933, þar sem naumur meirihluti reyndist fyrir því að aflétta banninu, ákvað Alþingi að leyfa innflutning og sölu á öllu áfengi nema bjór frá og með 1. mars 1935. Að undan­skilja bjórinn frá afnámi áfengis­bannsins vekur óneitanlega athygli. Ýmislegt bendir til að bannið á bjór hafi greitt fyrir samþykki frum­varpsins að öðru leyti á Alþingi. Andstæðingar afnáms áfengis­banns voru ekki aðeins fjölmargir meðal þjóðarinnar eins og þjóðar­atkvæða­greiðslan hafði leitt í ljós skömmu áður heldur ekki síður á Alþingi þar sem þeir voru jafnframt valda­miklir. Auk þess var því haldið fram á Alþingi að bjórinn hefði ákveðna sérstöðu meðal áfengra drykkja og gæti auðveldlega kveikt löngun í áfengi meðal viðkvæmra þjóð­félagshópa.

Bjórinn gæti betrumbætt drykkjusiði landsmanna

  1. mars 1935 mátti selja allt áfengi á Íslandi, annað en bjór.

Jónas Jónsson frá Hriflu og Tryggvi Þórhallsson kusu gegn afléttingu bannsins árið 1922. Jónas sagði í grein í Tímanum 1939:

„Þegar Spánar­vínin voru leyfð, var ég annar af þeim tveim þing­mönnum, sem greiddi atkvæði gegn undan­haldinu við Spánverja. Og árið 1928 undirbjó ég hina síðustu sókn, sem Alþingi gerði í löggjöf um áfengis­málin. Með tilstyrk þeirrar löggjafar var lækna­brennivínið og skipa­brennivínið upprætt. En þjóðin þoldi ekki þetta aðhald. Jafnvel ungmenna­félögin höfðu afnumið bindindis­heitið, og tvær stærstu hátíðir félaganna voru orðnar landskunnar fyrir opinbera stór­drykkju.“

Talsmenn bjór­bannsins héldu því löngum fram á Alþingi að bjórinn myndi auka áfengis­neyslu lands­manna, einkum ungmenna og verka­fólks. Aftur á móti töldu andstæðingar bann á bjór skjóta skökku við þegar sterkt áfengi væri leyft og að einmitt bjórinn frekar en sterkt áfengi gæti betrumbætt drykkju­siði lands­manna.

Bjór­bannið stóð til ársins 1989 þegar fram­leiðsla, innflutningur og sala á bjór var loks leyfð eftir að lagðar höfðu verið fram tugir tillagna á Alþingi um lögleiðingu á neyslu bjórs.

Hvers vegna lauk bjór­banninu árið 1989 en hvorki fyrr eða síðar? Bæði ytri og innri skilyrði réðu miklu um þessa tíma­setningu. Stuðningur almennings við afnám bjór­bannsins óx allan níunda áratuginn, bæði á höfuð­borgar­svæðinu og í öðrum lands­hlutum. Krafan um að Alþingi afnæmi bjór­bannið varð æ sterkari þegar á leið. Auknar utan­ferðir Íslendinga og vaxandi straumur ferða­manna til Íslands hafði dregið úr einangrun landsins og stór hluti þjóðarinnar hafði kynnst menningu annarra vestrænna þjóða, meðal annars bjórsiðum þeirra . Þessi opnun, bæði inn og út á við, gróf smám saman undan samfélags­legum forsendum bjór­bannsins. Andstaðan við bjórinn var mest meðal þingmanna úr dreifbýli og meðal flokka sem kenndu sig við alþýðuna, en með auknum stuðningi við bjórsölu og hraðri þéttbýlis­myndun fjaraði undan andstöðunni og greinilegri flokka­skiptingu milli stríðandi fylkinga.

Áfengissala jókst og drógst saman á víxl

Áhrif lögleiðingar bjórs á heildar­sölu áfengis og neyslu­mynstur

Áhrif lögleiðingar bjórs árið 1989 voru ekki að öllu leyti í samræmi við væntingar. Málsvarar bjór­bannsins spáðu umtals­verðri aukningu á áfengis­neyslu lands­manna í kjölfar lögleiðingar. Fyrsta árið jókst neyslan verulega en hún gekk þó fljótt til baka. Árið 1988, þegar bjór­bannið var afnumið á Alþingi, nam árleg neysla af hreinum vínanda 3,39 lítrum á mann, en árið 1995 var hún aðeins örlítið meiri eða 3,6 lítrar . Árið 2007 höfðu tölurnar aftur á móti hækkað umtals­vert eða í alls sex lítra á mann. Athyglis­vert er að sala á áfengi byrjaði að vaxa áður en bjór­banninu var aflétt. Árið 1966, svo dæmi sé tekið, nam árleg neysla af hreinum vínanda 2,33 lítrum á mann, en árið 1978 hafði hún aukist í 2,88 lítra.

Fleiri þættir en bann eða lögleiðing á bjór virðast því hafa áhrif á sölu áfengis. Samdráttur í hagkerfinu snemma á tíunda áratugnum dró úr kaupmætti Íslendinga sem að líkindum hélt aftur af bjór- og áfengis­sölu á þeim tíma. Seint á tíunda áratugnum og í byrjun 21. aldarinnar náði hagkerfið sér á strik á ný með meiri kaupmætti almennings og aukinni áfengis­sölu. Minnkandi áfengis­sölu varð sömuleiðis vart í kjölfar hrunsins árið 2008  en salan jókst á ný með batnandi efnahag almennings.

Bjórbanninu aflétt

Árið 1989 máttu Íslendingar loks kaupa bjór.

Aðrar breytingar í átt að frjáls­lyndari áfengis­stefnu hafa einnig orðið á Íslandi á síðustu árum. Stefna stjórn­valda í áfengis­málum hefur á síðari árum mótast æ meir af markaðs­sjónarmiðum. Árið 1954 hafði aðeins eitt veitingahús leyfi til að selja áfengi. Þau voru orðin 37 árið 1980, 148 árið 1988 og 322 árið 1994. Árið 2001 voru vínveitinga­leyfin orðin 512 en fjölgun þeirra þá var einkum á lands­byggðinni. Árið 2017 eru leyfin aftur á móti komin vel yfir eitt þúsund.

Sömu þróun má sjá í fjölgun útsölu­staða ÁTVR. Staðirnir voru aðeins sjö árið 1962, 24 árið 1994 en voru komnir yfir fimmtíu árið 2017. Frjáls­lyndari áfengis­stefna sem birtist í fleiri sölu­stöðum, rýmri opnunar­tíma, og almennt meira aðgengi að áfengi, hefur því án vafa átt þátt í að auka áfengis­neyslu í landinu og afnám bjór­bannsins aðeins einn liður í þeirri aukningu.

Mikilvæg breyting hefur orðið á neyslu sterkra drykkja á síðustu áratugum. Um leið og bjórinn kom til sögunnar árið 1989 byrjaði að draga úr neyslu á sterku áfengi. Neysla léttvína nánast tvöfaldaðist og bjórsalan jókst enn meira á næstu árum. Á sama tíma dró úr neyslu á sterku áfengi og varð aðeins um helmingur þess sem hún var síðla á níunda áratug síðustu aldar . Bjórinn bættist því ekki einfald­lega strax við sterkvíns­drykkjuna sem margir bjór­andstæðingar töldu líklegt að myndi gerast við afnám bannsins. Neyslan færðist frá sterkari drykkjum í áttina að veikari áfengis­tegundum.

Breytt viðhorf til áfengisneyslu

Nýir drykkju­siðir hafa látið á sér kræla á síðustu árum. Dregið hefur úr áberandi ölvunar­ástandi á almanna­færi. Breytt viðhorf til áfengis­neyslu hafa leitt til þess að fólk drekkur minna hverju sinni, en ef til vill við fleiri tækifæri en áður .

Bjórinn hefur ekki orðið til að auka drykkju ungmenna því mælingar ESPAD sýna að áfengis­neysla grunn­skóla­nemenda hefur minnka og er nú með því minnsta sem gerist í V-Evrópu.

Alþjóðleg langtíma­rannsókn (ESPAD) á áfengis­neyslu skólanema á aldrinum 15 til 16 ára sýnir að gagnstætt því sem andstæðingar bjórsins óttuðust fækkaði nemendum sem drukku mikið áfengi á árunum 1995 til 2007 . Nýrri ESPAD-mælingar sýna að áfengis­neysla grunn­skóla­nemenda hefur haldið áfram að minnka og er nú með því minnsta sem gerist í V-Evrópu. Tilkoma bjórsins virðist ekki hafa leitt til meiri áfengis­neyslu á vinnu­stöðum eða leitt til aukinnar neyslu meðal verka­fólks á vinnu­stöðum eins og stuðnings­menn bjór­bannsins spáðu.

Afnám bjór­bannsins er að saman­lögðu aðeins ein af mörgum ástæðum vaxandi áfengis­neyslu á Íslandi á síðari árum. Íslendingar neyta þó enn minna áfengis en flestar aðrar vestrænar þjóðir, en bilið milli okkar og annarra hefur samt minnkað. Hugsanlega má halda því fram að drykkju­hegðun hafi almennt batnað á Íslandi, þótt ekki hafi dregið úr vanda­málum tengdum áfengis­sýki. Um tvö þúsund manns hafa árlega komið til meðferðar hjá SÁÁ á undan­förnum árum, þar af um þriðjungur í fyrsta sinn .

Heimildir:

Alþingi, (2017). Svar þáverandi ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra við fyrir­spurn frá Nicole Leigh Mosty um fjölda vínveitinga­leyfa.  http://www.althingi.is/altext/146/s/0363.html.

Ásgeir Guðmundsson, (1975). Saga áfengis­bannsins á Íslandi. Reykjavík: Háskóli Íslands.

ÁTVR. Saga ÁTVR. Sótt af heimasíðu ÁTVR. https://www.vinbudin.is/heim/um_atvr/fyrirtaekid/tabid-2368/saga-%C3%A1tvr

ESPAD (2020). The ESPAD Report 2020: Results from the European School Survey Project on Alcohol and other Drugs.

Ferðamála­stofa, (2022). Fjöldi ferða­manna. https://www.ferdamalastofa.is/is/tolur-og-utgafur/fjoldi-ferdamanna.

Hagstofa Íslands, (2022). Umfang áfengis­neyslu á Íslandi. http://www.heilsuhegdun.is/afengi/annad/tolulegar-upplysingar/umfang-afengisneyslu-a-%C3%ADslandi/.

Hagstofa Íslands, (2017). Áfengis­neysla á Íslandi. Sótt 26. maí 2017 af: https://hagstofa.is/utgafur/frettasafn/heilbrigdismal/afengisneysla-a-islandi/.

Helgi Gunnlaugsson, (2009). Lögleiðing bjórs á Íslandi: Félagsleg átaka­mynstur og afnám bannsins. Í Rann­sóknir í félags­vísindum X Félags- og mannvísinda­deild, bls. 61-72. Ritstjórar Gunnar Þór Jóhannesson og Helga Björns­dóttir. Reykjavík: Félags­vísinda­stofnun Háskóla Íslands.

Morgun­blaðið, (2009, 1. mars). Teygaður í tuttugu ár, bls. 8.

OECD Health Statistics. 2020.

Visir.is, (2009, 16. júlí). Sala á húsgögnum hrynur.  http://www.visir.is/g/2009143713237/sala-a-husgognum-hrynur.

Þóroddur Bjarnason, (2009). Vímuefna­neysla íslenskra unglinga í alþjóð­legum saman­burði. Akureyri: Rannsókna­setur forvarna við Háskólann á Akureyri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu